Verðhrun Icelandair - Hvað veldur?

Icelandair hrapaði á markaði í gær. Vísitalan lækkaði um ríflega 6 prósent enda vegur Icelandair þungt fyrir heildina.

Icelandair - Mynd: Eric Salard
Auglýsing

Mark­aðsvirði Icelandair Group hefur hrapað á und­an­förnum mán­uð­um. Gengi bréfa félags­ins er nú rúm­lega 16 á hlut en var tæp­lega 40 fyrir rúmu hálfu ári, í lok maí mán­aðar í fyrra. Þá var mark­aðsvirði félags­ins um 189 millj­arða króna en nú er það 83 millj­arða, miðað við stöðu félags­ins í lok árs í gær. 

Icelandair er eitt mik­il­væg­asta fyr­ir­tæki lands­ins og hefur verið það á upp­gangs­tímum í ferða­þjón­ust­unni á und­an­förnum sex árum.

Gengi félags­ins á mark­aði í gær var með nokkrum ólík­indum en mark­aðsvirði félags­ins lækk­aði um rúm­lega 24 pró­sent eftir að til­kynn­ing var send til kaup­hallar og greint þar frá versn­andi afkomu rekstr­ar­ins. 

Auglýsing

Miðað við síð­ustu birtu upp­lýs­ingar frá fyr­ir­tæk­inu þá nema eignir félags­ins tæp­lega 1,2 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 145 millj­örðum króna. Eigið fé félags­ins nemur tæp­lega 600 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 74 millj­örðum króna. 

En hvers vegna er gengi bréfa félags­ins að lækka jafn mikið og raun ber vitni, á sama tíma og mik­ill vöxtur hefur verið í ferða­þjón­ustu?

Nokkur atriði má þar nefna sér­stak­lega, sem varða rekstur félags­ins og hags­mun­ina sem eru und­ir. 

1. Í til­kynn­ingu Icelandair til kaup­hallar frá því í gær, kemur fram að miðað við núver­andi for­sendur geri félagið ráð fyrir að EBITDA árs­ins 2017 verði 140-150 millj­ónir Banda­ríkja­dala en í fyrra var hún 210 til 220 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Ljóst er að þessar upp­lýs­ingar virð­ast hafa farið illa í mark­að­inn, enda um mikla lækkun að ræða milli ára gangi spáin eft­ir.

2. Gert er ráð fyrir að verð á þotu­elds­neyti (án til­lits til varna) verði 540 USD/tonn að með­al­tali, gengi EUR gagn­vart USD verði að með­al­tali 1,07 og geng­is­vísi­tala íslensku krón­unnar verði 164 að með­al­tali á árinu 2017. Vísi­talan hefur að und­an­förnu verið í kringum 160. Eins og oft, er erfitt að spá fyrir um hvernig gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum þró­ast á þessu ári, en á því síð­asta styrkt­ist krónan veru­lega, eða um 18,4 pró­sent að með­al­tali. Of mikil styrk­ing getur verið erfið fyrir Icelanda­ir. 

3. Í til­kynn­ingu Icelandair er sér­stak­lega vikið að því að gangur í alþjóð­stjórn­málum kunni að hafa haft áhrif á gang mála þegar kemur að pönt­unum á ferða­lögum til Íslands. Ekki er nákvæm­lega greint frá því um hvaða hrær­ingar er að ræða. Ferða­bann Banda­ríkj­anna á íbúa sjö ríkja þar sem múslimar eru í meiri­hluta hefur þó vakið gríð­ar­leg við­brögð í Banda­ríkj­un­um. The Economist fjall­aði meðal ann­ars um mögu­leg mikil nei­kvæð áhrif af bann­inu á ferða­þjón­ust­una og segir þau geta orðið víð­tæk. Fólk muni ein­fald­lega hræð­ast það að ferð­ast út fyrir land­ið, ekki síst inn­flytj­end­ur. Allur hrær­ingur í dval­ar­leyfum geti leitt til hræðslu hjá fólki. Í fyrra komu 415 þús­und Banda­rískir ferða­menn til lands­ins, eða um 24 pró­sent af heild­inn­i. 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir langtímahorfur góðar hjá Icelandair.

4. Stærstu hlut­hafar félags­ins eru líf­eyr­is­sjóð­ir. Stærsti ein­staki hlut­haf­inn er Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna með 14,6 pró­sent. Af fimm stærstu hlut­höf­unum eru auk Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna Gildi og LSR með ríf­lega sjö pró­sent hlut hvort. Þessi mikla lækkun að und­an­förnu, upp á meira en hund­rað millj­arða að mark­aðsvirði, hefur því verið tölu­vert högg fyrir þá. 

5. Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, hefur sagt að þrátt fyrir skamm­tíma­sveiflur sem komi sér illa fyrir félagið þá sé félagið með sterka og trausta stöðu til lengdar lit­ið. Hót­el­starf­semin gangi vel. Harðn­andi sé í sam­keppni á flug­leiðum til og frá Íslandi og það komi við rekst­ur­inn. Þá vinni félagið að því að hag­ræða í rekstri og auka tekj­ur, eins og kostur er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None