15 hrunmálum lokið og 20 enn eftir

Ekki sér fyrir endann á meðferð hrun mála fyrir dómstólum ennþá.

Hæstiréttur
Auglýsing

Um þessar mundir eru fimm mál til með­ferðar fyrir Hæsta­rétti sem telj­ast til svo­nefndra hrun mála, og tvö fyrir hér­aðs­dómi. Til hrun mála telj­ast mál sem tengj­ast hruni fjár­mála­kerf­is­ins með einum eða öðrum hætti. Tæp­lega átta og hálft ár eru frá því Kaup­þing, Glitnir og Lands­bank­inn féllu eins og spila­borg á þremur dög­um, 7. til 9. októ­ber 2008.

Aðspurður um stöð­una á hrun málum um þessar mundir segir Ólafur Þór Hauks­son, hér­aðs­sak­sókn­ari, að 15 mál hafi farið fyrir Hæsta­rétt og sé lok­ið, sex mál séu enn í rann­sókn og önnur sex í ákæru­með­ferð, þar sem meta þarf hvort ákært verði í þeim eða ekki. Eitt mál­anna er í bið­stöðu vegna rann­sóknar erlend­is, að sögn Ólafs Þórs. Fimmtán málum er því lokið og 20 málum ólok­ið, sé mið tekið af þessu.

Banka­stjórar allra bank­anna, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitn­is, og Sig­ur­jón Þ. Árna­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, hafa hlotið fang­els­is­dóma og eru ennþá til með­ferðar mál sem bein­ast að þeim tveimur fyrr­nefndu. Hall­dór J. Krist­jáns­son, sem var banka­stjóri með Sig­ur­jóni hjá Lands­bank­an­um, hefur ekki hlotið dóm vegna hruns­máls og ekki verið ákærð­ur.

Auglýsing

Verjendur sjást hér í dómsal. Aðalmeðferðir hafa oft tekið margar vikur í hrunmálunum.

Á þriðja tug ann­arra hafa hlotið dóma í hrun­mál­un­um, sem flest hafa verið mikil að umfangi og verið tíma­frek í rann­sókn, eins og segir í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. Stærsta mál­ið, með til­liti til fjölda ákærðra, mál­skjala og umfangs í upp­hæð­um, var mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Kaup­þings, en í því voru allir 9 ákærðu sak­felld­ir, en þyngstu dómana hlutu æðstu stjórn­endur bank­ans.

Sak­fellt hefur verið í vel­flestum mál­unum í Hæsta­rétti, eins og greint er frá í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara frá því í nóv­em­ber í fyrra. „Af þeim 806 málum sem emb­ættið tók við lutu 208 að upp­haf­legu verk­efni þess, rann­sókn og sak­sókn mála sem tengd­ust efna­hags­hrun­inu (hrun­mál), og lauk það með­ferð 173 þeirra, 27 voru í vinnslu þegar emb­ættið var lagt niður og átta biðu afgreiðslu. Alls fóru 46 hrun­mál í ákæru­með­ferð á starfs­tíma emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Þar af fékkst end­an­leg dóms­nið­ur­staða í níu mál­anna. Einum dómi hér­aðs­dóms var unað en átta dómar féllu í Hæsta­rétti. Sak­fellt var að hluta eða öllu leyti í sjö málum en sýknað í tveim­ur,“ segir í skýrsl­unni. Þegar allt er talið eru það fimmtán mál, stór og smærri, sem er lokið fyrir Hæsta­rétti, sam­kvæmt svari Ólafs Þórs.

Embætti sérstaks saksóknara, sem nú hefur verið aflagt og embætti héraðssaksóknara tekið við verkefnum þess, fékk mörg mál inn á sitt borð eftir hrunið.

Í nýjasta mál­inu sem telst til hrun mála var sýkn­að, en í því voru stjórn­ar­menn og for­stjóri SPRON ákærð vegna lán­veit­ingar SPRON til Exista 30. sept­em­ber 2008, eða fyrir tæp­lega átta og hálfu ári. Einnig var sýknað í hér­aði í því máli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None