Færri frumvörp frá ríkisstjórn en síðustu tuttugu ár

alþingi þing althingi
Auglýsing

Ekk­ert frum­varp frá rík­is­stjórn­inni bíður þess nú að vera tekið til umræðu á Alþingi. Rík­is­stjórnin hefur lagt fram 52 frum­vörp á yfir­stand­andi þingi. Það eru mun færri mál en hin tvö þingin sem rík­is­stjórnin hefur verið við völd. Það er einnig mun færri frum­vörp en nokkur rík­is­stjórn síð­ustu tutt­ugu árin hefur verið búin að leggja fram á þessum tíma. Þess ber einnig að geta að lengst af á þessum tíma kom þing ekki saman fyrr en í byrjun októ­ber, en frá árinu 2012 hefur það haf­ist í byrjun sept­em­ber. 

Fimm frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar hafa verið lögð fram eftir að þingið kom saman á ný eftir ára­mót og fimm frum­vörp til við­bótar hafa verið kynnt í rík­is­stjórn en eru ekki komin inn í þing­ið. Sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins þurfa frum­vörp, sem eiga að kom­ast á dag­skrá fyrir sum­ar­hlé, að ber­ast þing­inu fyrir lok mars­mán­að­ar. Það er eftir rétt rúman mán­uð.

Auglýsing


23 frum­vörp orðin að lög­um 

Það sem af er þessu þingi er búið að gera 23 frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar að lög­um. Þetta er einnig minna en á sama tíma und­an­farin tutt­ugu ár, eins og sjá má hér að neð­an. 



24 frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar eru til umfjöll­unar í nefndum eftir fyrstu umræðu, tvö bíða ann­arrar umræðu og þrjú bíða þriðju umræðu.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra hafa lagt fram lang­flest frum­vörp, eða 13 hvort. Það er tæpur helm­ingur allra frum­varpa rík­is­stjórn­ar­innar á þessu þingi. Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur lagt fram 5 frum­vörp og sömu sögu er að segja af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni heil­brigð­is­ráð­herra og Sig­rúnu Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra. Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur lagt fram fjögur frum­vörp og Ill­ugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra einnig. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra hefur lagt fram tvö frum­vörp og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra eitt frum­varp hvor. 

Þess ber þó að geta að af 19 þings­á­lykt­un­ar­til­lögum sem rík­is­stjórnin hefur lagt fram á þing­inu eru 15 þeirra til­lögur utan­rík­is­ráð­herra. Mörg mál sem koma inn í þingið í gegnum EES eru þings­á­lykt­an­ir.

Þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins dug­leg­astir að leggja fram frum­vörp

Þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem eru utan rík­is­stjórnar hafa verið dug­leg­astir við að leggja fram frum­vörp. Þeir hafa lagt fram 18 frum­vörp. Þing­menn Bjartrar fram­tíðar hafa lagt fram 15 frum­vörp og þing­menn VG einnig 15 frum­vörp. Þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins sem eru utan rík­is­stjórnar hafa lagt fram 11 frum­vörp, Sam­fylk­ing­ar­þing­menn hafa lagt fram 9 og Píratar 7.

Eitt frum­varp frá þing­manni hefur orðið að lögum á þessu þingi, og það var frum­varp Ögmundar Jón­as­sonar um sann­girn­is­bætur fyrir mis­gjörðir á stofn­unum eða heim­il­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None