Píratar samþykkja stefnu um orkuskatt á stóriðju

Píratar ætla að láta stóriðjufyrirtæki borga „eðlilega“ tekjuskatta í ríkissjóð. Semjist ekki um það vilja þeir leggja á fyrirtækin orkuskatt sem gæti skilað milljörðum á ári. Píratar mælast með tæplega 40 prósent fylgi.

Píratar
Auglýsing

Stefnu­til­laga um stór­iðju og þunna eig­in­fjár­mögnun var ­sam­þykkt á félags­fundi Pírata þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn með 33 atkvæðum get­gn 24. Sam­kvæmt stefn­unni vilja Píratar end­ur­skoða fjár­fest­inga­samn­inga við stór­iðju­fyr­ir­tæki og láta þau borga „eðli­lega“ ­tekju­skatta í rík­is­sjóð. Semj­ist ekki um end­ur­skoðun samn­ing­anna innan sex ­mán­aða frá því að við­ræður hefj­ist vilja Píratar leggja sér­stakan orku­skatt á þau sem skila á rík­is­sjóði sömu eða hærri upp­hæðum og stór­iðjan myndi greiða ef hún væri ekki und­an­þegin almennum reglum um tekju­skatt. Píratar vilja auk þess ­festa í lög tak­mörk á vaxta­greiðslum sem fyr­ir­tæki geta dregið frá skatt­stofn­i sín­um.

Píratar mælast langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins og fylgi þeirra hefur mælst yfir 30 ­pró­sent í flestum könn­unum frá því í byrjun árs 2015. Í nýj­ustu könnun MMR, sem fram­kvæmd var dag­ana 12-20 jan­úar 2016, mæld­ist fylgi flokks­ins 37,8 pró­sent og hefur aldrei mælst hærra.­Meira en helm­ingur ungs fólks, á aldr­inum 18 til 29 ára segj­ast myndu kjósa Pírata í næstu Alþing­is­kosn­ing­um, eða 54 pró­sent. 

Kostar rík­is­sjóð 3 til 5 millj­arða á ári

Þunn eig­in­fjár­mögnun snýst um það þegar fyr­ir­tæki er fjár­magnað að mestu, eða öllu ­leyti, með láns­fé. Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins er lítið eða ekk­ert. Lánin sem ­fyr­ir­tæki sem þessi fá eru oft frá tengdum fyr­ir­tækj­um, þ.e. innan söm­u ­sam­stæðu. Fyr­ir­komu­lagið er þekkt og víða not­að. Til­gangur þess er að koma í veg fyrir að það mynd­ist tekju­skatt­stofn þar sem allur hagn­aður fer í vaxta­kostnað af lán­um.

Auglýsing

Þunn eig­in­fjár­mögnun er víð­ast hvar bönnuð í iðn­væddum ríkj­um. Í grein­ar­gerð sem ­fylgir álykt­un­inni sem Píratar hafa nú sam­þykkt er rifjað upp að Al­þjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi lagt til við íslensk stjórn­völd eftir hrunið að ­tekið yrði fyrir hana „en af ein­hverjum ástæðum sáu stjórn­völd ekki ástæðu til­ að fara að þeirri ráð­legg­ingu, og hefur rík­is­sjóður orðið af miklum tekjum vegna þessa eða milli 3 og 5 millj­arða á ári“.

Fá ­sex mán­uði til að semja, ann­ars leggst á orku­skattur

Í stefnu Pírata er lagt til að lög­fest skuli tak­mörk á þær vaxta­greiðslur sem ­fyr­ir­tæki geti dregið frá skatt­stofni við 30 pró­sent af hagn­aði fyr­ir­ fjár­magnsliði, skata, afskriftir fasta­fjár­muna og um nið­ur­færsl­ur. „Þannig verði 70 pró­sent af EBITDA ávallt skatt­stofn, óháð vaxta­greiðsl­u­m ­fyr­ir­tæk­is­ins“.

Einnig vilja Pírata að leitað verði end­ur­skoð­unar fjár­fest­inga­samn­inga við þau ­fyr­ir­tæki sem „með slíkum samn­ingum hafa und­an­þegið sig eðli­leg­um ­tekju­skatts­greiðsl­u­m“. Í end­ur­skoð­uðum samn­ingum verði eðli­legar skatt­tekj­ur ­tryggðar og einnig séð til þess að upp­safnað tap fyrri ára verði ekki notað til­ að koma í veg fyrir eðli­legar tekju­skatts­greiðslur fyr­ir­tækj­anna fram­veg­is.

