Hart verður barist um efstu sætin í prófkjöri Pírata fyrir Reykjavíkurkjördæmin

Að minnsta kosti fjórir ætla að gefa kost á sér til að leiða lista Pírata í Reykjavík. Birgitta Jónsdóttir ætlar að halda áfram og Jón Þór Ólafsson er að íhuga framboð.

Þingmennirnir Ásta Guðrún Helgadóttir og Birgitta Jónsdóttir vilja halda áfram á Alþingi. Helgi Hrafn Gunnarsson ætlar hins vegar að segja skilið við pontuna.
Þingmennirnir Ásta Guðrún Helgadóttir og Birgitta Jónsdóttir vilja halda áfram á Alþingi. Helgi Hrafn Gunnarsson ætlar hins vegar að segja skilið við pontuna.
Auglýsing

Hart verður barist um odd­vita­sætin hjá Pírötum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­un­um. Að minnsta kosti fjórir gefa kost á sér í próf­kjöri til að leiða listana, að frá­taldri Birgittu Jóns­dótt­ur, og fyrr­ver­andi þing­mann­inum Jóni Þóri Ólafs­syni. Birgitta ætlar að gefa kost á sér en hefur ekki gefið upp í hvaða sæti þó að lík­legt verði að telj­ast að hún muni leiða list­ann í öðru hvoru kjör­dæm­inu og Jón Þór er að íhuga fram­boð á ný. 

Að minnsta kosti fjórir vilja odd­vita­sætið

Meðal þeirra sem hafa form­lega gefið kost á sér til að leiða listana í Reykja­vík eru Ásta Guð­rún Helga­dótt­ir, sem tók við sem þing­maður eftir að Jón Þór hætti síð­ast­liðið haust, Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, Arn­aldur Sig­urðs­son og Olga Mar­grét Cil­ia. Þór­hildur Sunna gefur einnig kost á sér til að leiða list­ann í Krag­an­um. Smári McCarthy mun að öllum lík­indum leiða í Suð­ur­kjör­dæmi. 

Jón Þór Ólafsson, Ásta Guðrún Helgadóttir, Arnaldur Sigurðsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Birgitta Jónsdóttir og Olga Margrét Cilia.

Auglýsing

Úr Hreyf­ing­unni í Pírata

Þór Saari og Gunnar Hrafn JónssonÍ síð­ustu viku gaf Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­inn­ar, út að hann væri geng­inn til liðs við Pírata. Gunnar Hrafn Jóns­son, fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV, til­kynnti fyrr í mán­uð­inum að hann hafði sagt upp störfum á frétta­stof­unni til að snúa sér að starfi flokks­ins. Hann sæk­ist eftir öðru sæti á lista í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.

Drama­tík á Norð­ur­landi 

Björn ÞorlákssonGunnar Hrafn er ekki eini fjöl­miðla­mað­ur­inn sem hefur leitað til Pírata, því rit­stjór­inn fyrr­ver­andi, Björn Þor­láks­son, gaf kost á sér til að leiða lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Hann hafn­aði þó í sjö­unda sæti í próf­kjöri og sagði sig frá starf­inu í kjöl­far­ið. Hann sak­aði flokk­inn á Norð­ur­landi um klíku­skap og að leynd hefði hvílt yfir próf­kjör­inu. Þá greindi Björn frá því að hann hafði verið kærður fyrir brot á siða­reglum rétt eftir að kosn­ing í próf­kjöri hóf­st, en viku áður en úrslit látu fyr­ir. Nefnd innan Pírata sem tók málið fyrir vís­aði kærunni frá að lok­inni skoð­un.  

Helgi hættir sáttur

Eins og fram hefur komið ætlar Helgi Hrafn Gunn­ars­son að segja skilið við Alþingi eftir þetta kjör­tíma­bil. Hann sagði í við­tali við Kjarn­ann í febr­úar að hafði í raun engan áhuga á að vera þing­maður eða ráð­herra. Hann sagð­ist einnig dauð­öf­unda Jón Þór, sem hafði sagt skilið við þingið eftir tvö kjör­tíma­bil og snúið sér að mal­bikun og stöðu­mæla­vörslu. 

Stærsti flokk­ur­inn

Píratar eru að mæl­ast með í kring um 27 pró­senta fylgi og hafa verið með mest fylgi í skoð­ana­könn­unum und­an­far­ið. Þó hefur mun­ur­inn á fylgi flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins oft reynst ómark­tæk­ur, en sam­kvæmt síð­ustu Kosn­inga­spá eru Píratar með 27,3 pró­senta fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 23,6 pró­sent. Sam­eig­in­legt próf­kjör Pírata fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmin og Krag­ann fara fram dag­ana 2. til 12. ágúst. Nið­ur­stöður liggja fyrir 12. eða 13. ágúst.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None