Markaðir upp, krónan styrkist og erlendir fjárfestar létu sjá sig

Sögulegur dagur á íslenskum fjármálamarkaði sýndi fyrst og fremst jákvæð merki, í kjölfar ákvörðunar um að rýmka höftin svo til alveg fyrir almenning, fyrirtæki og lífeyrissjóði.

kauphöll
Auglýsing

Óhætt er að segja að fyrsti dag­ur­inn á fjár­mála­mark­aði, eftir að höft voru rýmkuð svo til alveg - þó laga­lega séu þau enn til staðar - hafi verið sögu­leg­ur. Tölu­verð velta var á hluta­bréfa­mark­aði og hækk­aði vísi­tala hluta­bréfa­mark­að­ars­ins um 1,7 pró­sent. 

Þvert á það sem margir héldu, þá styrkt­ist gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um, en það veikt­ist um 2 til 3 pró­sent í gær gagn­vart Banda­ríkja­dal og evru. Dal­ur­inn kostar nú 110 krónur og evran 117 krón­ur.

Voda­fone rýkur upp

Mesta hækk­unin á mark­aði var á bréfum Voda­fo­ne, en kaupum fyr­ir­tæk­is­ins á fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu 365 - að Frétta­blað­inu und­an­skildu - var vel tekið og hækk­aði gengi bréfa félags­ins um 5,47 pró­sent og var 56,9 í lok dags.

Auglýsing

Tveir stjórn­endur hjá Voda­fone, þeir Kjartan Briem og Þor­varður Sveins­son, keyptu bréf í Voda­fone sam­kvæmt til­kynn­ingu til kaup­hall­ar. Keyptu þeir báðir fyrir lít­il­ræði, eða tæp­lega eina millj­óna króna að mark­aðsvirði.

Kaup­verðið í við­skipt­unum er 7.725-7.875 millj­­ónir króna. Það greið­ist í reið­u­­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­­skiptum og yfir­­­töku á 4,6 millj­­arða króna skuld­­um. Frétta­blaðið verður þá eftir í sér­stöku félagi. Um 90 pró­­sent sam­­legð­­ar­innar með þessum við­skiptum er vegna vænt­inga um lægri rekstr­­ar­­kostn­að. 

Þá mun mynd­­ast um sjö millj­­arða króna óefn­is­­leg eign hjá Fjar­­skiptum vegna kaupanna. Yfir­­­teknar við­­skipta­skuldir eru 1.550 millj­­ónir króna en við­­skipta­­kröfur verða skildar eftir hjá selj­anda, 365 mið­l­um, við afhend­ingu. Fjar­­skipti áætla að fjár­­­fest­ing í rekstri þeirra eigna sem félagið var að kaupa verði um 250 millj­­ónir króna á ári. 

Helstu áhætt­u­þættir við­­skipt­anna eru sagðir þeir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið banni eða setji kaup­unum íþyngj­andi skil­yrði, að brott­­fall verði á við­­skipta­vinum við eða í kjöl­far afhend­ingu á eignum eða að fækkum við­­skipta­vina í áskrift­­ar­­sjón­varpi eins og það sem 365 hefur verið að reka haldi áfram að fækka, meðal ann­­ars með auk­inni sam­keppni frá erlendum efn­isveit­u­m eins og Net­fl­ix.

Erlendir fjár­festar létu sjá sig

Önnur félög hækk­uðu öll nema Nýherji sem lækk­aði lítið eitt, eða um 0,87 pró­sent. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans komu erlendir fjár­festar nokkuð inna á mark­að­inn í dag, og keypt hluta­bréf, meðal ann­ars í fast­eigna­fé­lög­um. Mesta veltan var með hluta­bréf í fast­eigna­fé­lögum þrem­ur, Eik, Reg­inn og Reit­um. Sam­an­lögð velta í þessum félögum var tæp­lega 2,7 millj­arðar króna og hækk­uðu bréfin um 1 til 3 pró­sent. 

Hvað ger­ist á morg­un?

Allra augu eru nú á Seðla­banka Íslands, en á morgun er vaxta­á­kvörð­un­ar­dag­ur. Meg­in­vextir bank­ans eru nú 5 pró­sent og verð­bólga mælist 1,9 pró­sent, tölu­vert undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið­in­u. 

Bjarni Benediktsson, Benedikt Jóhannesson og Már Guðmundsson, þegar tilkynnt var um afnám hafta.

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði frá því, þegar til­kynnt var um losun hafta, að nú ættu að geta skap­ast skil­yrði fyrir meiri lækkun stýri­vaxta. Vandi er þó um slíkt að spá, þar sem staðan á mörk­uð­unum og í hag­kerf­inu hefur verið sveiflu­kennd og aug­ljós­lega mikil spennan í hag­kerf­inu vegna upp­gangs ferða­þjón­ust­unn­ar. Í fyrra var hag­vöxtur 7,2 pró­sent á Íslandi, sem er með allra mesta móti á heims­vísu. Þá hefur olíu­verð farið lækk­andi að und­an­förnu, og kostar tunnan af hrá­olíu nú 47,7 Banda­ríkja­dali, en með­al­verð síð­asta ára­tuga er nærri 70 Banda­ríkja­döl­u­m. 

Þessi staða, bæði inn­an­lands og utan, er góð fyrir stöðu mála á Íslandi. Inn­flutt verð­bólga hefur verið lítið sem eng­in, vegna hag­stæðra við­skipta­kjara erlend­is, og inn­an­lands hefur mikil hækkun hús­næð­is­verðs verið það sem helst heldur lífi í verð­bólg­unni. Hækkun launa hefur þó einnig verið að hafa tölu­verð áhrif í rekstri fyr­ir­tækja, þar sem rekstr­ar­kostn­aður hefur farið hækk­and­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None