Fordæmalaus niðurskurður stofnanna en mikil aukning til hersins

Trump leggur fram fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár í Bandaríkjaþingi í dag.

Donald Trump
Auglýsing

Don­ald J. Trump kynnti í gær rík­is­fjár­mála­ætlun sína en hann mun í dag leggja fram fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2018 í þing­inu. Áætl­unin gerir ráð fyrir gríð­ar­legum breyt­ingum frá því sem nú er. Nið­ur­skurður verður for­dæma­laus hjá næstum öllum und­ir­stofn­unum rík­is­ins og má búast við fjölda­upp­sögnum og nið­ur­fell­ingum á ýmsum verk­efn­um, ekki síst á alþjóða­vett­vangi, strax í byrjun næsta árs.

Her­inn og inn­viðir fá inn­spýt­ingu

Aukn­ing verður í þremur mála­flokk­um. Í sam­göngu­mál er aukn­ingin 13 pró­sent, og hlut­falls­lega mest, til hers­ins um 10 pró­sent og síðan til varn­ar­mála­stofn­anna inn­an­lands um 7 til 10 pró­sent. Aukn­ingin til hers­ins er lang­sam­lega mest í Banda­ríkja­dölum mælt, eða 54 millj­arðar Banda­ríkja­dala. 

Nið­ur­skurð­ar­hníf­ur­inn lendir harðar á stofnun umhverf­is­mála (EPA) en þar er boð­aður 30 pró­sent nið­ur­skurð­ur. Til utan­rík­is­mála er boð­aður tæp­lega 30 pró­sent nið­ur­skurð­ur, en þar undir heyra meðal ann­ars fram­lög til Sam­ein­uðu þjóð­anna, mann­úð­ar­mála og ýmissa alþjóð­legra verk­efna sem Banda­ríkin koma að. Gert er ráð fyrir að fram­lög Banda­ríkj­anna til Sam­ein­uðu þjóð­anna verði skert um 50 pró­sent, og fari úr 10 millj­örðum Banda­ríkja­dala niður í 5 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Auglýsing

Bitnar mest á fólki í neyð

Þessi nið­ur­skurður mun bitna einna harð­ast á flótta­mönnum í gegnum Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna. Banda­ríkin hafa lagt til 1,5 millj­arð Banda­ríkja­dala af um fjórum millj­örðum  sem Flótta­manna­hjálpin fær, og má búast við miklum nið­ur­skurði, sem bitnar hart á flótta­mönnum í neyð, ef ekki kemur til svipað fjár­fram­lag á móti frá öðrum þjóð­um.

Þá er nið­ur­skurð­ur­inn á fram­lögum ýmissa vel­ferð­ar­mála, svo sem hús­næð­is­þró­un­ar­verk­efna á vegum hins opin­bera, mennta­mála, atvinnu­mála og félags­mála, veru­leg­ur, eða á bil­inu 15 til 17 pró­sent. Nið­ur­skurður á fram­lögum rík­is­ins til land­bún­að­ar­mála er einna mest­ur, eða tæp­lega þrjá­tíu pró­sent, og þá lækka fram­lögum til NASA, geim­vís­inda­stofn­un­ar­inn­ar, um eitt pró­sent, en stjórn­endur hennar höfðu sótt það fast að fá veru­lega aukn­ingu á fjár­munum til að sinna mik­il­vægum rann­sókn­um. 

Fjármálaáætlun Trumps, eins og hún birtist fyrir næsta ár. Myndin er fengin frá Bloomberg.

Bar­átta framundan

Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að búast megi við mik­illi póli­tískri bar­áttu um áherslun Trumps, sem rýma nær alveg við stefnu hans (Amer­ican Fir­st) um að setja banda­ríska hags­muni í fyrsta sætið með þeim hætti sem lýst er í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inn­i. 

Í ljósi þess hversu gríð­ar­lega umfangs­mikil fjár­fram­lögin eru til hers­ins, þá er jafn­vel búist við að útgjöld verði meiri á næsta ári en þau voru á þessu, sam­kvæmt þess­ari áætlun sem birt­ist í frum­varp­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None