Ekkert ákveðið um þinglok

Þrátt fyrir að þingi eigi að ljúka í næstu viku eru fjöldamörg stór mál ríkisstjórnarinnar inni í nefndum og lítið að gerast í þingsalnum. Félagsmálaráðherra ætlar að koma með tvö stór frumvörp til viðbótar inn í þingið.

alingi-juli-2015_19275723570_o.jpg
Auglýsing

Mikil umræða skap­að­ist um nauð­syn þess að Alþingi kæmi saman til funda nú í ágúst til þess að afgreiða mik­il­væg og stór mál fyrir kosn­ing­ar. Talað var um að stjórn­ar­and­staðan mætti ekki „þvæl­ast fyr­ir“ þessum stóru mál­um. En nú er óhætt að segja að mikil ládeyða sé yfir þing­stör­f­un­um, að minnsta kosti þeim sem sjást almenn­ingi úr þing­sal. 

Aðeins ­fjögur mál eru á dag­skrá þing­fund­ar­ins í dag. Störf þings­ins, ­sem er reglu­bund­inn dag­skrár­liður á þriðju­dags- og mið­viku­dags­fundum Alþing­is, og svo atkvæða­greiðslur um þrjú frum­vörp rík­is­stjórn­ar­inn­ar: frum­varp um lýð­heilsu­sjóð, EES-frum­varp um fjár­mála­fyr­ir­tæki og frum­varp um þjóðar­ör­ygg­is­ráð. Þegar búið er að ganga frá þessum þremur frum­vörpum munu aðeins tvö til við­bótar bíða eftir síð­ustu umræðu á þing­inu. Öll önnur mál rík­is­stjórn­ar­innar eru til umfjöll­unar í þing­nefnd­um, utan örfárra sem ekki eru komin á dag­skrá og tveggja frum­varpa frá félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra sem enn eru ekki komin inn í þing­ið. 

Auglýsing

Í gær komust sex þing­manna­mál á dag­skrá þings­ins, en það er oft ­mæli­kvarði á skort á málum frá rík­is­stjórn­inni þegar mörg slík mál kom­ast á dag­skrá. 

Á að ljúka í næstu viku 

Sam­kvæmt ­starfs­á­ætlun þings­ins á störfum þess að ljúka í lok næst­u viku, og Eld­hús­dags­um­ræður eig að vera eftir slétta viku. Val­gerður Bjarna­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, vakti athygli á því í gær að þrátt fyrir að starfs­á­ætlun þings­ins geri ráð ­fyrir þing­frestun þann 2. sept­em­ber, á föstu­dag í næstu viku, þá er veittur frestur til að gefa umsagnir um nokkur stór mál ­rík­is­stjórn­ar­innar til 1. sept­em­ber. Þegar umsagnir hafa borist fara þing­nefndir yfir þær og afgreiða mál til ann­arrar umræð­u í þing­sal. Það er því ljóst að væg­ast sagt lít­ill tími er til stefnu ef ljúka á þingi á föstu­dag. 

Einar K. Guð­fins­son, for­seti Alþing­is, segir í sam­tali við Kjarn­ann að engar við­ræður séu hafnar um það hvernig og hvenær ljúka eigi þing­störf­um. Hann segir að málin muni lík­lega skýr­ast seinni hluta þess­arar viku og það verði ekki fyrr en í kjöl­far þess sem fundað verði um fram­hald­ið. Hann ætli ekki að gefa neitt út fyrr en hann hafi fundað með þing­flokks­for­mönnum og mögu­lega muni for­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar funda með stjórn­ar­and­stöð­unni. Hann segir einnig að jafn­vel þó að umsagn­ar­frestur sé til fyrsta sept­em­ber í stórum málum rík­is­stjórn­ar­innar þá séu þing­nefnd­irnar byrj­aðar að fjalla um málin og búa sér þannig í hag­inn. 

Munu ekki öll fara í gegn

Sem fyrr segir eru mörg stór mál inni í þing­nefnd­um, og má nefna búvöru­samn­inga, losun fjár­magns­hafta, breyt­ingar á náms­lána­kerf­inu, stuðn­ingur til kaupa á fyrstu íbúð og breyt­ingar á lögum um verð­trygg­ingu. Þá eru ekki talin með tvö stór mál sem Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, er með í vinnslu í sínu ráðu­neyti. Það eru breyt­ingar á almanna­trygg­inga­kerf­inu og breyt­ingar á fæð­ing­ar­or­lofi. Matth­ías Ims­land, aðstoð­ar­maður Eygló­ar, segir í sam­tali við Kjarn­ann að Eygló ætli sér að leggja bæði frum­vörpin fram á þingi. Málin séu til með­ferðar hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og það ráð­ist af þeirri vinnu hvenær hægt verði að leggja þau fram fyrir rík­is­stjórn og svo þing­ið. 

Það getur haft veru­leg áhrif á fram­gang mála Eyglóar að hún sat í síð­ustu viku hjá við afgreiðslu á fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði í kjöl­far þess að Eygló gæti ekki gert miklar kröfur um að fá fram­gang ann­arra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráð­herrar ger­i. 

Rík­is­stjórnin fundar venju­lega tvisvar í viku og það þýðir að þrír fundir eru eftir þangað til þingi á að vera lok­ið. Jafn­vel þótt Eygló nái að leggja málin fram þar þá ættu þau eftir að fara í gegnum þing­ið. 

Ekki mjög mikið svig­rúm til frest­un­ar 

Búið er að boða að þing­kosn­ingar verði 29. októ­ber næst­kom­andi. Það sést í þing­sal að þing­menn eru komnir með hug­ann við kosn­ing­ar. Eitt skýrasta dæmið var kannski þegar verið var að ræða til­lögu Bjartrar fram­tíðar um það að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið í gær. Ein­hvern tím­ann hefði verið mikil og eld­fim umræða um slík mál, en í gær tóku þrír þing­menn til máls í umræð­unn­i. 

Jafn­vel þótt eitt­hvað svig­rúm sé til að halda þing­störfum áfram eftir lok næstu viku er ljóst að það er ekki mikið ef halda á kosn­ingar 29. októ­ber. Og þrátt fyrir að Bjarni Bene­dikts­son og Sig­urður Ingi Jóhanns­son hafi sagt að stefnt verði að kosn­ingum en ef þing­störf gangi ekki vel geti það breyst, þá er það ekki svo í raun og veru. Und­ir­bún­ingur fyrir kosn­ingar krefst þess ein­fald­lega að dag­ur­inn hald­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None