Fyrstu áfangarnir í loftslagsmálum borgarinnar klárast um áramót

Reykjavíkurborg kynnti stöðu loftslagsmála í Ráðhúsinu í gær. Árlegur fundur verður haldinn til þess að gera grein fyrir árangrinum sem náðst hefur í loftslagsmálum.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Auglýsing

Skipu­lags og und­ir­bún­ings­ferli lofts­lags­að­gerða Reykja­vík­ur­borgar fer senn að ljúka og við tekur fram­kvæmda­ferli í þessum mála­flokki þar sem stefnu­mörk­un­inni verður hrint í fram­kvæmd. Sér­stakur kynn­ing­ar- og upp­lýs­inga­fundur var hald­inn í Ráð­húsi Reykja­víkur í gær­morgun þar sem staðan í lofts­lags­málum borg­ar­innar var útli­st­uð.

„Við erum að vinna á mjög mörgum svið­um. Nú erum við búin að skil­greina hvaða svið borg­ar­innar og hvaða sam­starfs­að­ilar bera ábyrgð á hverju verk­efni fyrir sig,“ segir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í sam­tali við Kjarn­ann. Búið sé að leggja inn­leið­ing­ar­á­ætlun fyrir borg­ar­ráð og nú fari ýmis verk­efni að rúlla af stað. „Sum þeirra eru með skila­fresti í lok þessa árs, til dæmis áætlun um end­ur­heimt vot­lendis og aðgerða­á­ætlun varð­andi mat­ar­só­un. Þessir áfangar eru að nást.“

Borgin leikur stóran þátt í aðgerðum Íslend­inga til þess að stemma stigu við hlýnun lofts­lags á jörð­inni. Reykja­vík er stærsta sveit­ar­fé­lagið á land­inu og sinnir sorp­hirðu, rekur stóra vinnu­staði og hefur umsjón með stóru gatna­kerfi og almenn­ings­sam­göngum svo fátt eitt sé nefnt. Allt eru þetta mik­il­vægar víg­línur þegar kemur að lofts­lags­mál­um.

Auglýsing

Bæj­ar­stjórar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­rit­uðu sam­komu­lag í gær sem felur í sér að farið verið í við­ræður við inn­an­rík­is­ráðu­neyt­ið, fjár­mála­ráðu­neytið og Vega­gerð­ina um form­legt sam­starf um fjár­mögnun og laga­breyt­ingar sem þarf til þess að Borg­ar­lína verði að veru­leika. Kjarn­inn fjall­aði um und­ir­ritun bæj­ar­stjór­anna í gær.

„Við erum að leysa stærri hluta sam­­göng­u­þarfar­innar til fram­­tíðar með öfl­­ugri almenn­ings­­sam­­göng­­um. Til þess erum við bæði að bæta Strætó en við þurfum líka afkasta­­meiri hágæða almenn­ings­­sam­­göngur á stöðum þar sem margir búa,“ segir Dag­­ur.

Skipu­lags­mál og þétt­ing byggðar er einnig ofar­lega í huga Dags þegar hann þylur upp þau verk­efni sem skipta hvað mestu máli. Hann segir að þessi mála­flokkur sé lyk­il­at­riði ef sá árangur á að nást sem sveit­ar­stjórn­ar­menn vilji. „Þar eru að detta inn deiliskipu­lags­á­ætl­anir í hverjum mán­uði. Við erum síðan að vinna að orku­skiptum í sam­göng­um. Sumt af því eru skamm­tíma­mál, annað eru lang­tíma­mál.“

Mun fleiri mættu á fundinn í ráðhúsinu í gær en gert var ráð fyrir og þurfti að bæta við stólum í salinn. Mynd: Jón Halldór Jónasson

Árlegt stöðu­mat

Ætl­unin er að halda svip­aðan fund og í gær að ári og gera þennan við­burð árleg­an. Þar á að útlista þann árangur sem náðst hefur í lofts­lags­málum í borg­inni og skapa eins­konar mæla­borð fyrir árang­ur­inn. „Það sem við vorum að gera hérna í dag er að setja niður árlegan fund þar sem við gerum grein fyrir áföng­unum á hverju ári. Því að mér finnst svo­lítið mik­il­vægt að þetta séu ekki bara áætl­anir og áform heldur raun­veru­leg verk­efn­i,“ segir Dag­ur. Mik­il­vægt sé að geta mælt árang­ur­inn, svo álykt­anir verði ekki dregnar af til­finn­ingu einni.

„Þannig að við teljum þá raf­bíl­ana, við teljum hleðslu­stöðv­arn­ar, við teljum Strætófar­þeg­ana, við teljum sér­flokk­aða plast­ið, við teljum papp­ír­inn. Við fylgj­umst með þessu og búum til mæla­borð fyrir árang­ur­inn þannig að það sé ekki bara talað út frá til­finn­ingu; að við höldum að þetta sé að ganga nokkuð vel.“

Þessi fundur í ráð­hús­inu var ekki aðeins hald­inn af Reykja­vík­ur­borg heldur einnig Festu, sam­taka fyr­ir­tækja í borg­inni um sam­fé­lags­á­byrgð. Festa hefur sleg­ist í för með borg­inni í tengslum við lofts­lags­málin og fyr­ir­tækin sem þar starfa saman und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um að taka fullan þátt í lofts­lags­að­gerðum borg­ar­inn­ar.

Dagur segir mik­il­vægt að allir vinni saman í þessum mála­flokki því vitað er að ef mál­unum er ekki fylgt fast eftir þá verði ekki hægt að ná árangri. „Þess vegna erum við að taka þetta svona föstum tökum og fá öll þessi fyr­ir­tæki með okkur og fá önnur sveit­ar­fé­lög með okk­ur. Og síð­ast en ekki síst að fá gras­rót fólks með okk­ur; heim­ilin í land­inu, skól­ana og fólk sem brennur fyrir því að Reykja­vík verði græn,“ segir hann.

„Þess vegna er þessi fund­ur. Þess vegna er þetta ekki bara ein ákvörðun eða áætlun heldur heljar mikið ferli þar sem við þurfum að veita okkur sjálfum aðhald með að þessir hlutir ger­ist raun­veru­lega.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None