Það kostar skildinginn að skipta um forseta.
Það kostar skildinginn að skipta um forseta.
Auglýsing

1. Utan­rík­is­ráðu­neytið fær tíu millj­ónir króna á næstu tveimur árum úr rík­is­sjóði svo hægt sé að greiða fyrir starfs­mann sem mun þjón­usta og sinna ýmsum verk­efnum fyrir Ólaf Ragnar Gríms­son, fyrr­ver­andi for­seta Íslands. Þetta kemur fram í frum­varpi til fjár­auka­laga vegna fjár­laga­árs­ins 2016.

2. Þar kemur einnig fram að rann­sókn á  þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í kaupum á 45,8% eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. o.fl. árið 2003, sem nú stendur yfir, sé áætl­aður 30 millj­ónir króna. Rann­sókn­inni á að ljúka fyrir kom­andi ára­mót.

3. Sótt er um 74 millj­óna króna hækkun á fram­lagi til rík­is­stjórnar Íslands. Um er að ræða  við­bót­ar­út­gjöld vegna bið­launa frá­far­andi ráð­herra og aðstoð­ar­manna eftir alþing­is­kosn­ing­arnar sem fyr­ir­hug­aðar eru í lok októ­ber. Þegar fjár­lög voru sam­þykkt í fyrra var ekki reiknað með að kosið yrði fyrr en í aprí 2017.

Auglýsing

4. Húsa­meist­ari rík­is­ins fær 15 millj­ónir króna í við­bót­ar­fram­lag til að mæta kostn­aði sem fellur meðal ann­ars til vegna for­seta­skipta, en Guðni Th. Jóhann­es­son tók við emb­ætt­inu fyrr á þessu ári. Í fjár­auka­lögum segir að um sé að ræða „kostnað vegna flutn­inga og örygg­is­mála ásamt inn­rétt­ingum og end­ur­bótum á inn­an­stokks­munum á Bessa­stöð­um, þ.m.t. í Bessa­staða­stofu, bók­hlöðu og mót­töku­sal.“

5. Heild­ar­breyt­ingar á fjár­heim­ildum sem beðið er um með fjár­auka­lögum eru 88 millj­arðar króna. Langstærsti hluti þeirrar upp­hæð­ar, 83,5 millj­arða króna, vegna ein­skipt­is­upp­gjörs vegna A-deildar Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR). Sá kostn­aður fellur til vegna sam­komu­lags um breyt­ingar á opin­bera líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu þannig að það verði eins og það almenna að mestu. Sam­komu­lagið var kynnt í upp­hafi viku.

6. Þá er sótt um tíu millj­óna króna fram­lag í tengslum við og í fram­haldi af emb­ætt­is­töku nýs for­seta. Sá kostn­aður er vegna þess að talið er nauð­syn­legt að ráða starfs­mann til að sinna almennum verk­efnum á Bessa­stöðum og vegna þess að brott­hvarf fyrri for­seta úr emb­ætti og emb­ætt­is­taka nýs hafði í för með sér „marg­vís­leg útgjöld“. Þá hefur heima­síða for­seta­emb­ætt­is­ins verið óbreytt í sextán ár og stefnt er að því að efna til útboðs um nýja slíka fari fram í haust. Áætl­aður kostn­aður er fimm millj­ónir króna og vef­ur­inn á að opna fyrir lok þessa árs.

7. 800 millj­ónir króna munu fara í fram­lög vegna mik­illar fjölg­unar flótta­manna umfram for­sendur fjár­laga árs­ins 2016.

8. 216 millj­ónir króna fara í að bæta öryggi ferða­manna.

9. Upp­taka á nýjum S-merktum lyfjum mun kosta rík­is­sjóð 427 millj­ónir króna umfram það sem áætlað var á fjár­lögum þessa árs.

10. Og síð­ast, en ekki síst, þá munu bið­laun og annar þing­fara­kostn­aður vegna frá­far­andi þing­manna sem reiknað er með að muni falla til eftir kosn­ing­arnar í októ­ber kosta um 121 millj­ónir króna. Áætlun um útgjöld vegna kosn­ing­anna mið­ast við hlið­stæðan kostnað eftir kosn­ing­arnar árið 2013 en að teknu til­liti til þess að nú gefa fleiri þing­menn ekki kost á sér til end­ur­kjörs. Um er að ræða áætl­aðan heild­ar­kostnað við þessa útgjalda­þætti en reiknað er með að rúm­lega helm­ingur bið­laun­anna muni þó ekki koma til útborg­unar fyrr en á árinu 2017. Er því gert ráð fyrir að afgangur á þess­ari fjár­heim­ild í árs­lok verði fluttur yfir til árs­ins 2017. Til við­bótar þá er farið fram á 47 millj­ónir króna vegna ýmissa útgjalda sem reiknað er með að muni falla til eftir alþing­is­kosn­ing­arn­ar. Um er að ræða kaup á tækjum og bún­aði fyrir nýja alþing­is­menn, stand­setn­ingu á hús­næði, flutn­ings­kostnað og útgáfu á kynn­ing­ar­efni fyrir nýja þing­menn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None