Breytingar á fæðingarorlofi gagnast flestum mæðrum ekkert

42 prósent kvenna sem fara í fæðingarorlof eru með 300 þúsund krónur eða minna á mánuði. Nýlegar breytingar á reglum um Fæðingarorlofssjóð gagnast þeim ekkert. Ef tillögur starfshóps væru innleiddar fengju þær 100 prósent launa sinna í orlofi.

ólétt
Auglýsing

42 pró­sent þeirra mæðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof frá byrjun þessa árs og út sept­em­ber­mánuð voru með 300 þús­und krónur eða minna í mán­að­ar­tekj­ur. Alls voru 16 pró­sent feðra með 300 þús­und krónur eða minna í mán­að­ar­tekj­ur. Þessi hópur mun áfram fá ein­ungis 80 pró­sent af launum sínum þegar hóp­ur­inn fer í fæð­ing­ar­or­lof sam­kvæmt þeim breyt­ingum sem rík­is­stjórnin gerði nýver­ið.

Ef farið hefði verið eftir þeim til­lögum sem starfs­hópur Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og húnsæð­is­mála­ráð­herra, lagði fram í mars síð­ast­liðnum væru fyrstu 300 þús­und krónur af tekjum þeirra sem fara í fæð­ing­ar­or­lof óskert­ar. Þessi hópur lægst laun­uð­ustu Íslend­ing­anna sem taka fæð­ing­ar­or­lof, meðal ann­ars rúm­lega fjórða hver kona sem tekur slíkt, hefðu því haldið 100 pró­sent af tekjum sínum ef rík­is­stjórnin hefði farið eftir til­mælum starfs­hóps ráð­herr­ans. Þess í stað fær hann 80 pró­sent launa sinna í kjöl­far þeirrar reglu­gerð­ar­breyt­ingar sem rík­is­stjórnin sam­þykkti nýverið og tók gildi 15. októ­ber. Þetta kemur fram í tölum sem BSRB hefur unnið upp úr upp­lýs­ingum frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði.

Ef farið hefði verið að til­lögum starfs­hóps­ins, og fyrstu 300 þús­und krón­urnar sem nýir for­eldrar afla yrðu óskert­ir, þá myndu greiðslur til þeirra sem hafa hærri laun en 300 þús­und líka aukast umtals­vert. Þannig myndu þeir sem eru með tekjur á milli 300-400 þús­und fá 97 pró­sent launa sinna í fæð­ing­ar­or­lofi, þeir sem þéna 400-500 þús­und fá 93 pró­sent og þeir sem þéna 500-750 þús­und krónur fá 90 pró­sent launa að með­al­tali á mán­uði. Alls eru rúm­lega 80 pró­sent þeirra mæðra sem hafa tekið fæð­ing­ar­or­lof á þessu ári með mán­að­ar­tekjur undir 500 þús­und krónum á mán­uði. 44 pró­sent feðra sem tekið hafa orlof eru hins vegar með tekjur yfir 500 þús­und krónur á mán­uði.

Auglýsing

Greiðslur hækk­aðar upp í 500 þús­und

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum 7. októ­ber síð­ast­lið­inn að hækka hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði í 500 þús­und krónur. Greiðsl­urnar höfðu verið skertar mikið eftir hrun og hækkað mjög lítið á und­an­förnum árum. Þær voru 370 þús­und krónur á mán­uði fram að hækk­un­inni fyrr í þessum mán­uði. Til sam­an­burðar má nefna að í  árs 2008 voru hámarks­­greiðslur úr Fæð­ing­­ar­or­lofs­­sjóði 535.700 krón­­ur. Ef þær greiðslur hefðu fylgt vísi­­tölu neyslu­verðs - sem mælir verð­­bólgu - þá væru hámarks­­greiðslur úr sjóðnum 828.192 krón­­ur.

