Starfsmaður Chacao sýslu í Venesúela dreifir skordýraeitri í skólastofu til að koma í veg fyrir útrbreiðslu zika-veirunnar í landinu
Starfsmaður Chacao sýslu í Venesúela dreifir skordýraeitri í skólastofu til að koma í veg fyrir útrbreiðslu zika-veirunnar í landinu
Auglýsing

1 - Veiran greind­ist fyrst í apa í Úganda árið 1947. Fyrsta til­fellið sem greind­ist í manni var árið 1952. Síðan hafa flest til­felli greinst í Afr­íku, Suð­austur Asíu og á Kyrra­hafs­eyj­unum þar til far­ald­ur­inn braust út í Bras­ilíu 2015. 

2 - Algeng­ustu ein­kenni Zika-veirunnar eru hiti, útbrot, verkur í liðum og roði í aug­um. Ein­ungis einn af hverjum fimm sem eru með veiruna fá ein­kenni. Veiran sem slík er ekki mjög alvar­leg, ein­ungis þrír hafa lát­ist af hennar völdum í far­aldr­inum í Bras­il­íu. Alvar­leg­ustu afleið­ingar veirunnar er að finna í nýburum þegar móð­irin hefur verið sýkt, að því er talið er. 

3 - Talið er að um ein og hálf milljón sé nú sýkt af veirunni, þar af um milljón í Bras­il­íu. Veiran hefur þó greinst í að minnsta kosti 20 öðrum löndum í Suð­ur- og Miðam­er­íku og í Kar­ab­íska haf­inu eins og í Kól­umbíu, El Salvador, Haí­tí, Hondúras, Mexíkó, Venes­ú­ela og Puertó Ríkó. 52 hafa greinst með veiruna í Banda­ríkj­un­um. Öll til­felli voru tengd ferða­lög­um. Þá hafa til­felli einnig greinst í Evr­ópu og Ástr­al­íu.  

Auglýsing

4 - Zika-veiran dreif­ist með bitum moskítóflugna (Aedes aeg­ypti mosquito). Flug­urnar bíta mest á dag­inn og þá helst fætur og hendur fólks. Þær eru algengar um mest allan heim þar sem lofts­lag er heitt.  

5 - Nýlega kom í ljós að veiran getur smit­ast milli fólks með kyn­mök­um. Til­felli greind­ist í Texas­fylki í Banda­ríkj­unum þar sem íbúi veikt­ist af veirunni eftir að hafa haft mök við smit­aðan mann. 

6 - Talið er að veiran valdi svoköll­uðu höf­uðs­mæð­ar­heil­kenni hjá fóstrum ef barns­haf­andi konur eru smit­að­ar. Heil­kennið er alvar­legur fæð­ing­ar­kalli hjá nýbur­um. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur að veiran hafi valdið um 4.000 til­vikum þess í Bras­ilíu árið 2015, sam­an­borið við 147 til­vik 2014. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa hvatt brasil­ískar konur til að seinka barn­eign­um. Tengsl Zika-veirunnar og höf­uðs­mæð­ar­heil­kenni hefur þó ekki verið sann­að, þó að tengslin liggi fyr­ir. Stað­fest eru meira en 400 til­felli barna með heil­kennið sem höfðu veiruna í blóð­in­u. 

7 - Það verður ekki byrjað að bólu­setja gegn veirunni fyrir en eftir eitt og hálft ár. Um 15 fyr­ir­tæki og starfs­hópar vinna nú að þróun bólu­efn­is­ins og það er langt ferli, að sögn Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­inn­ar. 

8 - Miklar umræður hafa skap­ast um áhrif Zika-veirunnar á kom­andi ólymp­íu­leika í Rio de Jan­eiro, höf­uð­borg Bras­il­íu, í haust. Yfir­völd hafa lýst því yfir að hún eigi ekki að hafa nein áhrif og engin plön munu breyt­ast. 

9 - Heil­brigð­is­yf­ir­völd víða um heim hafa ráð­lagt ófrískum konum frá því að ferð­ast til Mið- og Suður Amer­íku, þar sem veiran er skæðust, á meðan far­ald­ur­inn geysar. 

10 - Brasil­ísk stjórn­völd ætla að ráð­ast í her­ferð gegn veirunni um helg­ina þar sem um 220.000 her­menn munu ganga á milli húsa og dreifa bæk­lingum og fræðslu­efni. Þá verða heim­ili fólks úðuð með eitri til að drepa moskítóflug­una og lirfur hennar sem dreifa veirunn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiErlent
None