Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar og fylgi Viðreisnar eykst

Sjálfstæðisflokkur og Píratar mælast með um 28 prósenta fylgi í nýrri kosningaspá. Viðreisn bætir við sig og er komin með 5,8. Formaðurinn segir þetta góðar fréttir og brátt verði listar mannaðir. Ragnheiður Ríkharðsdóttir er orðuð við flokkinn.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarsson verða ekki samflokksmenn á næsta þingi. Ekki liggur fyrir hvort Ragnheiður ætli að bjóða sig fram fyrir Viðreisn eða hvort hún ætli að hætta á þingi.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarsson verða ekki samflokksmenn á næsta þingi. Ekki liggur fyrir hvort Ragnheiður ætli að bjóða sig fram fyrir Viðreisn eða hvort hún ætli að hætta á þingi.
Auglýsing

Píratar og Sjálf­stæð­is­flokkur mæl­ast nær hnífjafn­ir, með um 28 pró­senta fylgi, í nýj­ustu kosn­inga­spánni um fylgi flokk­anna sem gerð var 4. júní. Sjálf­stæð­is­flokkur missir rúmt pró­sentu­stig síðan í síð­ustu kosn­inga­spá, 2. júní, en Píratar bæta við sig hálfu pró­sentu­stig. Við­reisn bætir við sig tæpum tveimur pró­sentu­stigum síðan kosn­inga­spáin var gerð síð­ast. 

Vinstri græn mæl­ast með 17 pró­sent, en voru með 17,5 síð­ast. Fram­sókn­ar­flokkur bætir við sig rúmu pró­sentu­stigi og mælist nú með 10,1 pró­sent. Sam­fylk­ing stendur nær í stað með rúm sjö pró­sent og Við­reisn bætir við sig um tæp tvö pró­sentu­stig og fer úr 4,1 í 5,8 pró­sent. 

Auglýsing

Kosn­­­­inga­­­­spá Kjarn­ans og Bald­­­­urs Héð­ins­­­­sonar er gerð fyrir Alþing­is­­­­kosn­­­­ingar sem boð­aðar hafa verið í haust. Baldur hefur útbúið spálíkan sem vigtar kann­­­­anir sem gerðar eru á fylgi stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka eftir áreið­an­­­­leika. Sama líkan var notað fyrir sveit­­­­ar­­­­stjórn­­­­­­­ar­­­­kosn­­­­ing­­­­arnar árið 2014 fyrir fylgi fram­­­­boða í Reykja­vík og nið­­­­ur­­­­staðan birt á vef Kjarn­ans og á vefn­um kosn­­­­inga­­­­spá.­is. Í nýj­­ustu kosn­­­­inga­­­­spánni eru nýj­­­­ustu kann­an­­­­irnar vegn­­­­ar:

  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 1. til 2. júní (vægi 31,6%)
  • Þjóð­­ar­púls Gallup 28. apríl til 29. maí (vægi 47,4%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 21,0%)

Við­reisn mannar brátt lista

Eins og áður segir mælist Við­reisn með 5,8 pró­senta fylgi í kosn­inga­spánni og hefur slitið sig nokkuð rösk­lega frá Bjartri fram­tíð sem mælist nú með 3,6 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni. Mun­ur­inn á milli Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar er einnig orð­inn meiri en skekkju­mörkin sem reiknuð eru með kosn­inga­spánni og hægt er að full­yrða að Við­reisn sé orðið vin­sælla fram­boð en Björt fram­tíð.

Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ sem gerð var fyrir Morg­un­blaðið mælist Við­reisn með tæp­lega átta pró­sent stuðn­ing. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni vegur sú könnun næst þyngst og fær 31,6 pró­sent vægi.

Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, segir þetta auð­vitað ánægju­legar frétt­ir, sér­stak­lega í ljósi þess að flokk­ur­inn hafi form­lega verið til í minna en tvær vik­ur. 

„Ég er býsna brattur með þetta, enda væri van­þakk­látt að vera ann­að, eftir svona skamman tíma,“ segir hann. „En svo verðum við að standa okkur áfram, með því að vera með skyn­sam­lega stefnu og góða fram­bjóð­end­ur. Stefnan er nokkuð ljós, þannig að fólki fellur hún bæri­lega vel í geð. Svo er bara að stilla þessu upp­.“ 

Spurn­ing með Ragn­heiði

Brátt verða skip­aðar upp­still­ing­ar­nefndir og þá taki hlutir að skýrast, að sögn Bene­dikts. Við­reisn stefnir að því að bjóða fram í öllum kjör­dæm­um. 

„Það eru ekki komnir fram­bjóð­endur alls stað­ar, ekki frekar en hjá öðrum flokk­um,” segir Bene­dikt. „En það er fólk víða um land sem sýnir þessu mik­inn áhuga.“

Hann vill ekk­ert gefa upp varð­andi mögu­lega fram­bjóð­end­ur, ekki einu sinni varð­andi sig sjálf­an. Ragn­heiður Rík­harðs­dótt­ir, frá­far­andi þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til­kynnti í gær að hún ætl­aði ekki að gefa kost á sér í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi kosn­ing­um. Vanga­veltur hafa verið uppi hvort hún muni færa sig yfir til Við­reisn­ar, en hún hvorki neitað því né ját­að. Það gerir Bene­dikt ekki held­ur.

Hvað er Kosn­­­inga­­­spá­in?

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­inga­­­spá Bald­­­urs fyrir sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar og reynd­ist sú til­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­inga­­­spá.is má lesa nið­­­ur­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­inga­úr­slit­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­um. Hægt er að lesa nánar um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None