Í stefnu Pírata segir að ef samn­ingar tak­ist ekki um end­ur­skoð­un fjár­fest­inga­samn­inga innan sex mán­aða frá upp­hafi við­ræðna verði lagður á sér­stakur orku­skattur sem skili þjóð­fé­lag­inu sömu eða hærri upp­hæðum og ef ­fyr­ir­tækin væru ekki und­an­þegin almennum reglum um tekju­skatt.  

Sú að­ferð­ar­fræði minnir nokkuð á þá sem sitj­andi rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og ­Sjálf­stæð­is­flokks beitti í áætlun sinni um losun hafta. Þar var kröfu­höf­um ­föllnu bank­anna boðið að semja um stöð­ug­leika­fram­lag innan til­tek­ins tímara­mma. Ef samn­ingar tækjust ekki, og slit búa þeirra í kjöl­farið kláruð, mynd­i ­leggj­ast á stöð­ug­leika­skatt­ur.

Ekki að finna upp hjólið

Pírat­ar eru ekki að finna upp hjólið með því að leggja til að lögum verði breytt til að ­taka á þess­ari stöðu.

Í októ­ber 2013 lögðu Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, og ­þing­menn­irnir Svan­dís Svav­ars­dóttir og Stein­grímur J. Sig­fús­son fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um ­tekju­skatt í þeim til­gangi að lög­festa reglur um þunna eig­in­fjár­mögnun og að auki eru lagðar til nokkrar nauð­syn­legar breyt­ingar á tekju­skattslög­unum svo taka megi regl­urnar upp í lög­in“. Á meðal þeirra breyt­inga sem lagð­ar­ voru til í frum­varp­inu er sama breyt­ing og nú er orðin að stefnu Pírata, um að ­vaxta­greiðslur sem fyr­ir­tæki geti dregið frá skatt­stofni við 30 pró­sent af hagn­aði fyrir fjár­magnsliði, skata, afskriftir fasta­fjár­muna og um ­nið­ur­færsl­ur. Í frum­varpi þeirra var hins vegar engin til­laga um orku­skatt.

Vert er að taka fram að öll þrjú höfðu setið í rík­is­stjórn fram á vor­daga 2013. Sú rík­is­stjórn beitti sér ekki fyrir breyt­ingu á lögum um ­tekju­skatt til að koma í veg fyrir að þunn eig­in­fjár­mögn­un.

Málið fékk efn­is­lega með­ferð í þing­inu og hefur farið í gegn­um t­vær umræð­ur. Föstu­dag­inn 16. maí 2014, fyrir einu og hálfu ári síð­an, kusu ­þing­menn um að vísa mál­inu til rík­is­stjórn­ar­innar til frek­ari með­ferð­ar, að lok­inni annarri umræðu. 53 þing­menn ­sam­þykktu þá ráð­stöf­un. Eng­inn var á móti.

Síðan hefur lítið heyrst af fram­vindu máls­ins. Katrín Jak­obs­dótt­ir beindi fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um ­málið í lok árs 2015. Þar spurði Katrín hvort unnið væri að breyt­ingum á lög­um um tekju­skatt varð­andi þunna eig­in­fjár­mögnun á grund­velli frum­varps­ins sem vísað var til rík­is­stjórn­ar­innar og ef svo er, hvenær ráð­herr­ann ætl­aði að kynna til­lögur á grund­velli vinn­unn­ar.

Í svari Bjarna kom fram að ráðu­neytið fylgd­ist grannt með­ ­sér­stöku verk­efni sem unnið er á vegum OECD undir enska heit­inu Base Eros­ion and Profit Shift­ing sem á íslensku gæti lagst út sem Rýrnun og til­færsla skatt­stofna. „Sú vinna miðar meðal ann­ars að því að leita leiða til að hamla ­gegn mis­notkun skatta­reglna til und­an­skota frá skatti, þar með talið óhóf­leg­um eða jafn­vel óeðli­legum frá­drætti vaxta­kostn­að­ar­,[...] þess er þó vart að vænta að frum­varp um mögu­lega tak­mörkun vaxta­frá­dráttar eða þunna eig­in­fjár­mögn­un liggi fyrir á þessu þingi nema þá til kynn­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None