Hlutur ríkisins í bensínverði aldrei stærri

Bensínverð hefur hækkað um 4,10 krónu á hvern lítra síðan í desember 2016. Búast má við að bensínverð hækki enn frekar á næstu misserum.

Hlutur ríkisins í bensínverði á Íslandi er nú 58,22 prósent og hefur aldrei verið hærri.
Hlutur ríkisins í bensínverði á Íslandi er nú 58,22 prósent og hefur aldrei verið hærri.
Auglýsing

Bens­ín­verð á Íslandi er fjórum krónum hærra núna, um miðjan jan­ú­ar, en það var í des­em­ber. Þetta sést í bens­ín­vakt Kjarn­ans þar sem skoða má sund­ur­liðað bens­ín­verð og þá kostn­að­ar­liði sem mynda bens­ín­verð hér á landi. Skýra má stærstan hluta hækk­un­ar­innar með hækk­unum opin­berra gjalda en hlutur rík­is­ins í bens­ín­verði hefur aldrei verið meiri en hann er nú 58,22 pró­sent. Sá stóri hlutur verður að öllum lík­indum aðeins tíma­bund­inn ef heims­mark­aðs­verð á olíu heldur áfram að hækka og krónan að veikj­ast.

Hækk­unin nemur 4,10 krónum á hvern lítra í við­mið­un­ar­verð­inu sem stuðst er við í bens­ín­vakt­inni og kostar bens­ín­lítr­inn nú 194,40 krón­ur. Mest munar um hækkun opin­berra gjalda sem hækk­uðu um ára­mótin í takt við fjár­lög árs­ins 2017, og Kjarn­inn fjall­aði um í des­em­ber.

Þrír liðir opin­berra gjalda sem falla á bens­ín­verð hækk­uðu um ára­mót­in. Það voru almennt bens­ín­gjald sem hækk­aði úr 25,6 krónum á lítr­ann í 26,60 krónur eða um 4,69 pró­sent, sér­stakt bens­ín­gjald sem hækk­aði úr 41,30 krónum á hvern lítra í 43,25 krónur á hvern lítra eða um 4,72 pró­sent og svo kolefn­is­gjaldið sem hækk­aði um 25 aura og er nú 5,50 krónur á hvern lítra. Hlut­falls­leg hækkun kolefn­is­gjalds­ins er 4,76 pró­sent.

Auglýsing

Hægt er að skýra stærstan hluta hækk­unar lítra­verðs á bens­íni með þessum hækk­un­um. Í öllum þremur til­vikum er um fasta krónu­tölu að ræða en ekki hlut­fall af öðrum lið bens­ín­verðs­ins. Sam­tals nam hækkun þess­ara þriggja opin­beru gjalda sem hér hafa verið taldir upp 3,4 krón­um. Enn vantar 0,7 krónur til þess að skýra alla verð­hækk­un­ina á milli mán­aða.

Fylgstu með bens­ín­verð­inu á Bens­ín­vakt Kjarn­ans
Kann­aðu verðið

Bens­ín­verð á Íslandi skipt­ist í þrjá meg­in­liði. Það er algengt inn­­­kaupa­verð, opin­ber gjöld sem ríkið leggur á elds­­neyt­is­verð og hlutur olíu­­­fé­laga. Opin­beru gjöldin breyt­­ast lítið á milli mán­aða; það er raunar aðeins virð­is­auka­skatt­­ur­inn sem getur breyst nema með sér­­­stökum laga­breyt­ingum frá Alþingi. Virð­is­auka­skatt­­ur­inn er hlut­­falls­­legur skattur á elds­­neyt­is­verð en önnur opin­ber gjöld sem leggj­­ast á lítra­verðið eru föst krón­u­tala sem ákvörðuð er í fjár­­lög­­um. Krón­u­­gjöldin á bens­ín­verð eru almenn vöru­­gjöld, sér­­­stök vöru­­gjöld og kolefn­is­­gjald.

Bens­ín­gjöldin óhreyfð í tvö ár

Bens­ín­gjöld­unum hefur reyndar ekki verið breytt í tvö ár, og verð­lag á þeim tíma (des­em­ber 2014-des­em­ber 2016) hefur hækkað um 3,95 pró­sent. Þetta er ekki mikil hækkun að raun­virði miðað við upp­haf tíma­bils­ins, en hækkun samt, og kemur beint inn í bens­ín­verðið sem hefur bein áhrif á vísi­tölu neyslu­verðs.

Kolefn­is­gjaldið var hækkað í fjár­lögum árs­ins 2016 úr 5,10 krónum á hvern lítra í 5,25 krón­ur. Kolefn­is­gjaldið er nú 5,50 krónur á hvern lítra. Það hefur þess vegna hækkað um 7,84 pró­sent á meðan almennt verð­lag hefur hækkað um 3,95 pró­sent.

Á þeim tíma sem útreikn­ingar bens­ín­vakt­ar­innar ná til hefur hlutur rík­is­ins í verði bens­ín­lítrans aldrei verið stærri, eða 58,22 pró­sent. Upp­haf tíma­bils­ins mið­ast við ágúst 2007, þegar bens­ín­lítr­inn kost­aði 123,40 krón­ur.

Eykst hlutur olíu­fé­lag­anna á árinu?

Aur­arnir 70 sem vantar upp á til þess að skýra 4,10 krónu hækkun á bens­ín­lítra­verði falla á tvo liði. Lík­legt inn­kaupa­verð á bens­íni hefur hækkað um nokkrar krónur síðan í des­em­ber. Sú hækkun auk hækk­unar krónu­gjald­anna svoköll­uðu veldur því að krónu­tala virð­is­auka­skatts­ins hækk­ar. Hlutur olíu­fé­lag­anna minnkar um rúm­lega fimm krónur á hvern bens­ín­lítra og vegur það upp á móti hærra inn­kaupa­verði.

Búast má við að bens­ín­verð muni hækka nokkuð á næst­unni í takt við hærra inn­kaupa­verð og veik­ingu krón­unn­ar. Við­búið er að heims­mark­aðs­verð á olíu hækki á næstu miss­erum vegna ákvörð­unar OPEC-­ríkj­anna, sam­taka olíu­fram­leiðslu­ríkja, um að tak­marka olíu­fram­leiðslu sína til þess að hækka heims­mark­aðs­verð­ið. Fatið af hrá­olíu kostar nú um 53,14 doll­ara. Á sama tíma í fyrra kost­aði fatið 36,41 doll­ara.

Lesa má nánar um sund­ur­liðun bens­ín­verðs­ins á vef bens­ín­vakt­ar­innar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None