Tíu staðreyndir um íbúðalánamarkaðinn

Íslenska ríkið er langsamlega umsvifamest á íbúðalánamarkaði eftir að það tók yfir Íslandsbanka að fullu sem eigandi. Mismunandi kjör eru í boði á markaðnum fyrir neytendur, og þurfa þeir að skoða vel markaðinn áður en tekin er ákvörðun um lántöku.

hús íbúð fasteignir
Auglýsing

1.       Við­skipta­bank­arnir þrír, Lands­bank­inn, Arion ­banki og Íslands­banki, eru lang­sam­lega umfangs­mestir í veit­ingu nýrra hús­næð­is­lána, með yfir 90 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Íbúða­lána­sjóður kemur þar á eft­ir, en líf­eyr­is­sjóðir hafa einnig verið að sækja í sig veðr­ið. Kvika, ­sam­ein­aður banki MP banka og Straums, er með litla hlut­deild hús­næð­is­lána, enda ­með sér­hæfðar áherslur gagnar eigna­meiri við­skipta­vinum og síð­an fjár­fest­inga­banka­starf­semi.

2.       Hvernig þjón­ustu veita lána­stofn­anir þeim sem eru að kaupa eignir í fyrsta sinn? Láns­hlut­fall íbúða­lána Lands­bank­ans er allt að 85% af mark­aðsvirði eða verð­mati eign­ar, 70% íbúða­lán til­ allt að 40 ára og 15% við­bót­ar­lán til allt að 15 ára . Þá er lán­töku­gjald, sem er ofta 1 pró­sent af verð­mæti eigna, fellt nið­ur. Við fyrst­u fast­eigna­kaup er lán­töku­gjald fellt niður hjá Arion banka. Þar að auki hækk­ar há­marks­láns­hlut­fall úr 80% í 85% fyrir þann hluta af mark­aðsvirði eignar sem er undir 30 millj­ónum króna, á lánum sem eru óverð­tryggð að a.m.k. 25% hluta. Ís­lands­banki veitir 50 pró­sent afslátt af lán­töku­gjaldi, en lánar tvær millj­ónir króna til við­bót­ar, með 10 ára jafn­greiðslu­láni, en þó ekki meira en ­sem nemur 90 pró­sent af mark­aðsvirði. Íbúða­lána­sjóður lánar að hámarki 80 pró­sent lán, verð­tryggt, en hámarks­lán er 24 millj­ón­ir. Líf­eyr­is­sjóð­irnir lána flest­ir að hámarki 75 pró­sent lán.

3.       Íslenska ríkið á Lands­bank­ann, Íslands­banka og ­Í­búða­lána­sjóð nán­ast að fullu. Eign­ar­hlut­ur­inn í Lands­bank­anum er 98 ­pró­sent, Íslands­banka 100 pró­sent og Íbúða­lána­sjóði 100 pró­sent. Við­skipta­kjör eru þó breyti­leg, eins og sést meðal ann­ars á þjón­ust­unni sem í boði er fyr­ir­ þá sem eru að kaupa eign í fyrsta sinn.

Auglýsing

4.       Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi og LSR, hafa breytt lána­skil­yrðum sínum á und­an­förn­um ­mán­uð­um, með það fyrir augum að bjóða sjóðs­fé­lögum hag­stæð kjör á lánum til­ ­í­búða­kaupa. Sjóð­irnir bjóða 75 pró­sent veð­hlut­fall, en vaxta­kjörin sem í boði eru hjá þeim eru betri en hjá við­skipta­bönk­unum og Íbúða­lána­sjóði. Til­ ­sam­an­burðar eru vextir á verð­tryggðum lánum að með­al­tali um 3,7 pró­sent hjá við­skipta­bönk­un­um, og frá rúm­lega 7 pró­sentum á óverð­tryggðum lán­um.  Bestu kjör líf­eyr­is­sjóða eru 3,6 pró­sent á verð­tryggðum lán­um, og frá 6,49 pró­sent á óverð­tryggðum lán­um, og það fast í þrjú ár. Mun­ur­inn er umtals­verð­ur, einkum þegar kemur að óverð­tryggðum lán­um. ­Fyrir þá sem geta tekið 75 pró­sent lán, og fjár­magnað þá með eigið fé 25 pró­sent af kaup­um, eru lána­kjör líf­eyr­is­sjóða hag­stæðust, en þau eru í boði fyr­ir­ ­sjóð­fé­laga, eins og áður sagð­i. 

