alingi-juli-2015_19467533531_o.jpg
Auglýsing

Sjö flokkar fá yfir fimm pró­senta fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­sonar og myndu því geta náð inn þing­mönnum í kosn­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­senta fylgi í tveimur kosn­inga­spám í röð. 

Einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi, en það var árið 1987. Þá voru klofn­ings­fram­boð frá bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki í fram­boði og fengu menn inn á þing. Borg­ara­flokk­ur­inn, undir for­ystu Alberts Guð­munds­son­ar, náði sjö mönnum inn á þing. Þá fengu Sam­tök um jafn­rétti og félags­hyggju einn mann kjör­inn í eina kjör­dæm­inu sem boðið var fram í, Norð­ur­landi eystra, en það var Stefán Val­geirs­son. Sam­tök um jafn­rétti og félags­hyggju var sér­fram­boð hans, en hann hafði áður verið lengi þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, rétt eins og Albert hafði lengi verið þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í þessum kosn­ingum náði Kvenna­list­inn einnig að tvö­falda fylgi sitt frá kosn­ing­unum 1983, og fékk sex þing­konur inn. 

Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar áfram stærstir

Engin breyt­ing er á því, frekar en öllum kosn­inga­spám þessa árs, að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar eru vin­sæl­ustu flokk­arn­ir. Fylgi Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins fylgd­ist nokkurn veg­inn að í sept­em­ber, og var nokkuð svipað í öllum kosn­inga­spám, þannig að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist alltaf aðeins fyrir ofan Pírata. Í lok sept­em­ber breytt­ist þetta hins veg­ar, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur haldið svip­uðu fylgi og er nú með 24,1 pró­senta fylgi, en Píratar hafa lækkað flugið og farið úr 25,8 pró­sentum í byrjun sept­em­ber niður í 20,3 pró­sent nú. 

Auglýsing

Á sama tíma hefur fylgið við Vinstri græn þok­ast upp á við á ný og stendur nú í 14,3 pró­sent­u­m. 

Fylgi Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur verið á svip­uðum slóðum und­an­farna tvo mán­uði eða svo, en flokk­arnir eru þeir einu sem hafa á þessu tíma­bili haft sæta­skipti í kosn­inga­spánni. Við­reisn mælist nú á ný með meira fylgi en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eða sem fjórða stærsta fram­boð­ið. Við­reisn mælist með 11,3 pró­sent á meðan Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með 10,1 pró­sent. Yrðu þetta úrslit kosn­ing­anna yrði árangur Við­reisnar lík­lega besti árangur nýs flokks. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist hvorki hafa grætt né tapað á því að hafa verið aðal­við­fangs­efni frétta í kringum flokks­þing flokks­ins í byrjun mán­að­ar­ins. Í síð­ustu kosn­inga­spánni fyrir flokks­þingið mæld­ist flokk­ur­inn með 10,5 pró­senta fylgi og nú mælist fylgið sem fyrr segir 10,1 pró­sent. Nýr for­maður og for­ysta flokks­ins hefur því ekki haft mikil áhrif á fylgis­tölur flokks­ins fyrstu vik­una í emb­ætti, en nei­kvæðar fréttir og ásak­anir um svik frá gamla for­mann­in­um. 

Sam­fylk­ingin virð­ist ekki heldur vera að upp­skera nokkurn skap­aðan hlut í sinni kosn­inga­bar­áttu hingað til, hvað sem líður kosn­inga­lof­orðum um að gefa fólki allt að þrjár millj­ónir króna í fyr­ir­fram­greiddar vaxta­bætur til að kaupa sér hús­næði. Flokk­ur­inn hefur verið fastur í rúm­lega átta pró­senta fylgi í um það bil tvo mán­uð­i. 



Fjór­flokk­ur­inn far­inn 

Flokka­kerfið á Íslandi hefur oft verið nefnt fjór­flokka­kerfi, en miðað við allar spár þá er slíkt kerfi á und­an­haldi á Íslandi. Vin­sældir rót­gró­inna stjórn­mála­flokka hafa minnkað veru­lega og eins og staðan er í dag er útlit fyrir að þeir flokkar fái minni stuðn­ing en nokkru sinni fyrr í kosn­ing­unum í lok mán­að­ar­ins. 

Sam­an­­burður á nið­­ur­­stöðum kosn­­inga við nýj­­ustu kosn­­inga­­spána renna stoðum undir þessa til­­­gátu. Árið 1963 fengu flokk­­arnir sem þá skip­uðu fjór­­flokk­inn sam­tals 99,8 pró­­sent atkvæða. Árið 1987, þegar einn vin­­sæl­­asti fimmti leik­­ar­inn, Borg­­ara­­flokk­­ur­inn, steig fram á sviðið hlaut fjór­­flokk­­ur­inn 74,6 pró­­sent atkvæða. Í kosn­­ing­unum árið 2009, fáeinum mán­uðum eftir banka­hrun­ið, hlaut fjór­­flokk­­ur­inn 90 pró­­sent atkvæða. Sam­­kvæmt kosn­­inga­­spánni í dag mun fjór­­flokk­­ur­inn hins vegar ein­ungis fá 56,7 pró­­sent atkvæða.

Um kosn­inga­spána 7. októ­ber

    Nýjasta kosn­­inga­­spáin tekur mið af fjórum nýj­­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­­boða í Alþing­is­­kosn­­ing­unum í haust. Í spálík­­an­inu eru allar kann­­anir vegnar eftir fyrir fram ákveðnum atrið­­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­­fall, lengd könn­un­­ar­­tíma­bils og sög­u­­legur áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila. Kann­an­­irnar sem kosn­­inga­­spáin tekur mið af eru:

    • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 23. sept­em­ber – 5. októ­ber (24,8%)
    • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 3 – 4. októ­ber (21,5%)
    • Þjóð­ar­púls Gallup 16. – 29. sept­em­ber (32,2%)
    • Skoð­ana­könnun MMR 20. sept­em­ber – 26. sept­em­ber (21,5%)

    Kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­kosn­­­­­­­­­ing­­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­­raun vel. Á vefn­um kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­­inga­úr­slit­in.

    Áreið­an­­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­­um.

    Við þurfum á þínu framlagi að halda

    Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

    Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

    Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

    Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

    Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

    Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

    Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

    Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

    Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


    Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
    Þorbjörn Guðmundsson
    Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
    Kjarninn 11. janúar 2023
    Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
    Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
    Kjarninn 11. janúar 2023
    Sverrir Albertsson
    Vatn á myllu kölska
    Kjarninn 11. janúar 2023
    Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
    Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
    Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
    Kjarninn 10. janúar 2023
    Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
    Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
    Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
    Kjarninn 10. janúar 2023
    Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
    Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
    Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
    Kjarninn 10. janúar 2023
    Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
    Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
    Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
    Kjarninn 10. janúar 2023
    Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
    Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
    Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
    Kjarninn 10. janúar 2023
    Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
    Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
    None