Vilja kínverska sendiherrann á teppið

Bertel Haarder, menningarmálaráðherra Danmerkur.
Bertel Haarder, menningarmálaráðherra Danmerkur.
Auglýsing

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn (DF) vill að Ber­tel Haarder ­menn­ing­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur boði sendi­herra Kína í Kaup­mann­höfn á sinn fund ­vegna afskipta hans af komu kín­versks dans­flokks til Dan­merk­ur. Dans­flokk­ur­inn hélt tvær sýn­ingar fyrir fullu húsi í Árósum í apr­íl.

Kín­verski d­ans­flokk­ur­inn Shen Yun Per­form­ing Arts (SYPA) var stofn­aður árið 2006 í New York. Stofn­end­urnir tengd­ust Falun Gong hreyf­ing­unni, sem var bönnuð í Kína árið 1999 en Li Hongzhi stofn­andi Falun Gong flutti til New York 1998. Kenn­ing­ar Fa­lun Gong eru runnar upp úr búdd­is­ma, taó­is­ma, siða­kenn­ingum Kon­fús­í­usar o.fl.

Í SYPA flokknum eru um það bil 200 d­ans­ar­ar. Þriðj­ungur hóps­ins er eins­konar far­and­flokk­ur, ferð­ast víða um heim stóran hluta árs­ins og sýnir listir sín­ar. For­svars­menn SYPA hafa sagt að kín­versk stjórn­völd hafi, allt frá stofnun flokks­ins, reynt að koma í veg fyr­ir­ ­sýn­ingar hans. Fyrir nokkrum mán­uðum var fjórum sýn­ingum í Seoul í Suð­ur­-Kóreu ­skyndi­lega aflýst, án skýr­inga. Tals­maður SYPA seg­ist sann­færður um að Kín­verjar hafi beitt stjórn­völd í Suð­ur­-Kóreu þrýst­ingi.

Auglýsing

Kon­ung­lega leik­húsið synj­aði beiðn­i d­ans­flokks­ins

SYP­A ­flokk­ur­inn hefur á und­an­förnum árum margoft reynt að ná samn­ingum við ­Kon­ung­lega leik­húsið í Kaup­manna­höfn um leigu á Óper­unni eða gamla aðal­svið­in­u við Kóngs­ins Nýja-­torg. Danskir umboðs­menn dans­flokks­ins telja sig vita að kín­verska sendi­ráðið hafi beitt sér og reynt að koma í veg fyrir sýn­ing­arn­ar. Mari­anne Jel­ved fyrr­ver­andi menn­ing­ar­mála­ráð­herra krafði á sínum tíma stjórn­end­ur ­Kon­ung­lega skýr­inga. Í svari leik­húss­ins kom fram að Kín­verjar hefðu ekki beitt hót­unum en hins vegar hefði full­trúum leik­húss­ins, sem sáu sýn­ingu SYPA í Berlín ekki þótt hún eiga erindi á svið Kon­ung­lega, hún væri ekki nægi­lega heil­steypt af alt for svin­gende kva­litet.”

Sendi­herr­ann skrifar bréf

Þeg­ar kín­verska sendi­herr­anum í Kaup­manna­höfn barst til eyrna að SYPA flokk­ur­inn væri vænt­an­legur til Árósa skrif­aði hann stjórn­anda Tón­list­ar­húss­ins. Í bréf­in­u ­sagði að Falun Gong berð­ist gegn sam­fé­lags­legum gildum og reyni, í þessu til­viki, að skaða sam­band Kína og Dan­merk­ur. Þið eruð vin­sam­leg­ast beðin að ­segja sann­leik­ann, en ekki það sem ósatt er, og halda ykkur frá þessu svo­kall­aða Shen Yun, sem er á vegum Falun Gong, þannig að þið verðið ekki verk­færi í höndum þeirra”.

Þing­menn Danska þjóð­ar­flokks­ins vilja ­sendi­herr­ann á teppið

Tals­mað­ur­ D­anska Þjóð­ar­flokks­ins í menn­ing­ar­mál­um, Alex Arendt­sen sagði í blaða­við­tali að ­með skrifum sínum hefði kín­verski sendi­herr­ann far­ið langt yfir strik­ið. Kín­verjar hafa rétt á að segja skoðun sína en að þeir reyni að segja ­stjórn­völdum fyrir verkum er ekki hægt að líða.” Þing­mað­ur­inn ætlar að fara fram á það við Ber­tel Haarder menn­ing­ar­mála­ráð­herra að hann kalli kín­verska ­sendi­herr­ann á sinn fund og geri honum grein fyrir að afskipta­semi af þessu tagi sé ekki umborin í Dan­mörku.

Hús­fyllir í tvígang

Stjórn­end­ur Tón­list­ar­húss­ins í Árósum létu skrif sendi­herr­ans sem vind um eyru þjóta. Dans­flokk­ur­inn ­sýndi tvisvar á stóra sviði Tón­list­ar­húss­ins sem tekur um þrjú þús­und manns í sæti. Upp­selt var á báðar sýn­ing­arn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBorgþór Arngrímsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None