563 nefndir ríkisstjórnarinnar fyrir 1,1 milljarð

Ríkisstjórnin hefur skipað 536 nefndir á kjörtímabilinu. Menntamálaráðherra hefur skipað flestar, 150, en utanríkisráðherra fæstar, sjö. Félagsmálaráðherra hefur eytt mestu fé í sínar nefndir, 437 milljónum króna.

Illugi Gunnarsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa skipað um 190 nefndir í sínum ráðuneytum á kjörtímabilinu.
Illugi Gunnarsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa skipað um 190 nefndir í sínum ráðuneytum á kjörtímabilinu.
Auglýsing

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa skipað 536 nefndir á kjör­tíma­bil­inu. Þar af er nákvæm­lega helm­ingur skip­aður af frum­kvæði ráð­herra en hinn helm­ing­ur­inn eru lög­bundnar nefnd­ir. Af þessum 536 nefndum höfðu 124 lokið störfum í vor, eða rúmur fimmt­ung­ur. Kostn­aður vegna hópanna er alls rúmur 1,1 millj­arður króna, en kostn­aður er afar mis­jafn eftir ráðu­neyt­um. Til að mynda kost­uðu nefndir utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins ekki neitt, en félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra greiddi 437 millj­ónir til sinna nefnda. 

Auglýsing

Hátt í 3.000 nefnd­ar­menn

Alls hafa 2.910 ein­stak­lingar unnið í þessum nefnd­um, verk­efn­is­stjórnum eða starfs­hópum ráð­herr­anna. Lang­flestir búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er hlut­fall kvenna og karla til­tölu­lega jafnt, að und­an­skildum hópum sem unnið hafa fyrir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins, þar sem hlut­fall kvenna var 34 pró­sent. 

Þetta kemur fram í svörum ráð­herr­anna við fyr­ir­spurn Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­manns Vinstri grænna. Bjarkey lagði fram fyr­ir­spurnir til ráðu­neyt­anna í apríl síð­ast­liðnum þar sem meðal ann­ars var spurt um heild­ar­fjölda nefnda, heild­ar­kostn­að, fjölda nefnda sem ráð­herra skip­aði að eigin frum­kvæði og hversu margar hefðu lokið störf­um. Þá var spurt um fjölda nefnd­ar­manna, kynja­hlut­fall og búsetu nefnd­ar­manna. Svör ráð­herr­anna mið­ast við upp­haf kjör­tíma­bils­ins, vorið 2013, til vors­ins 2016. Síð­ast var svar umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra birt á síðu Alþing­is, föstu­dag­inn 5. ágúst. 



Lang­flestar nefndir hjá Ill­uga

Illugi GunnarssonMennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur skipað lang­flestar nefndir, 150 tals­ins. Þar af eru lang­flestar lög­bundn­ar, eða 121, og heild­ar­kostn­aður fimm millj­ónir króna. Alls störf­uðu 587 manns í nefnd­um, verk­efn­is­stjórnum eða starfs­hópum ráðu­neyt­is­ins. Af þessum 150 nefndum höfðu þó ein­ungis sjö lokið störf­um. Hlut­fall kvenna er 40 pró­sent og búa 84 pró­sent nefnd­ar­manna á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. 

Dýr­ustu nefnd­irnar

Eygló HarðardóttirEygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur eytt mestu fé í þær nefndir sem hún skip­aði. Kostn­að­ur­inn var alls 437 millj­ónir króna fyrir 63 nefnd­ir, þar af var 41 skipuð af frum­kvæði ráð­herra. 500 manns störf­uðu í hóp­un­um, þar af voru konur í meiri­hluta, eða 53 pró­sent. Búseta nefnd­ar­manna er ekki til­greind í svari ráð­herra. 11 nefndir af 63 hafa lokið störf­um.

Þrír ráð­herr­ar, 74 nefndir

Ólöf NordalOInn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur skipað 74 nefndir á kjör­tíma­bil­inu, þar af 43 að eigin frum­kvæði. Þrír ráð­herrar hafa setið í stólum á tíma­bil­inu, Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sem var um hríð dóms­mála­ráð­herra, og síð­ast Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra. 20 nefndir sem ráð­herra skip­aði að eigin frum­kvæði hafa lokið störf­um, staða lög­bund­inna nefnda er ekki til­greind í svar­inu. Heild­ar­fjöldi nefnd­ar­manna var 412, þar af voru karlar 58 pró­sent. 78 pró­sent nefnd­ar­manna eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Heild­ar­kostn­aður vegna nefnd­anna var 251 milljón og var það næst­mesti kostn­að­ur­inn á eftir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. 

