Tíu staðreyndir um stöðu íslensks efnahags

Peningamál Seðlabanka Íslands voru birt í gær. Þar er farið yfir stöðuna í efnahagsmálum íslensku þjóðarinnar á árinu 2016 og framtíðarhorfur.

króna
Auglýsing

  1. Seðla­banki Íslands áætlar að hag­vöxtur hafi verið sex pró­sent á árinu 2016. Hann var 4,1 pró­sent árið 2015, 1,9 pró­sent árið 2014, 3,6 pró­sent árið 2013, 1,3 pró­sent árið 2012 og 2,4 pró­sent árið 2011. Árið þar á und­an, 2010, var hann nei­kvæður um 3,1 pró­sent. Hag­vöxtur í helstu við­skipta­löndum Íslands var 1,6 pró­sent í fyrra. Búist er við því að hag­vöxtur þeirra verði 1,7 pró­sent að með­al­tali í ár og 1,9 pró­sent árið 2019.

  2. Þrátt fyrir hækkun á olíu- og hrá­vöru­verðs eru horfur á að við­skipta­kjör íslensks þjóð­ar­bú­skapar batni enn frekar á árinu 2017.

  3. Áætlað er að útflutn­ingur hafi auk­ist um lið­lega tíu pró­sent á árinu 2016. Þar munar lang­mest um aukin umsvif í ferða­þjón­ustu, en Seðla­bank­inn áætlar að umsvif hennar hafi auk­ist um 37 pró­sent á árinu að raun­virði. Umfang ferða­þjón­ustu er nú fjór­falt meira í þjóð­ar­bú­skapnum en það var árið 2010.

  4. Íslenska krónan styrkt­ist um tólf pró­sent á árinu 2016. Helstu ástæður þess eru bætt við­skipta­kjör Íslands ann­ars vegar og ör vöxtur ferða­þjón­ustu hins veg­ar.

  5. Seðla­bank­inn býst við því að hún haldi áfram að styrkj­ast á ári og að geng­is­vísi­talan verði um 163 að með­al­tali. Hún er í dag 170 stig. Enn fremur býst Seðla­bank­inn við því að geng­is­vísi­talan fari í 152 stig árið 2019.

  6. Verð­bólga á Íslandi hefur nú verið undir verð­bólgu­mark­miðum í næstum þrjú ár. Hún er sem stendur 1,9 pró­sent, en verð­bólgu­mark­miðið er 2,5 pró­sent. Í Pen­inga­málum segir að verð­bólgu­horfur hafi batnað lít­il­lega frá síð­ustu spá Seðla­bank­ans þrátt fyrir meiri spennu í þjóð­ar­bú­skapn­um. „Þær byggj­ast þó á þeirri for­sendu að kjara­samn­ingar á vinnu­mark­aði losni ekki á næst­unni. Um það ríkir hins vegar tölu­verð óvissa. Á móti inn­lendum verð­bólgu­þrýst­ingi vegur lítil alþjóð­leg verð­bólga, hækkun gengis krón­unnar á spá - tím­anum og aðhalds­söm pen­inga­stefna. Pen­inga­stefnan hefur skapað verð­bólgu­vænt­ingum kjöl­festu, haldið aftur af útlána­vexti og stuðlað að meiri sparn­aði en ella.“

  7. Seðla­bank­inn býst þó við því að verð­bólgan fari yfir verð­bólgu­mark­mið á árinu 2017. Í Pen­inga­málum segir að talið sé að verð­bólga verði um tvö pró­sent fram yfir mitt ár, en taki þá að þok­ast upp á við og verði komin í mark­mið á seinni hluta árs­ins. „Horfur eru á að verð­bólga fari tíma­bundið upp fyrir mark­miðið er líður á spá­tím­ann þegar áhrif geng­is­hækk­un­ar­innar taka að fjara út en að hún verði nálægt mark­mið­inu í lok spá­tím­ans.“

  8. Spennan á vinnu­mark­aði er mikil og störfum fjölgar hratt. Atvinnu­leysi er komið niður fyrir 3 pró­sent. Atvinnu­þátt­taka er jafn­framt orðin meiri en hún var mest á þenslu­tím­anum fyrir fjár­málakrepp­una en á móti vegur tölu­verður inn­flutn­ingur á erlendu vinnu­afli.

  9. Hrein gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans á árinu 2016 námu rúm­lega 360 millj­örðum króna. Það er um 40 pró­sent meira en árið á und­an. Gjald­eyr­is­vara­forði bank­ans jókst um 163 millj­arða króna í fyrra og nam í árs­lok 815 millj­örðum króna. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði á kynn­ing­ar­fundi í gær að bank­inn telji gjald­eyr­is­vara­forð­ann vera orð­inn nægj­an­lega stór­an.

  10. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans til­kynnti í gær­morgun að meg­in­vextir bank­ans, oft kall­aðir stýri­vextir, verði áfram fimm pró­sent. Þeir mynda gólf fyrir aðra óverð­tryggða vexti í land­inu. Vextir voru tví­vegis lækk­aði í fyrra, í ágúst um 0,5 pró­sent og aftur í des­em­ber um 0,25 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None