Raunveruleikinn bankar á dyrnar hjá stjórnarherrunum

15997269815_43426fc31c_z.jpg
Auglýsing

Nú er staðan þannig, að sumt krabba­meins­sjúkt fólk fær ekki þá þjón­ustu sem það hefur fengið til þessa, vegna kjara­deilna sér­fræði­mennt­aðs fólks sem starfar á vegum rík­is­ins í heil­brigð­is­kerf­inu. Það er varla hægt að færa það í orð, hversu alvar­legt það er, en sjúk­lingar hafa að und­an­förnu verið að skrifa greinar í blöðin vegna þess­arar stöðu og minna á alvöru lífs­ins.

Það má til­taka fleiri mik­il­væg störf innan BHM, og alvar­leg áhrif vegna kjara­deiln­anna. Til við­bótar kemur síðan hin grafal­var­lega staða sem uppi er á almennum vinnu­mark­aði, en líkt og kom fram í Kast­ljósi í kvöld hjá for­svars­fólki í kjara­við­ræð­un­um, beggja megin borðs­ins, þá er engin sátt í sjón­máli. Verk­falls­að­gerðir sem ná til 140 þús­und Íslend­inga eru hugs­an­lega sviðs­mynd.

Aug­ljós­lega má greina mikið van­traust á stjórn­völdum í þessum aðstæð­um. Sam­fé­lags­miðl­arnir eru ekki síst vett­vangur slíkrar umræðu, og þá eru jafnan horft til orða og efnda stjórn­mála­manna. Sal­var Þór Sig­urðs­son er einn þeirra sem heldur stjórn­mála­mönnum við efn­ið, með því að minna þá á þeirra eigin orð. Hann rifj­aði meðal ann­ars upp þessi orð Bjarna Bene­dikts­son­ar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hann var í stjórn­ar­and­stöðu:

„Það er hlut­verk rík­is­stjórnar á hverjum tíma að leiða saman þjóð­ina, skapa sátt í sam­fé­lag­inu, koma á friði og ró á vinnu­mark­aði eftir því sem rík­is­stjórnin hefur eitt­hvað fram að færa í þeim efn­um, en ekki að efna til átaka, svika og sundr­ungar í sam­fé­lag­inu. Því miður hefur allt kjör­tíma­bilið ein­kennst af brostnum vænt­ingum launa­fólks, atvinnu­veit­enda og laun­þega­hreyf­ing­ar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem svik eru borin upp á rík­is­stjórn­ina. Þetta er bara enn eitt skipt­ið.“ Svo mörg voru þau orð, á þeim tíma.

Auglýsing





"Ég vil inna [for­sæt­is­ráð­herra] frétta af fram­lagi rík­is­stjórn­ar­innar til gerðar kjara­samn­inga. Nú virð­ist sem...

Posted by Sal­var Þór Sig­urð­ar­son on Monday, May 4, 2015







Nú er raun­veru­leik­inn að berja að dyrum hjá Bjarna, og staðan enn svart­ari en hún var. Spjótin bein­ast nú að honum og raunar allri rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar. Hvað sem ráð­herr­arnir tauta og raula um ábyrgð þeirra sem eru að reyna að ná sátt­um, það er aðila vinnu­mark­að­ar­ins, þá geta þeir ekki vikið sé undan sinni eigin ábyrgð. Þeir þurfa að leggja eitt­hvað til lausnar á mál­inu, sem heldur verð­bólgu­draug­inum í skefjum en um leið við­ur­kennir mann­sæm­andi laun fólks­ins á gólf­inu og mik­il­vægi sér­fræði­mennt­unar sömu­leið­is. Þetta er ekki auð­velt, en til­lögur að lausnum þurfa að koma frá stjórn­völd­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None