Niðurstaða í Hauck & Aufhäuser-rannsókn væntanleg í lok mánaðar

Samkvæmt upplýsingum Kjarnans er stefnt að því að birta niðurstöður úr rannsókninni 29. mars næstkomandi. Ólafur Ólafsson hefur látið setja upp vef þar sem hann ætlar að birta eigin framsetningu á sögunni um söluna á Búnaðarbankanum.

Hauck &Aufhauser
Auglýsing

Búist er við því að rann­sókn á aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser á kaupum á hlut rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­bank­­anum snemma árs 2003 ljúki á næst­unni. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er stefnt að því að birta nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar 29. mars en sú dag­setn­ing hefur þó ekki verið að öllu leyti nið­ur­negld.

Alþingi sam­þykkti í júní 2016 þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að aðkoma þýska einka­­­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á 45,8 pró­­­sent hlut í Bún­­­að­­­ar­­­bank­­­anum í byrjun árs 2003 yrði rann­­­sökuð af sér­­­stakri rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd sem myndi hafa víð­tækar heim­ildir til að kalla eftir upp­­­lýs­ing­­­um. Rann­­­sókn máls­ins átti að vera lokið fyrir árs­­­lok sama ár og var tekið fram að einn maður myndi skipa rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd­ina.

Í byrjun júlí 2016 var Kjartan Bjarni Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­vík­ur, skip­aður til að fara með rann­sókn­ina. Kjartan Bjarni var um tíma aðstoð­­ar­­maður umboðs­­manns Alþing­is, og vann hjá emb­ætt­inu frá árinu 2002 til 2009. Hann starf­aði síðar hjá EFTA-­­dóm­stóln­­um. Kjartan Bjarni var skip­aður í hér­­aðs­­dóm­­ari í maí 2015.

Auglýsing

Rann­­­sóknin bein­ist sér­­­stak­­­lega að hlut þýska einka­­­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­­­að­­­ar­­­bank­­­anum í byrjun árs 2003. Ákveðið var að ráð­ast í hana eftir ábend­ingu Tryggva Gunn­­­ar­s­­­son­­­ar, umboðs­­­manns Alþing­is, sem send­i  ­stjórn­­­­­skip­un­­­ar- og eft­ir­lits­­­nefnd bréf í júní­mán­uði 2016 þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd um mál­ið. Þetta eigi að gera vegna þess að Tryggvi hafi nýjar upp­­­lýs­ingar sem byggja á ábend­ingum um hver raun­veru­­­leg þátt­­­taka þýska bank­ans var. Sam­­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun rann­­­sóknin meðal ann­­­ars snú­­­ast um hvort Kaup­­­þing, sem var sam­ein­aður Bún­­­að­­­ar­­­bank­­­anum skömmu eftir að söl­una á bank­an­um, hafi fjár­­­­­magnað Hauck & Auf­häuser.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­­lega um málið í frétta­­skýr­ingu í lok maí 2016.

Vildu ekki gefa skýrslu

Rann­sókn Kjart­ans Bjarna hefur þó ekki gengið snurðu­laust fyrir sig og fresta hefur þurfti skilum á nið­ur­stöðu. Þegar Kjartan Bjarni ætl­aði að kalla til ein­stak­linga til að gefa skýrslu í mál­inu reynd­ust þeir ein­stak­lingar ekki vilj­ugir til þess að gera slíkt að óbreyttu. Skýrslu­tök­unum átti að vera stýrt af dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­vík­ur, Ásmundi Helga­syni. Þrír ein­stak­lingar sem áttu að gefa skýrslu neit­uðu hins vegar að mæta nema að Ásmundur myndi víkja fyrst sæti sökum van­hæf­is. Það van­hæfi var sagt lúta að því að hann væri dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur líkt og Kjartan Bjarni. Hæsti­réttur hafn­aði þessum kröfum í lok nóv­em­ber 2016. Einn þeirra sem neit­aði að gefa skýrslu á þessum tíma var Ólaf­ur Ólafs­­­son kaup­­­sýslu­­mað­­ur, sem var eig­andi tíu pró­­sent eign­­ar­hlutar í Kaup­­þingi þegar hann féll haustið 2008. Ólafur er líka fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Eglu sem var hluti S-hóps­ins svo­kall­aða. Annar sem var kall­aður til skýrslu­töku var Guð­mundur Hjalta­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eglu.

Ólafur Ólafsson var einn þeirra sem leiddi S-hópinn svokallaða. Hann hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm í Al Thani-málinu í byrjun árs 2015.Menn­irnir töldu sér hins vegar ekki skylt að gefa skýrslu fyrir dómi og fóru fram á stað­fest­ingu dóm­stóla þess efn­is. Lög­­­maður Ólafs og Guð­­mund­­ar, Gísli Guðni Hall, sendi til­­kynn­ingu fyrir þeirra hönd þar sem því var haldið fram að allt í kringum rann­­sókn­­ar­­ferlið væri „und­­ar­­legt, for­­dæma­­laust og byggt á órök­studdum dylgj­u­m.“ Hér­aðs­dómur úrskurð­aði skömmu fyrir jól 2016 að þeim yrði ekki gert að gefa skýrslu fyrir dómi en Hæst­i­­réttur snéri þeirri ákvörðun um miðjan jan­úar síð­ast­lið­inn og komst að þeirri nið­­ur­­stöðu ekki væri stoð fyrir því í ákvæðum laga að þeir gætu skor­­ast með öllu undan því að gefa vitna­­skýrslu fyrir dómi. Skýrslu­tökur fóru fram loks fram 30. jan­ú­ar.

Í kjöl­far þeirra var hægt að ljúka vinnu við rann­sókn­ina og nú stefnir í að nið­ur­staða hennar verði birt undir lok mars­mán­að­ar.

Opnar síðu með eigin skýr­ingum á sölu­ferl­inu

Dag­inn eftir að skýrslu­tökur fóru fram sendi almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM, sem starfar fyrir Ólaf Ólafs­son, frá sér til­kynn­ingu þar sem sagt var að engin ný gögn hefðu verið lögð fram við rann­sókn­ina. Þar var eft­ir­far­andi haft eftir Ólafi: „Ég hef ávallt verið reiðu­bú­inn að láta af hendi öll gögn sem snúa að mér og mínum félögum í þessu ferli sem átti sér stað fyrir nærri 15 árum. Þessi upp­á­koma fyrir hér­aðs­dómi í gær, þar sem mér eru sýndar gamlar blaða­úr­klipp­ur, styrkir mig í þeirri trú að rann­sókn­ar­nefndin hafi verið sett á fót til að leysa póli­tískan ágrein­ing á Alþingi fyrir kosn­ingar um hvernig ætti að standa að rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Verra er þegar ein­stak­lingar eru dregnir inn í þann skolla­leik, þeir sviptir sjálf­sögðum mann­rétt­indum við rann­sókn máls­ins og gjörðir þeirra gerðar tor­tryggi­legar í augum almenn­ings. Ég frá­bið mér að vera þátt­tak­andi í slíku póli­tísku leik­rit­i.“

Í til­kynn­ing­unni kom einnig fram að Ólafur væri að láta vinna sam­an­tekt til opin­berrar birt­ingar þar sem farið yrði yfir sölu­ferli Bún­að­ar­bank­ans, frum­gögn birt og spurn­ingum svar­að. Þessi sam­an­tekt mun birt­ast á vefnum solu­ferli.issem KOM er skráð fyr­ir. Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið mun auk þess sjá um efnið sem birt­ist á vefn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None