Ólögleg fíkniefni mælast í skólpkerfum Reykjavíkur

Öll algengustu ólöglegu fíkniefnin á markaðnum er að finna í mælanlegu magni í skólpkerfum Reykjavíkur. Niðurstöður nýrrar doktorsrannsóknar sýna töluverðar sveiflur milli daga. Lyfjafræðingur segir að með aðferðinni verði hægt að áætla neyslu fíkniefna.

Kókaín
Auglýsing

Amfetamín, kóka­ín, kanna­bis og metam­fetamín eru á meðal þeirra ólög­legu fíkni­efna sem finn­ast í skólp­kerfum Reykja­vík­ur. Þetta stað­festa nið­ur­stöður dokt­ors­rann­sóknar Arn­dísar Sue Ching Löve lyfja­fræð­ings hjá rann­sókna­stofu Háskóla Íslands í lyfja- og eit­ur­efna­fræði.  

„Í fyrsta lagi vildum við vita hvort hægt væri að mæla þessi efni í frá­rennsl­inu yfir höf­uð,” segir Arn­dís og bendir á að Íslend­ingar noti mun meira vatn heldur en aðrar Evr­ópu­þjóð­ir, eða allt að þrisvar sinnum meira. Auk þess má gera ráð fyrir að hita­veitan minnki stöð­ug­leika efn­anna í frá­veit­unni.

Meira magn af kóka­íni og MDMA eftir helg­ina

Hún safn­aði skólp­sýnum á sjö daga tíma­bili síð­ast­liðið sum­ar, 27. júní til 3. júlí, í skólp­hreinsi­stöð Veitna við Kletta­garða. Þangað kemur skólp frá um það bil helm­ingi Reykja­víkur og nágrennis, að mið­bænum með­töld­um. 

Auglýsing

„Við vildum hafa mið­bæ­inn með í mæl­ing­un­um, þar sem stórum hluta fíkni­efn­anna er lík­lega neytt þar á skemmti­stöð­um” segir hún. 

Efnin skila sér út úr lík­ama neyt­enda aðal­lega með þvagi í frá­rennsl­is­vatn­ið. Ski­mað var fyrir amfetamíni, metam­fetamíni, kóka­íni, MDMA, sem er virka efnið í e-töfl­um, THC, sem er virka efnið í kanna­bis, og metýlfenídati, eða rital­ini. Öll efnin mæld­ust í skólp­inu alla sjö dag­ana, en meira var af kóka­íni og MDMA yfir helg­ina heldur en virku dag­ana. Hin efnin voru með jafn­ari dreif­ingu og ganga má út frá því að neyslan á þeim sé jafn­ari. Mest  mæld­ist af THC og amfetamíni, en kókaín fylgdi þar á eft­ir. 

Arndís Sue Ching LöveArn­dís segir vatns­notkun og frá­rennsli mjög mis­mun­andi eftir löndum og borgum heims­ins, en nið­ur­stöður hennar leiða í ljós að nú er hægt með óyggj­andi hætti að mæla fíkni­efni í skólp­inu hér eins og erlend­is. 

Með mæl­ing­unum er með góðu móti hægt að skoða viku­sveiflur í notkun á fíkni­efn­um. Arn­dís bendir á að brýn nauð­syn sé á að safna næst sýnum á öðrum árs­tímum til að sjá mun­inn og hvort það sé sam­ræmi á milli nið­ur­staðn­anna. Mun meira sé að ger­ast á sumrin og nefnir þar ferða­menn, úti­legur og stórar hátíðir sem dæmi. 

Hægt að finna út notkun fíkni­efna eftir úti­há­tíðir

Arn­dís hóf rann­sókn sína haustið 2014, í sam­starfi við OR og Ver­kís, og mun halda henni áfram þar til hægt verður að bak­reikna styrk­inn og yfir­færa nið­ur­stöð­urnar á heild­ar­notkun efn­anna. Til þess þarf að taka fleiri sýni og reikna inn breytur eins og fjölda fólks á svæð­inu, flæði vatns­ins og fleira. Eftir að þær nið­ur­stöður fást er hægt að bera Ísland saman við önnur lönd. 

„Með þess­ari aðferð er hægt að fá nið­ur­stöður á mjög skömmum tíma og þannig hægt að meta sveiflur í notkun sem og aðgengi að efn­un­um” segir Arn­dís. „Það er aðal­á­vinn­ing­ur­inn með þess­ari aðferð­ar­fræð­i.” 

Hún bendir á að áhuga­vert væri að taka sýni fyrir og eftir stórar skemmt­anir eða úti­há­tíð­ir, eins og Menn­ing­arnótt eða Þjóð­há­tíð í Eyj­um. Með því er hægt að sjá með réttum útreikn­ing­um, nán­ast svart á hvítu, hversu miklu magni fíkni­efna var neytt á tíma­bil­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None