Íslensku bankarnir. Efnahagsleg staða þeirra. Mynd: Morgunblaðið.

5.       Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna býður þó best­u ­kjör líf­eyr­is­sjóða, sé miðað við fasta vexti, en vaxta­töflur líf­eyr­is­sjóða taka breyt­ingum eftir því sem þurfa þyk­ir, að mati stjórn­enda sjóð­anna. Hjá Gildi eru hag­stæð­ustu kjör­in veitt til þeirra sem taka 65 pró­sent lán eða lægra. LSR býður bestu vexti á breyti­legum vöxt­um, eða 3,13 pró­sent.

6.       Hversu stór er fast­eigna­mark­að­ur­inn og hvert er heild­ar­virði fast­eigna á land­inu? Heild­ar­mat fast­eigna, miðað við fast­eigna­mat árið 2016, nam 5.755 millj­örðum króna og hækk­aði um 5,8 pró­sent milli ára. Sé miðað við árlega lands­fram­leiðslu er heild­ar­mat fast­eigna 2,8 föld árleg lands­fram­leiðsla.

7.       Stærstur hluti fast­eigna er í fjöl­býli en heild­ar­mat íbúða í fjöl­býli á Íslandi er 3.844 millj­arðar króna, sam­kvæmt fast­eigna­mati fyrir 2016.

Ríkið er langsamlega umfangsmest á fjármálamarkaði, eftir yfirtökur á Íslandsbanka. Arion banki er í söluferli, en söluandvirðið rennur til ríkisins.

8.       Fastir vextir verð­tryggðum lán­um ­rík­is­fjár­mál­stofn­anna þriggja, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Íbúða­lána­sjóðs, eru breyti­leg­ir. Hjá Íbúða­lána­sjóði eru þeir 4,2 pró­sent, hjá Lands­bank­an­um 3,85 pró­sent og Íslands­banka 3,95 pró­sent.

9.       Ekki eru gerðar sömu kröfur til líf­eyr­is­sjóða og ­banka, þegar kemur að gjöldum og sköttum á starf­sem­ina. Það er ein ástæða þess að líf­eyr­is­sjóðir geta boðið betri kjör. Bank­arnir hafa vakið athygli á þess­ari ­stöðu, og talað um sam­keppn­is­lega mis­mun­un.

10.   Hjá spari­sjóðum sem starf­andi eru í land­inu, er í gildi var­færin útlána­stefna. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vefnum spari­sjod­ur­inn.is, er lánað til íbúða­kaupa allt að 60 pró­sent af fast­eigna­mati, og síð­an við­bót­ar­lán upp í 80 pró­sent, þar sem miðað er við mark­aðsvirð­i/­kaup­verð. ­Vaxta­tafla er sam­bæri­leg við Íbúða­lána­sjóð. „Við ákvarð­anir á vöxtum vegna verð­tryggðra íbúð­ar­lána er horft á á­vöxt­un­ar­kröfu verð­tryggðra skulda­bréfa útgef­inna m.a. af Íbúð­ar­lána­sjóð­i, ­bönkum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum á Íslandi, fjár­mögn­un­ar­kostnað spari­sjóðs­ins, eig­in­fjár- og lausa­fjár­bind­ingu vegna íbúð­ar­lána, rekstr­ar­kostn­að­ar­, smá­sölu­á­lagn­ingu, álagn­ingu vegna útlána­á­hættu og stjórn­valds­fyr­ir­mæla,“ seg­ir á vef spari­sjóð­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None