Ákvörðun rík­is­sjóðs var ekki fram­kvæmd með laga­breyt­ingu, heldur reglu­gerð­ar­breyt­ingu. Hún tók gildi 15. októ­ber síð­ast­lið­inn og gerði það að verkum að margar þeirra kvenna sem settar voru dag­anna fyrir þann dag reyndu hvað sem þær gátu til að fresta fæð­ingu, til að fá hærra fæð­ing­ar­or­lof.

Starfs­hópur um fram­­tíð­­ar­­stefnu í fæð­ing­­ar­or­lofs­­málum skil­aði til­­lögum til Eyglóar í mars síð­­ast­liðn­­­um. Þar var lagt til að hámarks­­greiðslur yrðu hækk­­aðar upp í 600 þús­und krón­­ur, að fyrstu 300 þús­und krónur tekna verði óskertar en 80 pró­­sent af tekjum umfram það. Þá lagði hóp­­ur­inn til að hámarks­­greiðsl­­urnar myndu breyt­­ast í sam­ræmi við launa­­vísi­­tölu hvers árs og að breyt­ing­­arnar myndu taka gildi um næstu ára­­mót.

Auk þess var lagt til að fæð­ing­­ar­or­lof yrði 12 mán­uðir í stað níu frá og með byrjun árs 2019 og að leik­­skóla­d­völ yrði tryggð í fram­haldi af fæð­ing­­ar­or­lofi.

Kostn­að­­­ur­inn við þessar breyt­ingar yrði tals­verð­­­ur. Greiðslur Fæð­ing­­­ar­or­lofs­­­sjóðs voru 8,5 millj­­­arðar í fyrra og gert er ráð fyrir að þær verði 8,8 millj­­­arðar á þessu ári. Með því að hækka hámarks­­­greiðsl­­­urnar í 600 þús­und krónur fer kostn­aður sjóðs­ins upp í um 10,7 millj­­­arða á næsta ári og verður um 12,2 millj­­­arðar á ári eftir það. Eygló sagð­ist samt sem áður ætla að vinna frum­varp upp úr til­­lög­un­­um.

Úr því varð ekki og þess í stað var ráð­ist í reglu­gerð­ar­breyt­ingu þremur vikum fyrir kosn­ingar sem hækk­aði hámarks­greiðslur úr 370 þús­und í 500 þús­und krón­ur.

Kostn­aður auk­ist gríð­ar­lega

Viku áður en að reglu­gerð­ar­breyt­ingin var sam­þykkt greindi Kjarn­inn frá því að á sama tíma og hámarks­­greiðslur úr Fæð­ing­­ar­or­lofs­­sjóði höfðu dreg­ist saman um rúm­­lega 30 pró­­sent hefðu laun og útgjöld heim­ila hækkað um tugi pró­­senta. Kostn­aður vegna heil­brigð­is­­þjón­­ustu og lyfja hafði hækkað um 47,7 pró­­sent, föt og skór hækkað um 56,6 pró­­sent og mat­­ar- og drykkj­ar­vörur um 68,7 pró­­sent. Þá hafði hús­næð­is­verð hækkað um 20,4 pró­­sent og húsa­­leiga um heil 84,5 pró­­sent. Þetta kom fram í tölum sem BSRB og ASÍ hafa tekið saman ann­­ars vegar um þróun hámarks­­greiðslna úr Fæð­ing­­ar­or­lofs­­sjóði frá árinu 2008 og hins vegar um hlut­­falls­­lega hækkun launa og útgjalda heim­il­is­ins frá árinu 2008.

Nið­­ur­­staðan var skýr. Greiðslur úr fæð­ing­­ar­or­lofs­­sjóði höfðu lækkað mikið en allir kostn­að­­ar­liðir hækkað veru­­lega. Afleið­ingin er sú að færri feður taka fæð­ing­­ar­or­lof, fæð­ing­­ar­­tíðnin er sú lægsta frá því að mæl­ingar hófust árið 1853 og sá hópur sem á erf­ið­­ara með að láta enda ná saman eftir barns­­burð hefur vaxið mjög.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None