Verður Sjálfstæðisflokkurinn einhvern tímann aftur raunhæfur kostur fyrir ungt fólk?

bjarni
Auglýsing

Ungir sjálf­stæð­is­menn komu ­með sterkt útspil í dag, þegar þeir sendu frá sér lista yfir um 80 breyt­ing­ar­til­lögur á álykt­un­ar­drögum sem mál­efnda­nefndir flokks­ins höfðu útbú­ið í aðdrag­anda lands­fundar sem fram fer um helg­ina. Í til­kynn­ingu frá þeim sagð­i að fjöld­inn end­ur­spegl­aði umfang „þeirra breyt­inga sem ungir sjálf­stæð­is­menn telja ­nauð­syn­legar til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði aftur að raun­hæf­um val­kosti fyrir ungt fólk“.

Það er ekki að ástæðu­lausu sem ungu Sjálf­stæð­is­menn­irnir ótt­ast að ­flokk­ur­inn sinn sé að gera sig ókjós­an­legan hjá ungu fólki. Í könnun sem MMR gerði í lok maí kom í ljósi að ein­ungis 12,5 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 29 ára studdi flokk­inn. Þorri fylgis Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem er reyndar í sögu­legum lægðum (21,4 pró­sent heild­ar­fylgi sam­kvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­un) kemur frá fólki yfir fimm­tugu.

Til­lögur ung­lið­anna eru tölu­vert á skjön við þau álykt­un­ar­drög sem lögð höfðu verið fram, og eru nokkuð íhalds­söm. Þar er meðal ann­ars lagt til að ­sýslu­menn taki alfarið yfir hjóna­vígsl­ur, að Rík­is­út­varpið verði lagt nið­ur, að ­kosn­inga­aldur verði lækk­aður og lögð sér­stök áhersla á mál­efni trans- og inter­sex­fólks. Í til­lög­unum er lika skörp gagn­rýni á athafnir nokk­urra ráð­herra ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ung­lið­arnir leggj­ast meðal ann­ars gegn nýrri Stjórn­stöð ­ferða­mála, sem Ragn­heiður Elín Árna­dóttir ber ábyrgð á, og vilja að hætt verð­i við þau áform að fram­halds­skóla­nám verði aðeins í boði fyrir þá sem eru yngri en 25 ára, sem Ill­ugi Gunn­ars­son inn­leiddi.

Auglýsing

Rót­tæk­asta ­til­lagan er hins vegar sú að ungir Sjálf­stæð­is­menn telja að fram­tíð­ar­lausn í gjald­miðla­málum felist í öðrum gjald­miðli en krón­unni. Því hefur ræða Bjarna Bene­dikts­son, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við upp­haf lands­fundar nær ör­ugg­lega valdið ung­lið­unum von­brigð­um. Þar tal­aði Bjarni, sem eitt sinn vild­i ­taka upp evru, gegn því að Ísland kasti gjald­miðli sín­um.  

Fátt í ræð­unni benti raunar til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé að mæta áhyggj­u­m ung­liða sinna á nokkurn hátt. Þess í stað virð­ist for­ysta flokks­ins ætla að ­sækja for­dæmi úr ranni Fram­sókn­ar­flokks­ins til að reyna að hífa upp fylgið í að­drag­anda næstu kosn­inga: að gefa kjós­endum pen­inga. 

Bjarni til­kynnti nefni­lega að hann væri áfram um að gefa ­þjóð­inni fimm pró­sent hlut í Íslands­banka, sem brátt verður í eigu rík­is­sjóðs. Það svín­virk­aði enda hjá Fram­sókn­ar­flokknum að lofa pen­inga­gjöfum í aðdrag­anda ­síð­ustu kosn­inga, þar sem flokk­ur­inn vann stór­sig­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None