Norðausturkjördæmi tekur Sigmundi ekki opnum örmum

Forystumenn Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi hafa efasemdir um að endurkoma Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í kjördæmi sé góð fyrir flokkinn. Fyrrverandi oddviti á Akureyri íhugar úrsögn úr flokknum ef Sigmundur heldur áfram.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlar að bjóða sig aftur fram í Norðausturkjördæmi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlar að bjóða sig aftur fram í Norðausturkjördæmi.
Auglýsing

For­ysta Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi segir að flokks­þing muni skera út um hvort Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son verði áfram for­maður flokks­ins. Odd­vit­inn á Húsa­vík efast um að Sig­mundur njóti braut­ar­gengis og odd­vit­inn á Akur­eyri segir flokks­þing og mið­stjórn­ar­fund munu skera út um nið­ur­stöð­una. Fyrr­ver­andi odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akur­eyri seg­ist íhuga að segja sig úr flokknum ef Sig­mundur heldur áfram og er dapur yfir stöð­unni.  

Ætlar aftur fram í Norð­aust­ur­kjör­dæmi

Sig­mundur gaf það út í Morg­un­blað­inu í morgun að hann hygg­ist bjóða fram krafta sína í kom­andi kosn­ingum í sínu kjör­dæmi, Norð­aust­ur. Bæj­ar­full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akur­eyri sendi frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu í kjöl­far Wintris-­máls­ins þar sem Sig­mundur var kraf­inn um að segja af sér sem for­sæt­irsáð­herra án tafar „vegna þess trún­að­ar­brests“ sem hafði skap­ast á milli Sig­mundar og flokk­manna og lands­manna allra. Þá komu áhrifa­menn fram í Kjarn­anum og sögðu hann ekki vel­kom­inn aftur í kjör­dæm­ið. 

Efast um að Sig­mundur njóti braut­ar­gengis

Gunnlaugur StefánssonGunn­laugur Stef­áns­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins á Húsa­vík og Norð­ur­þingi, segir skiptar skoð­anir meðal flokks­manna um fram­tíð

Sig­mund­ar. „Kjör­dæma­þing verður haldið í ágúst og þá fær Sig­mundur skýr skila­boð um hvort fram­sókn­ar­menn í Norð­austur vilji hafa hann áfram í því kjör­dæmi,“ segir Gunn­laugur í sam­tali við Kjarn­ann. Hann bætir við að Sig­mundur hafi komið og skýrt málið frá sinni hlið fyrir flokks­mönn­um. „Ég held að hann hafi gert það ágæt­lega. En ég er enn á þeirri skoðun að ég á síður von á því að hann njóti braut­ar­gengis hér. Það hefur ekki breyst.“ 

Auglýsing

Gunn­laugur segir Sig­mund þá kannski eiga mögu­leika í öðrum kjör­dæm­um. Vissu­lega séu ein­hverjir fram­sókn­ar­menn á Norð­aust­ur­landi sem vilji hafa hann áfram, aðrir vilji að hann víki. En er ekki vont að flokk­ur­inn, sem er að mæl­ast með afar lítið fylgi í skoð­ana­könn­un­um, sé svo klof­inn í aðdrag­anda kosn­inga? 

„Vissu­lega er það vont,“ segir Gunn­laug­ur. „Ég er þeirrar skoð­unar að Sig­mundur hafi staðið sig vel í þeim málum sem hann keyrði áfram með. En hann gerði mis­tök og það eru flokks­menn sem eiga að ráða fram­hald­inu. Svo er spurn­ing hvenær verður kosið í haust eða vor eða hvað. Þetta eru skrýtnir tím­ar.“ 

Útkoman end­ur­spegli vilja flokks­manna

Guð­mundur Bald­vin Guð­munds­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akur­eyri, var einn þeirra sem skrif­aði undir yfir­lýs­ing­una í apr­íl. Í sam­tali við Kjarn­ann í dag segir hann að það sé ekki hans að dæma um hvort Sig­mundur sé vel til þess fall­inn að mæta aftur í stjórn­málin í kjör­dæm­inu eða halda áfram sem for­mað­ur. 

Guðmundur Baldvin Guðmundsson„Við erum með kerfi í kring um það hvernig við veljum á lista. Það þarf að boða til mið­stjórn­ar­fundar og það þarf end­ur­nýjun umboðs for­yst­unn­ar,“ segir Guð­mund­ur. „Ég held að þetta sé sá far­vegur sem málin hljóti að fara í. Maður getur haft sínar per­sónu­legu skoð­anir á þessu, en þetta er lýð­ræð­is­legur flokkur og skoðun flokks­manna hlýtur að end­ur­spegla útkom­una.“ 

Guð­mundur segir að þó að Sig­mundur komi með yfir­lýs­ingar um hvað hann vilji gera, þá séu það flokks­menn sem hafi loka­orðið um hvert skuli halda. 

„Ef menn eru ekki sáttir við þá nið­ur­stöðu verður svo bara tekið á því þegar þar að kem­ur,“ segir hann. „Menn þurfa að fara í gegn um þetta ritúal til að fá skýran vilja flokks­manna fram, það er rétti far­veg­ur­inn. Svo getur maður velt fyrir sér hvort maður sé sáttur við útkom­una eða ekki.“

Flokk­ur­inn muni gjalda þess illi­lega ef Sig­mundur heldur áfram

Jóhannes Bjarna­son, fyrr­ver­andi odd­viti Fram­sókn­ar­manna á Akur­eyri, seg­ist dapur yfir fram­vindu mála. 

Jóhannes Bjarnason„Það er eig­in­lega úr mér allur vind­ur. Ég ein­fald­lega skil ekki þessi þróun og þetta dóm­greind­ar­leysi for­manns­ins. Flokk­ur­inn mun gjalda þess illi­lega ef [Sig­mund­ur] heldur sínu strik­i,“ segir Jóhannes við Kjarn­ann. „Það hefur ekk­ert breyst frá því í apr­íl. Hann var, og er, óhæfur til þess að sinna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og hann hlýtur á end­anum að hafa tekið þá ákvörðun sjálf­ur. Það hefur ekk­ert breytst í því máli, hann er jafn van­hæfur núna og þegar hann tók þá ákvörðun sjálfur að hætta. Nú hefur hann hins vegar tekið þá ákvörðun að halda flokknum í gísl­ingu með því að ein­fald­lega fara ekki.“ 

Íhugar úrsögn ef þetta verður nið­ur­staðan

Jóhannes hefur ekki mikla trú á að ein­hver af þremur kom­andi sam­komum Fram­sókn­ar­flokks­ins muni afstýra því að Sig­mundur haldi áfram; kjör­dæm­is­þing, mið­stjórn­ar­fundur og lands­fund­ur.  

„Ég er dapur yfir þessu og mér líður illa,“ segir Jóhann­es. „Mér þykir vænt um Fram­sókn­ar­flokk­inn og hef stúss­ast lengi í stjórn­málum til að gera sam­fé­lagið betra. Ég hef svo sem engin áhrif lengur á fram­vindu mála, en nú er komin upp eins konar herkvís­staða sem eng­inn virð­ist eiga nægi­lega öflug vopn til að sprengja sig út úr.“

Jóhannes seg­ist ætla að hugsa sinn gang mjög ræki­lega ef nið­ur­staðan verði sú að Sig­mundur haldi áfram sem for­maður og ætli að leiða list­ann í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. 

„Ef það verður þá held ég að maður ger­ist bara utan­garðs­maður í þessum bransa.“

Ekki hefur náðst í Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son í morg­un. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None