Skakkt kynja­hlut­fall

Sigurður Ingi JóhannssonKynja­hlut­fall nefnd­ar­manna í nefndum sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra var ójafn­ast, en karlar voru 66 pró­sent nefnd­ar­manna. Ráð­herr­arnir hafa verið tveir, fyrst Sig­urður Ingi Jóhanns­son og svo Gunnar Bragi Sveins­son, en svarið nær ein­ungis til ráð­herra­tíðar Sig­urðar Inga. Hann skip­aði 35 nefnd­ir, þar af 25 að eigin frum­kvæði. 15 nefndir hafa lokið störf­um. Kostn­aður við hina 174 nefnd­ar­menn voru 174 millj­ón­ir. 79 pró­sent þeirra voru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. 

Nefnd­ar­menn utan af landi

Sigrún MagnúsdóttirHæsta hlut­fall nefnd­ar­manna sem býr utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er í nefndum umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, en 32 pró­sent búa á lands­byggð­inni. Ráð­herra hefur skipað 56 nefndir með 311 nefnd­ar­mönnum inn­an­borðs. Flestar, eða 41, voru skip­aðar að frum­kvæði ráð­herra, sem fyrst var Sig­urður Ingi Jóhanns­son, þegar ráðu­neytið var hluti af atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, og svo Sig­rún Magn­ús­dóttir þegar ráðu­neyt­inu var skipt upp. Kostn­aður var 54 millj­ónir og kynja­hlut­fall nokkuð jafn­t. 

102 millj­ónir í 33 nefndir

Ragnheiður Elín ÁrnadóttirRagn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, hefur skipað 35 nefndir, þar af 19 að eigin frum­kvæði. Sex hafa lokið störf­um. Heild­ar­fjöldi nefnd­ar­manna er 173 og kynja­hlut­fall nokkuð jafnt. 84 pró­sent þeirra búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og var kostn­aður vegna nefnd­anna 102 millj­ónir króna. 

Höf­uð­borg­ar­nefnd­ir 

Bjarni BenediktssonBjarn­Nær allir nefnd­ar­menn hjá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 97 pró­sent. 46 pró­sent hinna 214 nefnd­ar­manna í 44 nefndum ráð­herra eru konur og 54 pró­sent karl­ar. Af 44 nefndum eru lang­flestar skip­aðar að frum­kvæði ráð­herra, eða 36. 18 hafa lokið störf­um. Kostn­aður vegna nefnd­anna var 47 millj­ónir króna. 

Fleiri konur en karlar

Kristján Þór JúlíussonKrist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur skipað 46 nefndir, þar af 32 að eigin frum­kvæði. 13 hafa lokið störfum og voru alls 283 manns í nefnd­un­um. Eins og hjá félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, voru konur í meiri­hluta, eða 53 pró­sent og búseta nefnd­ar­manna ekki til­greind. Heild­ar­kostn­aður var 106 millj­ón­ir. 

190 í 28 nefndum

Sigmundur Davíð GunnlaugssonSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra skip­aði 28 nefndir á sínu tíma­bili, þar af 18 að eigin frum­kvæði. Kostn­aður var 110 millj­ónir og nefnd­ar­menn voru 190 tals­ins. Kynja­hlut­fall var nokkuð jafnt, karlar 52 pró­sent og konur 48 pró­sent. 75 pró­sent nefnd­ar­manna voru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sex nefndir höfðu lokið störfum þann 1. mars 2016. 

Eng­inn kostn­aður og lang­fæstar nefndir

Gunnar Bragi SveinssonLang­fæstar nefndir hafa verið skip­aðar af utan­rík­is­ráð­herra. Lilja Dögg Alfreðs­dóttir tók við af Gunn­ari Braga Sveins­syni í vor, og hefur engar nefndir skipað síðan þá. Gunnar Bragi skip­aði sjö nefnd­ir, þar af voru fjórar skip­aðar að hans frum­kvæði. Þrjár nefndir hafa lokið störf­um. Heild­ar­fjöldi nefnd­ar­manna var 66, 56 pró­sent karl­ar. Kostn­aður ráðu­neyt­is­ins við nefnd­irnar var eng­inn. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None