Stöðug endurnýjun heilans alla ævi

Með hækkandi lífaldri vakna spurningar um getu fólks til að takast á við háan aldur. Hvernig er hugur okkar í stakk búinn til að takast á við þær áskoranir. Dr. Henning Kirk, sérfræðingur í öldrunarlækningum, svaraði þessum spurningum á málþingi á dögunum

Dr. Henning Kirk
Dr. Henning Kirk
Auglýsing

„Hugs­aðu með þér þegar þú vaknar á morgn­anna að lífið hefur lengst um 6 klukku­stund­ir. Á fjög­urra ára fresti getum við bætt við einu ári miðað við fólk sem var uppi fyrir 150 árum,“ segir Dr. Henn­ing Kirk, danskur sér­fræð­ingur í öldr­un­ar­lækn­ing­um. Hann hélt erindi undir yfir­skrift­inni Lengra líf - Meiri gáfur á mál­þingi um áskor­anir fyrir vinnu­mark­að­inn vegna hækk­andi lífald­urs sem haldið var þann 26. apríl á Grand Hótel á vegum aðila vinnu­mark­að­ar­ins og líf­eyr­is­sjóð­anna. Hann leit­að­ist við að svara spurn­ingum á borð við hvort hæfni heil­ans haldi í við lengri lífald­ur. Hann spurði sig hrein­lega hvort heil­inn geti fylgt eftir þessum hækk­andi lífaldri. 

For­dómar ein­kenna umræðu um háan aldur

Dr. Kirk segir að ákveðnir for­dómar hafi ein­kennt háan aldur og að margir hafi nei­kvæð við­horf til ell­inna. „Ég vil þó halda því fram að hár aldur bjóði einnig upp á ýmis góð tæki­færi og að hann sé ekki ein­ungis nei­kvæð­ur,“ segir hann og telur að það séu kostir og gallar við hækk­andi lífaldur þjóða. Það sé þó allt of mikið ein­blínt á slæmu hlið­arn­ar, því þær jákvæðu séu líka mjög marg­ar. 

Það verður að virkja heil­ann

„Við höldum áfram að end­ur­nýj­ast alla ævi. End­ur­nýjun heil­ans er alltaf í gang­i,“ segir dr. Kirk. Nýjar tauga­frumur mynd­ast fram eftir aldri en hann segir þó að þær mynd­ist ekki af sjálfu sér. Það verði að virkja heil­ann og hann bætir að for­vitni hjálpi þar til. Hann vill einnig leggja áherslu á það að heil­inn sé hluti af lík­am­anum og því sé lík­am­leg hreyf­ing góð fyrir heil­ann. Það sé mik­il­vægt að blóð­flæðið sé gott og að það sé vel hægt þrátt fyrir hækk­andi ald­ur. Hann segir einnig að húmor og gott skap sé jákvætt og gott og síðan en ekki síst góður svefn. Með því að sofa vel þá séum við að vinna úr upp­lýs­ingum dags­ins. 

Auglýsing

Önnur ráð til að örva heil­ann er að hlusta á tón­list og að leika sér með tungu­mál­ið, segir Dr. Kirk. Að æfa sig að tala önnur tungu­mál æfir heil­ann og gerir okkur gott. Hann segir að tón­listin upp­fylli þarfir heil­ans, hún örvi fólk lík­am­lega og and­lega. Sér­stak­lega sé gott að vera í and­lega góðu formi og það sé hægt með ýmsum leið­u­m. 

Margir kostir þess að eld­ast

Helstu kostir þess að eld­ast eru aukin þekk­ing, reynsla, hæfi­leik­ar, yfir­sýn og sam­skipta­hæfni, að mati Dr. Kirks. „Við höldum áfram að slípa sam­skipta­hæfn­ina eftir því sem við eld­umst.“ Svo ber að nefna sam­kennd­ina en hana telur hann aukast með aldr­in­um. 

Góðu frétt­irn­ar, að mati Dr. Kirk, eru þær að sam­kvæmt rann­sóknum hafi elli­glöp farið minnk­andi í okkar heims­hluta síðan árið 1980. Hann segir að gam­alt fólk fram­tíð­ar­innar muni því vera með betri heila­starf­semi en gam­alt fólk í dag. 

Ald­ur­inn sjálfur er ekki vanda­mál

„Aldur er ekki vanda­mál,“ segir hann. Hann telur að ef fólk eigi við vanda­mál að stríða í líf­inu þá geti það hugs­an­lega auk­ist með aldr­inum en ald­ur­inn sjálfur búi ekki til vanda­mál­ið. Að lokum bendir hann á að mik­il­vægt sé að end­ur­mennta sig og að halda sér fersk­um. Fór­dómum beri að mæta með upp­lýs­ingu og fræðslu og að allir þurfi að taka höndum sam­an. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBára Huld Beck
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None