Pólitíkin á Íslandi eitt vinsælasta aðhlátursefnið í útlöndum

Helstu pólitísku grínþættir heims hafa tekið Sigmund Davíð fyrir eftir atburði síðustu viku. John Oliver sagði viðtalið líkjast bílslysi í „slow motion“. Bretar og Ástralir taka Sigmund líka fyrir.

John Oliver gerði stólpagrín að viðtalinu við Sigmund Davíð
John Oliver gerði stólpagrín að viðtalinu við Sigmund Davíð
Auglýsing

Mynd­bönd með Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í aða­hlut­verki hafa farið víða á net­inu um helg­ina. Nýjasta vend­ingin varð í gær þegar John Oli­ver í Last Week Ton­ight, arf­taki Jon Stewart í Daily Show, tók Sig­mund Davíð fyr­ir. Oli­ver líkti við­tal­inu við for­sæt­is­ráð­herra í sænska rík­is­sjón­varp­inu við bílslys í „slow motion“ og bætti við að það væru vissu­lega bílar á Íslandi, þó að sumir haldi öðru fram. 

Breski umræðu­þátt­ur­inn vin­sæli Have I Got News For You gerði sér einnig mat úr við­tal­inu við Sig­mund. Stjórn­endur þátt­ar­ins fá til sín gesti þar sem farið er yfir mál­efni líð­andi stundar á léttum nót­um.  

Auglýsing

Sig­mundur var líka tek­inn fyrir í Ástr­al­íu, í einum vin­sælasta frétta­tengda grín­þætti lands­ins, The Weekly with Chalie Picker­ing. Picker­ing sýndi við­brögð Sig­mundar í áður­nefndu við­tali og sagði áhorf­endum að rétt við­brögð við erf­iðum spurn­ingum fjöl­miðla væru að „grafa holu sem maður kemst ekki upp úr“ og „stökkva svo ofan í hana.” Að lokum væri eina rétta leiðin að kenna kon­unni sinni um allt sam­an. 

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra varð ekki útundan í grín­inu um helg­ina. Við­tal við frétta­mann franska fjöl­mið­ils­ins Le Petit Journal hefur farið víða og sýnir Bjarna standa í ágangs­hörðum spurn­inga­flaumi við frétta­mann­inn. Frétta­mað­ur­inn spyr Bjarna, þegar hann til­kynnir að hann ætli að sitja áfram sem fjár­mála­ráð­herra hvort „það sé svona sem lýð­ræði virki á Ísland­i”. Bjarni spyr þá um hæl hvaðan frétta­mað­ur­inn sé, sem svarar um hæl að hann sé frá Frakk­landi. Við­brögð Bjarna: „Allt í lag­i.” 

Sænski frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Upp­drag Granskning gerði þátt um upp­ljóstrun á tengslum Sig­mundar Dav­íðs við aflands­fé­lagið Wintris og aðdrag­anda við­tals­ins sem frétta­mað­ur­inn Sven Berg­man og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son blaða­maður tóku við hann 11. mar­s. Hér má sjá óklippta útgáfu af því við­tali og hér má nálg­ast Upp­drag Granskning-þátt­inn um málið sem sýndur var á RÚV í síð­ustu viku.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None