Mint Solutions fær 650 milljóna fjármögnun - Ör vöxtur og mikil tækifæri

Mint Solutions
Auglýsing

Íslensk-hol­lenska há­tækni­fyr­ir­tækið Mint Solutions hefur lokið við 650 milljón króna fjár­fest­ingu sem gerir fyr­ir­tæk­inu kleift að hraða mark­aðs­setn­ingu og inn­leið­ingu lyfja­ör­ygg­is­kerf­is­ins MedEye á sjúkra­húsum og heil­brigð­is­stofn­unum í Evr­ópu og í Banda­ríkj­un­um. Fjár­magn­ið kemur frá hópi fjár­festa undir for­ystu BOM Capi­tal í Hollandi og tveggja núver­and­i hlut­hafa, LSP og Seventure Partners, ásamt Nýsköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins og ­ís­lenskum einka­fjár­fest­um.

„MedEye sér til þess sjúk­ling­arnir fái rétt lyf, í réttu magni á réttum tíma og kemur því í veg fyrir lyfja­mis­tök,” segir Gauti Þór Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri Mint Solutions. Hann segir enn­fremur að fjár­fest­ingin muni nýt­ast við að þróa MedEye áfram og svara eft­ir­spurn frá sjúkrá­húsum og heil­brigð­is­stofn­unum í Hollandi og víð­ar. „Fjár­fest­ingin gerir okkur kleift að efla þróun MedEye enn frekar og svara auk­inni eft­ir­spurn frá sjúkra­húsum og heil­brigð­is­stofn­unum í Hollandi og víðar í Evr­ópu. MedEye kemur í stað mun flókn­ari og dýr­ari lausna, t.d. strik­a­merk­inga á hverjum lyfja­skammti fyrir sig, og við getum því gjör­bylt þeim mark­aði sem við erum á,“ segir Gauti Þór.

Sjö ára saga

Mint Solutions var ­stofnað á Íslandi árið 2009 og hefur síðan þá unnið að þró­un lyfja­ör­ygg­is­kerf­is­ins MedEye. Kerfið stór­bætir lyfja­ör­yggi á sjúkra­húsum og öðrum heil­brigð­is­stofn­un­um, að því er segir í til­kynn­ingu.

Auglýsing

MedEye í notkun á sjúkrahúsi.

Á Íslandi og í Hollandi

Öll þró­un­ar­vinna fer fram á Íslandi. Fyr­ir­tækið er nú með 18 starfs­menn, níu hér á landi og níu í Holland­i, ­sem er stærsti mark­aður þess, að því er segir í til­kynn­ingu. Með fjár­fest­ing­unni stefnir Mint Solutions á frek­ari land­vinn­inga á alþjóð­legum mörk­uð­um, m.a. í Belg­íu, Bret­landi og ­Banda­ríkj­un­um. Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins fjár­festi í félag­inu árið 2011 og og hefur fylgt fjár­fest­ing­unni eftir síðan þá. „Við höfðum strax trú á þess­ari vöru og sáum tæki­færi til þess að leysa viða­mikið vanda­mál á svið­i heil­brigð­is­tækni. Þróun MedEye hefur gengið vel og Mint Solutions hefur nú feng­ið einka­leyfi fyrir tækn­inni og hafið mark­aðs­setn­ingu í Hollandi. Við fögn­um þess­ari nýju fjár­fest­ingu þar sem hún mun gera Mint Solutions og MedEye kleift að ná fót­festu á heims­vís­u,“ segir Hekla Arn­ar­dótt­ir, fjár­fest­inga­stjóri hjá Ný­sköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins.

Alþjóð­legir hlut­hafar

Aðrir helstu hlut­hafar í M­int Solutions eru LSP, Seventure Partners og BOM Capital, ásamt minn­i einka­fjár­fest­um, stofn­endum og starfs­fólki. Tækni­þró­un­ar­sjóður lagði einnig til­ ­styrki við fyr­ir­tækið þegar þróun MedEye hófst.

MedEye er komið í notk­un á fjórum hol­lenskum sjúkra­húsum og verið er að inn­leiða kerfið á þremur til­ við­bót­ar. Að sögn Gauta Þórs hefur MedEye nú þegar sannað gildi sitt og komið í veg fyrir fjölda lyfja­mistaka. „Sem dæmi hefur Deventer ­sjúkra­húsið í Hollandi verið með MedEye í notkun síðan í ágúst á síð­asta ári og ­kerfið er nú notað við öll 250 sjúkra­rúm spít­al­ans. Á þessum tíma höfum við kom­ið í veg fyrir yfir þús­und rangar lyfja­gjaf­ir.“

Við­ræður standa nú yfir­ við mörg stærstu sjúkra­hús Hollands, þar á meðal háskóla­sjúkra­hús. Gauti seg­ir því von á fleiri góðum fréttum af fyr­ir­tæk­in­u. „Eft­ir­spurnin eft­ir ­MedEye hefur auk­ist mikið á síð­ustu mán­uð­um. Sjúkra­húsin eru að átta sig á því að MedEye er mun ódýr­ari og örugg­ari kostur í sam­an­burði við keppi­nauta okk­ar,“ segir Gauti Þór.

Ívar Helga­son, Gauti Reyn­is­son og María Rún­ars­dóttir stofn­uðu fyr­ir­tæk­ið, og hafa fylgt eftir öfl­ugu vaxt­ar­skeiði þess inn á alþjóð­lega mark­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None