Ungt fólk
Auglýsing

Tæp­lega 26 þús­und Íslend­ingar hafa flutt úr landi frá byrjun árs­ins 2010, á meðan að ríf­lega 19 þús­und hafa flutt til Íslands. Brott­fluttir Íslend­ingar eru því 6.410 fleiri en aðfluttir á þessu tíma­bili, sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarn­ans upp úr mann­fjölda­tölum Hag­stofu Íslands

Líkt og greint var frá í Kjarn­anum í síð­ustu viku hafa 270 fleiri Íslend­ingar flutt burt af land­inu það sem af er ári en flutt hafa heim. Útlit er fyrir tals­vert brott­flutn­ingsár í ár, þó lík­legt sé að það verði ekki eins mikið og í fyrra. Fyrstu níu mán­uði árs­ins fluttu 2.695 Íslend­ingar úr landi, en 2.425 fluttu heim. Allt árið í fyrra fluttu 2.380 Íslend­ingar heim til Íslands á meðan 3.785 fluttu burt. 

Sam­kvæmt því fluttu því 1.305 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar úr landi en fluttu til lands­ins. Árið í fyrra var eitt mesta brott­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar hófust, og aðeins fimm sinnum áður frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­fluttir verið umfram aðflutta. Í öll hin skiptin var það í kjöl­far kreppu­ára hér á landi. Hafa ber í huga að fyrstu árin í þess­ari umfjöll­un, 2010 og 2011, telj­ast til kreppu­ára og eru meðal mestu brott­flutn­ings­ár­anna.

Auglýsing

Hag­stofan hefur spáð því að þró­unin verði á þessa leið áfram og fleiri Íslend­ingar muni flytja burt en heim á hverju ári fram til árs­ins 2065. 

Stærsti hóp­ur­inn fólk undir 30 

Kjarn­inn ákvað að kafa dýpra ofan í töl­urnar eftir aldri, en þær eru greindar árs­fjórð­ungs­lega eftir ald­urs­bilum aftur til árs­ins 2010. 

Mesta hreyf­ingin er hjá fólki á aldr­inum 20 til 29 ára, sem kemur kannski ekki á óvart, enda fyrsti ára­tugur full­orðn­is­ára og sá tími sem flestir Íslend­ingar ljúka námi og eru lík­legir til að fara utan til vinnu eða frekara náms. 

Það sem af er þessu ári eru 380 fleiri Íslend­ingar á þessu ald­urs­bili fluttir burt en heim. Tæp­lega þrjú þús­und fleiri Íslend­ingar á aldr­inum 20 til 29 hafa flutt í burtu en heim á þessu tæp­lega sex ára tíma­bili. 7.770 hafa flutt burt á meðan 4.840 hafa komið heim. Öll árin frá 2010 er þessi hópur stærstur bæði meðal brott­fluttra og aðfluttra. 

Þegar sagt var frá því í lok síð­asta árs að árið væri eitt mesta brott­flutn­ingsár íslenskra rík­is­borg­ara, sagði Ásgeir Jóns­son, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands að vís­bend­ingar væru um að margt háskóla­fólk flytti úr land­inu. Eitt­hvað djúp­stæð­ara væri á ferð­inni en kreppu­flutn­ing­ar. Bat­inn á vinnu­mark­aði sem átt hafi sér stað á und­an­förnum árum hafi ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti. „Þá má minna á að sam­­kvæmt Hag­­stof­unni er munur á ráð­­stöf­un­­ar­­tekj­um ­mennt­aðs og ómennt­aðs fólks hér einn sá minnsti í Evr­­ópu,“ sagði Ásgeir við Morg­un­­blað­ið í lok síð­asta árs. Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofn­un, tók þá í svip­aðan streng og sagði vís­bend­ingar um að margir finni ekki vinnu sem henti námi og bak­grunni, og nokkur fjöldi háskóla­mennt­aðra væru á atvinnu­leys­is­skrá. Þá voru 1.207 atvinnu­lausir með háskóla­próf. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum voru 1.038 háskóla­mennt­aðir á atvinnu­leys­is­skrá, af 3.580 manns, sem gerir tæp­lega þriðj­ung.

Fleiri fluttir burt í öllum ald­urs­hópum

Þótt flestir brott- og aðfluttir Íslend­ingar séu milli tví­tugs og þrí­tugs eru fleiri brott­fluttir en aðfluttir í öllum ald­urs­hópum á þessum árum. Minnstur er mun­ur­inn á brott­fluttum og aðfluttum meðal fólks yfir sex­tugu, 35 fleiri hafa flutt burt en heim frá árinu 2010. 

Fólk milli þrí­tugs og fer­tugs er ekki svo langt frá ald­urs­hópnum fyrir neð­an, ríf­lega fjögur þús­und manns á þessum aldri hafa flutt heim á tíma­bil­inu en 5.260 hafa flutt í burtu, sem gerir mun upp á 1.250 manns. Ekki er ólík­legt að þessi hópur eigi að ein­hverju leyti börnin undir 10 ára aldri sem hafa flust til og frá land­inu á þessu tíma­bili. 3.830 börn undir tíu ára hafa flutt til Íslands en 4.670 hafa flutt burt, sem gerir börn undir tíu ára að þriðja stærsta hópi þeirra sem flutt hafa burt umfram þá sem komið hafa heim. 840 fleiri börn hafa flutt úr landi en heim. 

714 fleiri Íslend­ingar á aldr­inum 40 til 49 ára hafa svo flutt burt á tíma­bil­inu, 2.940 burt á meðan 2.225 hafa flutt heim. Hjá 50 til 59 ára er mun­ur­inn 385 ein­stak­ling­ar, 1.260 hafa flutt heim en 1.645 burt. Og að lokum er mun­ur­inn 255 ein­stak­lingar hjá börnum á aldr­inum 10 til 19 ára, 2.840 hafa flutt úr landi en 2.585 heim. 

Börn að flytja heim

Það sem af er þessu ári hafa 130 fleiri börn og ung­menni á aldr­inum 0-19 ára flutt heim til Íslands heldur en farið hafa burt. Líkt og fyrr segir hafa 380 fleiri ein­stak­lingar á aldr­inum 20 til 29 ára flutt burt en heim, og 40 fleiri á aldr­inum 30 til 39 ára. Hins vegar hafa 10 fleiri Íslend­ingar á aldr­inum 40 til 49 ára flutt heim en burt á þessu ári og 20 á aldr­inum 50 til 59 ára. Fleiri Íslend­ingar sex­tíu ára og eldri hafa aftur á móti flutt burt heldur en heim, eða 10 fleiri það sem af er ári. Hafa ber í huga að allar tölur fyrir þetta ár gilda auð­vitað bara um fyrstu níu mán­uði árs­ins og geta því árs­töl­urnar breyst tals­vert þegar síð­asti árs­fjórð­ungur er lið­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None