Heiður lögmannastéttarinnar

Getur hver sem er orðið lögmaður? Nei, þannig er það ekki. Siðareglur stéttar lögmanna hafa tilgang og gefa leiðsögn um almenn skilyrði starfsins. Annars væru þær ekki til.

Auglýsing

Góð grein hjá Bergi Þór Ing­ólfs­syni og Þresti Leó Gunn­ars­syni hefur vakið athygli, en hún birt­ist í Frétta­blað­inu og á Vísi í gær.



Það er gott hjá þeim að vitna í Rétt­læt­is­kenn­ingu Rawls, í þessu sam­hengi sem greinin sprettur upp úr. Þar er einn beitt­asti boð­skap­ur­inn sem skrif­aður hefur verið um rétt­læti innan stjórn­mála­heim­spek­inn­ar.

Það er lög­manna­stétt­inni til minnk­unar að barn­a­níð­ing­ur­inn Robert Dow­ney hafi fengið lög­manns­rétt­indi sín aft­ur.

Það á að gera sið­ferði­legar kröfur til þeirra sem sinna slíkum störf­um, og það gerir stétt­in, meðal ann­ars með siða­reglum.

Auglýsing

Lög­manna­stéttin íslenska er lítil og ein­angruð við íslenska mál­svæð­ið, og ein­ungis 200 þús­und manna vinnu­mark­að, og það skiptir máli að þar sé fólk með hreina sam­visku þegar kemur að alvar­leg­ustu lög­brot­um. Þetta blasir við og er aug­ljóst í okkar örsam­fé­lagi.

Hér eru tvær fyrstu regl­urnar í siða­reglum lög­manna.

1. gr. Lög­manni ber að efla rétt og hrinda órétti.

Skal lög­maður svo til allra mála leggja, sem hann veit sann­ast eftir lögum og sinni sam­visku.  

 - Dæmdur barn­a­níð­ing­ur, er ekki sá sem „hrindir órétt­i", heldur er upp­spretta hans. Þetta finnst mér aug­ljóst.

2. gr. Lög­maður skal gæta heið­urs lög­manna­stétt­ar­inn­ar, jafnt í lög­manns­störfum sínum sem öðrum athöfn­um.

- Barn­a­níð­ing­ur­inn Robert Dow­ney er aug­ljós­lega sá sem ekki gætir heið­urs lög­manna­stétt­ar­inn­ar, með hrika­legum ólög­legum athöfnum sínum sem fel­ast í kyn­ferð­is­of­beldi gegn börn­um.

Sú rök­semd, að Robert Dow­ney upp­fylli ekki skil­yrðin sem lög­manna­stéttin setur sér sjálf, meðal ann­ars með siða­regl­um, er góð og gild.

En svo eru þeir til líka, sem er alveg sama um þessar siða­regl­ur, og taka athuga­semdum þar sem horft er til þeirra, með létt­vægum hætt­i. 



Mér finnst lög­manna­stéttin þurfa að líta í eigin barm, þegar svo er komið fyrir henni, að dæmdir afbrota­menn, af verstu sort, eru farnir að halda uppi heiðri laga og réttar í okkar sam­fé­lagi innan lög­manna­stétt­ar­innar og fyrir dómi. 

Þetta er ekki spurn­ing um annað tæki­færi og að allir þeir sem brjóti af sér, eigi að geta gengið að öllum hlutum eins og þeir voru, þegar refs­ing hefur verið tekin út. Þannig er það ekki í til­felli lög­manns­starfa, eins og siða­regl­urnar bera raunar með sér. 

Þær gefa til­efni til þess að lög­manns­starfið sé ekki starf fyrir afbrota­menn af verstu sort.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari