Opnari umræða tók karlana úr sambandi

Mikil breyting hefur orðið í þróun ófrjósemisaðgerða á landinu þegar litið er til kynjanna. Fyrir 20 árum fóru um 600 konur í aðgerðina ár hvert og um 30 karlar. Nú fara mun fleiri karlar en konur í aðgerðina. Opnari umræða og neyðarpillan talin ástæðan.

landspítali lsh kvennadeild
Auglýsing

Mun fleiri karlar en konur fara í ófrjó­sem­is­að­gerðir hér á landi á hverju ári. Sam­kvæmt nýj­ustu tölum frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu fóru fjórum sinnum fleiri karlar í ófrjó­sem­is­að­gerð árið 2014 heldur en kon­ur; eða 463 karlar og 121 kona.

Auglýsing

Þetta er mikil breyt­ing frá því sem áður var. Sé litið á þróun síð­ustu ára­tuga þá fóru marg­falt fleiri konur í ófrjó­sem­is­að­gerðir heldur en karl­ar. Árið 1983 lögð­ust 651 kona undir hníf­inn og ein­ungis 28 karl­ar. Sjö árum síð­ar, 1990, voru hlut­föllin svip­uð; 543 konur og 28 karl­ar, sami fjöldi og 1983.

Það var svo upp úr alda­mótum sem kynja­hlut­föllin tóku að jafn­ast. Árið 2005 fóru nær jafn margar konur og karlar í aðgerð­ina, 280 konur og 285 karl­ar.

Í góð­ær­inu hélt þessi þróun áfram og varð skýr­ari eftir efna­hags­hrunið 2008. Fjöldi karla sem fór í ófrjó­sem­is­að­gerðir fór stíg­vax­andi og sífellt færri konur fóru í aðgerð­ina.

Opn­ari umræða meðal karla jók fjöld­ann

Þor­steinn Gísla­son, þvag­færa­skurð­læknir á Land­spít­al­anum og Lækna­stöð­inni Glæsi­bæ, segir fjölgun ófrjó­sem­is­að­gerða meðal karla, sem er oft kölluð „herra­klipp­ing”, skýr­ast af opn­ari umræðu og minnk­andi for­dóm­um.

„Menn höfðu miklar rang­hug­myndir um þessar aðgerð­ir, til dæmis varð­andi kyn­líf. Þeir eru ófeimn­ari að ræða þetta núna sín á milli og eru almennt fróð­ari um þetta,” segir hann.

Engar breyt­ingar hafa orðið á eðli aðgerð­anna á síð­ustu 30 árum að sögn Þor­steins, þó að tækni­lega séu þær enn örugg­ari og fljót­legri í dag en áður.

„En það er enn jafn erfitt að snúa ófrjó­sem­is­að­gerð­inni til baka og áður,” segir hann. „Þegar maður ræðir við menn í þessum hug­leið­ingum er mik­il­vægt að gera þeim grein fyrir því að það er erfitt að snúa þessu við, en það er hægt. Maður þarf að vera mjög ákveð­inn í þessu og mak­inn að sama skapi. Þetta er síð­asta stigið í getn­að­ar­vörn.”

Ófrjó­sem­is­að­gerðir eru algengastar hjá báðum kynjum þegar fólk er á ald­urs­bil­inu 35 til 44 ára.

Neyð­ar­pillan breytti miklu

Kostn­aður við ófrjó­sem­is­að­gerðir hjá körlum er að sögn Þor­steins í kring um 39 þús­und krón­ur, sem Trygg­inga­stofnun greiðir að fullu. Aðgerðin sjálf er mun ein­fald­ari hjá körlum heldur en konum og er fram­kvæmd með deyf­ingu og þeir geta farið heim sam­dæg­ur­s. 

Svæf­ing er nauð­syn­leg þegar kemur að konum og skorið er í gegn um kvið­ar­holið. Eggja­leið­urum er lokað til að koma í veg fyrir að egg og sáð­frumur mæt­ist. Konur hafa blæð­ingar eins og áður. Fækkun ófrjó­sem­is­að­gerða meðal kvenna má meðal ann­ars rekja til til­komu neyð­ar­getn­að­ar­varn­arpill­unnar svo­nefndrar til lands­ins árið 1998, sem geta verið teknar eftir sam­far­ir, sem og öfl­ugs fræðslu­starfs og opn­ari umræðu, sam­kvæmt Land­lækn­is­emb­ætt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None