Veiðigjöldin lækka og lækka

Á árunum eftir hrun fjármálakerfisins hafa stærstu útgerðarfyrirtæki landsins gengið í gegnum bestu rekstrarár sín í sögunni. Á undanförnum árum hafa veiðigjöldin lækkað töluvert.

kjarninn_makrill.jpg
Auglýsing

Fiski­stofa birti nýlega sam­an­tekt um veiði­gjöld á fisk­veiði­ár­in­u 2014/2015 sem lauk í lok ágúst síð­ast­liðnum og hefur stofn­unin sett sam­an­ fróð­lega upp­lýs­inga­síðu um veiði­gjöldin. Veiði­gjöld eru lögð á hvert úthlut­að þorskígildiskíló og eru þau mishá eftir ein­stökum teg­undum.  

Tals­vert hefur verið dregið úr álagn­ing­u veiði­gjalds, aðal­lega sér­staks veiði­gjalds, á síð­ustu tveimur fisk­veiði­árum eftir að þau voru hækkuð tals­vert á fisk­veiði­ár­inu 2012/2013. 

Mikil lækkun

Á síð­asta ­fisk­veiði­ári námu sam­an­lögð veiði­gjöld 7,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 9,2 millj­arða á fyrra fisk­veiði­ári og 12,8 millj­arða á fisk­veiði­ár­inu 2012/2013. Nemur lækk­unin því rúm­lega fimm millj­örðum á tveimur árum.

Auglýsing

Álagt almennt veiði­gjald hefur breyst lítið á síð­ustu tveimur fisk­veiði­árum og hefur numið í kringum 4,5 millj­örðum króna.  Helsta skýr­ing á lækk­andi veiði­gjöldum er sú að sér­stök veiði­gjöld hafa lækkað umtals­vert. Þetta á bæði við um sér­stök veiði­gjöld vegna upp­sjáv­ar­veiða ann­ars vegar og vegna botn- og skel­fisk­veiða hins veg­ar.  Á móti kemur að sér­stakur afsláttur af veiði­gjöldum sam­kvæmt ­reglum þar að lút­andi var um hálfum millj­arði  lægri á fisk­veiði­ár­in­u 2014/2015 en á árinu á und­an.

HB Grandi greiðir mest

Á síð­asta greiddi stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, HB Grandi, hæstu veiði­gjöldin eins og árið á und­an. Eins og sést í töfl­unni lækk­uðu veiði­gjöld HB Granda um átján pró­sent.  Veiði­gjöld allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lækk­uðu um sextán pró­sent á síð­asta ­fisk­veiði­ári.  Síld­ar­vinnslan greidd­i ­lít­il­lega meira í veiði­gjöld á síð­asta fisk­veiði­ári og skýrist það af því að ­fé­lagið keypti tals­vert af afla­heim­ildum á tíma­bil­inu.

Veiðigjöld fyrirtækja.

Afkom­a ­sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hefur verið með ágætum á síð­ustu árum. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hag­stofu Íslands­ hefur hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBIT­DA) verið hár allt fram til árs­ins 2013 (tölur ná ekki lengra).  

Sjávarútvegur

Afkoma HB Granda á árinu 2014 og á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015 hef­ur auk þess verið með ágætum og gefur það góða vís­bend­ingu um afkomu í grein­inni í heild þar sem HB Grandi á um tólf pró­sent af útgefnum afla­heim­ildum í öllum helst­u ­teg­und­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None