Fleiri komu heim í fyrsta sinn frá hruni

Fleiri Íslendingar fluttu heim í fyrra frá Noregi, Danmörku og Svíþjóð samanlagt en fluttu til þessara landa. Þetta er í fyrsta sinn frá hruni sem fleiri koma heim frá þessum ríkjum en fara til þeirra. Í heildina fluttu samt fleiri burt en heim.

Hallgrímskirkja
Auglýsing

Tíu fleiri Íslend­ingar fluttu til Íslands frá Dan­mörku, Nor­egi og Sví­þjóð í fyrra heldur en fluttu til þess­ara landa. Þetta er í fyrsta sinn frá hruni sem fleiri flytj­ast heim frá þessum löndum en flytja til þeirra, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unn­ar. 

Hag­stofan tekur saman tölur um brott­flutn­ing og aðflutn­ing, en töl­urnar fyrir árið 2016 hafa ekki verið birtar í heild sinni. Hins vegar hafa þær verið birtar að hluta fyrir hvern árs­fjórð­ung og því er hægt að reikna út töl­urnar fyrir árið. 

Miðað við það fluttu 2.130 Íslend­ingar til Dan­merk­ur, Nor­egs og Sví­þjóðar á árinu 2016. Á sama tíma fluttu 2.140 Íslend­ingar til lands­ins frá þessum þremur lönd­um, en meiri­hluti flutn­inga Íslend­inga milli landa er til og frá þessum þremur nágranna­ríkjum Íslands. 

Auglýsing

Dan­mörk var vin­sæl­asti áfanga­staður Íslend­inga sem fluttu utan í fyrra, en 990 Íslend­ingar flutt­ust búferlum til Dan­merkur af þeim 3.250 sem alls fluttu burt frá Íslandi. Hins vegar komu flestir Íslend­ingar heim frá Nor­egi í fyrra, 850 tals­ins af þeim 3.080 sem fluttu heim á árinu. 820 Íslend­ingar komu einnig heim frá Dan­mörku í fyrra, svo ekki mun­aði mjög miklu á lönd­unum tveim­ur. 

Sam­kvæmt töl­unum var árið í fyrra einnig það ár frá hruni sem fæstir Íslend­ingar ákváðu að flytja burt frá Íslandi til þess­ara þriggja landa. Flestir Íslend­ingar fluttu burt árið 2009, 3.546 tals­ins. 

Fleiri fóru en komu á heild­ina litið

Þegar litið er á heild­ar­brott­flutn­ing og -að­flutn­ing Íslend­inga kemur hins vegar í ljós að fleiri fluttu frá land­inu en aftur heim í fyrra. Brott­­fluttir Íslend­ingar voru 190 fleiri en aðfluttir, sam­­kvæmt tölum frá Hag­­stofu Íslands

Mun­­ur­inn á milli þeirra sem flytja burt og heim var mun minni en árið 2015, sem var eitt mesta brott­­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar hófust. Þá fluttu 1265 fleiri Íslend­ingar úr landi en til lands­ins. Aðeins fimm sinnum áður frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­­­fluttir verið umfram aðflutta. Í öll þau skipti var það í kjöl­far kreppu­ára hér á landi, meðal ann­­ars árin 2009-2011. Árið 2015 skar sig tölu­vert úr af því að ekki ríkti kreppa það ár. 

Sam­­kvæmt töl­unum fluttu 3080 íslenskir rík­­is­­borg­­arar til lands­ins á árinu 2016 en 3250 fluttu burt. Allt árið 2015 fluttu hins vegar 2380 Íslend­ingar heim á meðan 3875 fluttu burt. Hag­­stofan hefur spáð því í mann­­fjölda­­spá sinni að þróun mann­­fjöld­ans verði áfram með þessum hætti, það er að fleiri flytji burt en heim, á hverju ári fram til árs­ins 2065. 

Bjugg­ust við meiri aðflutn­ingi en brott­­flutn­ingi

Mikið hefur verið rætt um aðflutn­ing og brott­­flutn­ing Íslend­inga und­an­farin mis­s­eri. Bjarni Bene­dikts­­son, þá fjár­­­mála­ráð­herra en nú for­­sæt­is­ráð­herra, sagði til að mynda í tvígang síð­­ast­liðið haust að í fyrsta skipti í mörg ár væri útlit fyrir að á árinu 2016 myndu fleiri Íslend­ingar flytj­­ast til lands­ins en frá land­in­u. 

Þetta byggði Bjarni meðal ann­­ars á gögnum frá Vinn­u­­mála­­stofn­un, sem setti fram spá fyrir árið. Kjarn­inn hafði þá sam­­band við Vinn­u­­mála­­stofnun til að fá upp­­lýs­ingar um það hvernig spáin hefði verið unn­in. 

Í svari Vinn­u­­­mála­­­stofn­unar kom fram að tölur um brott­­­flutta og aðflutta á fyrri helm­ingi árs­ins hafi verið upp­­­­­reikn­aðar til árs­loka út frá reynslu und­an­far­inna ára, það er að um það bil 40 pró­­­sent búferla­­­flutn­inga Íslend­inga komi fram á fyrri helm­ingi árs­ins og um 60 pró­­­sent á þeim síð­­­­­ari. Það gildi bæði um brott­­­flutta og aðflutta. Því var þess vegna spáð að um 136 fleiri Íslend­ingar myndu flytja til lands­ins en frá því. Það var ávallt tekið skýrt fram að aðeins væri um spá að ræða, sem byggði á því að um það bil 40 pró­­­sent flytji til og frá land­inu á fyrri hluta árs en um það bil 60 pró­­­sent á seinni hlut­an­­­um. 

Und­an­farin sex ár hefur þetta hlut­­­fall verið á bil­inu 38 pró­­­sent til tæp­­­lega 44 pró­­­sent á fyrri hluta árs hjá aðflutt­um, og sömu sögu má segja hjá brott­­­flutt­­­um. Þá gat verið tals­verður munur á hlut­­­falli brott­­­fluttra og aðfluttra innan hvers árs. 

Að með­­­al­tali hefur 41,5% aðfluttra komið til lands­ins á fyrri hluta árs­ins und­an­farin sex ár á meðan 39,8% brott­­­fluttra hafa farið burt á fyrri hluta árs­ins. Ef upp­­­­­reiknað væri miðað við þessar tölur væri spáin öðru­­­vísi, og myndi sýna örlítið fleiri brott­­­flutta en aðflutta, eða um 11 manns. Þetta sýnir hversu erfitt er að spá fyrir um flutn­ings­­­jöfn­uð­inn þegar mun­­­ur­inn á milli aðfluttra og brott­­­fluttra er orð­inn svona lít­ill. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None