Aukin verðbólga í kortunum samkvæmt könnun Seðlabankans

Eftir eitt ár verður verðbólgan komin í 3,2 prósent, samkvæmt könnun Seðlabankans, sem vitnað er til í fundargerð Peningastefnu nefndar Seðlabanka Íslands.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Sam­kvæmt könnun Seðla­banka Íslands á verð­bólgu­vænt­ingum mark­aðs­að­ila sem fram­kvæmd var í byrjun maí væntu þeir að verð­bólga yrði 3,2% eftir eitt ár, sem er 0,2 pró­sentum meira en í síð­ustu könnun í febr­úar síð­ast­liðn­um. Vænt­ingar þeirra um árs­verð­bólgu eftir tvö ár námu 3,4% eða ­svipað og í febr­ú­ar. Verð­bólgu­vænt­ingar þeirra til langs tíma hafa hækkað lít­il­lega frá síðust­u könnun en verið svip­aðar und­an­farið ár. 

Þetta kemur fram í fund­ar­gerð Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans sem birt var í dag.

Í henni kemur jafn­framt fram, að mark­aðs­að­ilar búist við að verð­bólga verði að með­al­tali 3,5% á næstu tíu árum sem er 0,2 pró­sentum hærra en þeir væntu í febr­ú­ar. Verð­bólgu­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði til fimm og tíu ára mælist heldur lægra en vænt­ingar mark­aðs­að­ila og var að með­al­tali um 3% í apríl eða svipað og verið hefur und­an­farna mán­uði.

Auglýsing

Um þessar mundir mælist 1,6 pró­sent verð­bólga, og hefur verð­bólga nú hald­ist vel undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði í meira en ár. Kaup­máttur launa hefur auk­ist um 11,6 pró­sent að með­al­tali á und­an­förnum tólf mán­uð­um.

Spár Seðla­bank­ans um verð­bólgu­skot í kjöl­far kjara­samn­inga, hafa ekki gengið eft­ir, en Pen­inga­stefnu­nefnd hefur nefnt að þróun á erlendum mörk­uðum hafi verið Íslandi hag­felld, ekki síst vegna lækkun á ýmsum hrá­vörum, sem svo leiði til lægri verð­bólgu hér á land­i. 

Helsti áhrifa­þáttur í apríl var hækkun hús­næð­islið­ar­ins ásamt hækkun bens­ín­verðs. Einnig hafð­i hækkun mat­vöru­verðs nokkur áhrif. Verð á síma­þjón­ustu lækk­aði í apríl sem og flest­ir tóm­stunda- og afþrey­ing­ar­lið­ir. Verð almennrar þjón­ustu var á heild­ina litið óbreytt milli­ ­mán­aða og hefur hækkað um 1,8% sl. tólf mán­uð­i. 

Pen­inga­stefnu­nefnd nefnir sér­stak­lega, að áhrif af afnámi tolla á fatn­aði og skóm í árs­byrjun hafa verið minni en vænta mátti en verð á þessum und­ir­lið hefur ein­ungis lækk­að um 3% á und­an­förnu ári, þrátt fyrir afnám tolla og geng­is­hækkun krón­unn­ar. Ljóst er að ástæð­u þess má að nokkru leyti rekja til hækk­unar á inn­lendum kostn­að­ar­þáttum und­an­farið ár, segir í fund­ar­gerð nefnd­ar­inn­ar.

Í fund­ar­gerð­inni segir að mik­ill kraftur sé einnig á inn­lendum vinnu­mark­aði. Heild­ar­vinnu­stundum fjölg­aði um 2,3% milli­ ára á fyrsta fjórð­ungi þessa árs. Atvinnu­þátt­taka mælist nú næstum 83 pró­sent þegar leið­rétt hef­ur verið fyrir árs­tíð­ar­sveiflu og er orðin svipuð og hún var mest í byrjun árs 2007. 

Árs­tíð­ar­leið­rétt at­vinnu­leysi mæld­ist 3,1% á fjórð­ungn­um. Atvinnu­leysi er því lík­lega orðið minna en ætla má að sam­ræm­ist verð­stöð­ug­leika en búist er við að það verði 3,3% á árinu í heild. Aðr­ar vís­bend­ingar af vinnu­mark­aði hníga í sömu átt, segir nefnd­in. „Gert er ráð fyrir að heild­ar­vinnu­stundum fjölg­i um 3% í ár og eru horfur á meiri fjölgun á næsta ári í takt við bættar hag­vaxt­ar­horf­ur. Hlut­fall ­starf­andi heldur áfram að hækka og nær hámarki í tæp­lega 81% á næsta ári en það fór hæst í 81,5% árið 2007. Áfram er gert ráð fyrir því að fram­leiðni­vöxtur verði um 1% á ári að með­al­tali á spá­tím­an­um. Er það nokkuð undir sögu­legu með­al­tali en í takt við með­al­fram­leiðni­vöxt síð­ast­lið­inna tíu ára,“ segir í fund­ar­gerð­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiInnlent
None