Arion banki færir niður lán til Havila um milljarða króna

Útrás íslenskra banka í norska olíugeirann virðist ætla að enda með milljarða tapi tveimur árum eftir að hún hófst. Arion banki færir niður verulega fjárhæð vegna lána til Havila.

Havila
Auglýsing

Arion banki færði veru­lega var­úð­ar­nið­ur­færslu á lán til­ er­lendra fyr­ir­tækja í þjón­ustu­starf­semi tengdri olíu­leit, í kjöl­far erf­ið­leika á þeim mark­aði, á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015. Um er að ræða lán sem bank­inn veitti norska félag­inu Havila Shipp­ing ASA í júlí 2014 upp á 4,5 millj­arða króna. Ekki er til­greint sér­stak­lega í árs­reikn­ingi Arion banka, sem birtur var í gær, um hversu mikið lánið til Havila var fært niður en þar kemur hins veg­ar fram að hrein virð­is­breyt­ing lána var 3,1 millj­arður króna á árinu. Í af­komutil­kynn­ingu Arion banka kemur fram að nið­ur­færsl­urnar séu að mestu vegna láns­ins til Havila og á lánum sem bank­inn ­yf­ir­tók frá AFL –spari­sjóði á árinu 2015.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi voru lánin sem komu frá AFLi færð ­niður á öðrum árs­fjórð­ungi síð­asta árs. Um þriggja millj­arða króna var­úð­ar­nið­ur­færsla var færð á efna­hags­reikn­ing bank­ans á fjórða árs­fjórð­ungi. Sú ­nið­ur­færsla er því að mestu leyti vegna láns­ins til Havila og ljóst að bank­inn ­reiknar með miklum afföllum vegna þess.

Auglýsing

Lán­uðu millj­arða til Havila á síð­ustu tveimur árum

Íslenskir bankar hafa ekki verið mikið í þvi að lána til­ er­lendra fyr­ir­tækja frá hruni, enda bundnir í höftum og að langstærstu leyt­i fjár­magn­aðir með inn­lánum almenn­ings sem færðir voru til þeirra með handafli neyð­ar­lag­anna haustið 2008.

Í lok árs 2013 barst hins veg­ar til­kynn­ing um að Íslands­banki hefði tekið þátt í rúm­lega sjö millj­arða króna ­sam­banka­láni til Havila. Nokkrum mán­uðum síðar til­kynnti Arion banki að hann hefði sömu­leiðis lánað norska félag­inu umtals­verða fjár­hæð, um 4,5 millj­arða króna. Óljóst er hvað olli því að norskt félag á mark­aði sem hafði gengið mjög vel árum saman fóru að leita til íslenskra banka til að fá fjár­mögn­un. Vextir eru að jafn­aði lægri í Nor­egi en hér­lendis þar sem norskir bankar geta fjár­magnað sig á alþjóða­mörk­uðum á hag­stæð­ari kjörum en íslenskir bank­ar. 

Havila, sem á 27 ­skip sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, hefur verið eitt af leið­and­i ­fé­lögum í geir­anum á und­an­förnum árum. Havila rambar nú á barmi gjald­þrots og er í við­ræðum við kröfu­hafa sína um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuld­um. Félagið færð­i ­niður virði skipa­flota síns fyrr í þessum mán­uði um 21 millj­arð króna. Það mun birta árs­upp­gjör sitt í næstu viku og þá kemur í ljós hvernig rekstur þess gekk á síð­asta ári.

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur fallið úr um 115 dölum á tunnu í tæpa 32 dali frá sumr­inu 2014. Til­ að vinnsla á olíu í Norð­ur­sjó borgi sig er talið að verðið þurfi að vera um 60 dalir á tunnu.

Bank­arnir vilj ekki upp­lýsa um tap á lánum

Íslands­banki birti árs­reikn­ing s­inn fyrir árið 2015 á þriðju­dag. Þar kom fram að bank­inn hefði bók­að virð­is­rýrnun á stöðu sína á lánum til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Ljóst er að sú rýrnun snýr að ann­ars vegar að lánum til Havila og hins vegar til íslenska félags­ins Fáfnis Offs­hore. Í reikn­ingnum kom fram að eitt pró­sent af útlána­safni bank­ans var til fyr­ir­tækja ­sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Alls voru útlán til við­skipta­vina 665,7 millj­arð­ar­ króna um síð­ustu ára­mót og því námu lán til geirans tæpum sjö millj­örðum króna. Ís­lands­banki vill ekki gefa upp hversu mikið bank­inn hefur fært umrædd lán ­nið­ur. Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um stöðu Fáfnis og lán íslenskra banka til Havila á síð­ustu vik­um.

Arion banki vill ekki gefa upp­ hversu mikið bank­inn hefur fært niður lán til Havila. Hann tjáir sig ekki um ­mál­efni ein­stakra við­skipta­vina. Í árs­reikn­ingi hans segir hins veg­ar: „Arion ­banki hefur ekki farið var­hluta af því ástandi sem nú ríkir á alþjóð­leg­um ol­íu­mark­aði en bank­inn hafði lánað nokkra fjár­hæð til þjón­ustu­fyr­ir­tækja í þessum iðn­aði. Heild­ar­um­fang þess­ara lána var innan við 1% af lánum til­ við­skipta­vina og hefur bank­inn fært við­eig­andi var­úð­ar­nið­ur­færslu vegna þeirra.“

Útrásin í norska olíu­iðn­að­inn orðin að póli­tísku hita­máli

Útrás íslenskra banka í norska ol­íu­iðn­að­inn, og sér­stak­lega fjár­fest­ingar þeirra og íslenskra líf­eyr­is­sjóða í Fáfni og Havila, varð að póli­tísku máli í gær þegar Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, gerði hana að umtals­efni á Alþingi. Frosti lýsti yfir áhyggjum sínum af þess­ari út­rás. Það sé stefna þess­ara banka að fara í aðra útrás og fjár­festa erlend­is, ­meðal ann­ars á meðan öll þjóðin sé í höft­um. Þá sé ekki verið að dreifa á­hætt­unni heldur þjappa henni sam­an, „inn í ein­hvern geira sem við höfum ekk­ert ­mikið vit á, norskan olíu­iðn­að.“ 

Hann kall­aði í kjöl­farið eftir því að Íslands­banka verð­i ­sett ný eig­enda­stefna sem tak­marki mjög mögu­leika bank­ans til þess að fara í út­rás til útlanda. Íslands­banki sé orð­inn alfarið rík­is­banki og gera verði við hann nýjan samn­ing um þetta sem fyrst. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None