Stjórnsýsla Seðlabankans var „ógagnsæ og óaðgengileg“

Úttekt Lagastofnunar segir að frá setningu gjaldeyrishafta og fram til september 2014 hafi stjórnsýsla Seðlabankans í undanþágumálum verið ógagnsæ og óaðgengileg. Úr þessu hafi verið bætt síðar. Ekki gerðar athugasemdir við málsmeðferð í máli Samherja.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Auglýsing

Lagaum­gjörð um gjald­eyr­is­höft var óskýr og óná­kvæm í upp­hafi. Þrátt fyrir að reglur og leið­bein­ing­ar­reglur hafi orðið skýr­ari með tím­anum á ákveðnum sviðum var „fram­kvæmd Seðla­bank­ans ógagnsæ og verk­lags­regl­ur, for­dæmi og breytt fram­kvæmd ekki birt.“ Frá nóv­em­ber 2008 til sept­em­ber 2014, var stjórn­sýsla Seðla­bank­ans í und­an­þágu­málum ógagnsæ og óað­gengi­leg og því nán­ast úti­lokað fyrir ein­stak­linga og lög­að­ila að átta sig á því hvaða und­an­þágur voru gefnar og á hvaða for­send­um. Úr þessu var bætt með betri upp­lýs­ingum á heima­síðu Seðla­bank­ans árið 2014 og upp­færslu í febr­úar 2015.

Þetta kemur fram í stjórn­sýslu­út­tekt Laga­stofn­unar Háskóla Íslands á stjórn­sýslu Seðla­bank­ans við fram­kvæmd gjald­eyr­is­eft­ir­lits, und­an­þágu­beiðna og gjald­eyr­is­rann­sókna. Þar kemur enn fremur fram að Laga­stofnun geri ekki athuga­semdir að svo stöddu um álita­efni sem upp hafa komið varð­andi með­ferð Seðla­banka Íslands á máli Sam­herja, þar sem hún hafi byggt „á skýrri afstöðu bank­ans og stjórn­valda á túlkun þess­ara heim­ilda.“

Úttektin var unnin í kjöl­far þess að umboðs­maður Alþingis sendi bréf til banka­ráðs Seðla­bank­ans 2. októ­ber 2015 og var skilað 26. októ­ber 2016. Banka­ráð Seðla­bank­ans ákvað á fundi sínum 16. mars síð­ast­lið­inn að birta úttekt­ina með nauð­syn­legum útstrik­un­um.

Til þess að öðl­ast inn­sýn í fram­kvæmd­ina skoð­aði Laga­stofnun mál sem voru til með­ferðar hjá und­an­þágu­deild og rann­sókn­ar­deild gjald­eyr­is­eft­ir­lits og voru þau valin með slembi­úr­taki. Einnig var skoðað lítið úrtak stað­fest­ing­ar­mála og mála vegna nýfjár­fest­inga sem voru til með­ferðar hjá eft­ir­lits­deild. Úttektin mið­aði fyrst og fremst að því að skoða með­ferð þess­ara mála, en í úrtak­inu voru alls 94 und­an­þágu­mál og 48 rann­sókna­mál.

Auglýsing

Tak­mörkuð við fá mál

Í úttekt­inni kemur fram að hún sé tak­mörkuð við 94 mál af rúm­lega 6000 málum sem komu til kasta gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands á meðan að gjald­eyr­is­höft voru við lýði. Því er úrtakið nokkuð lít­ið.

Í skýrslu Laga­stofn­unar segir að af úrtaks­málum megi ráða að máls­með­ferð gjald­eyr­is­eft­ir­lits sé í heild­ina vönduð og að brugð­ist hafi verið við ábend­ingum í skýrslu innri end­ur­skoð­anda um verk­lag og frá­gang gagna. „Nokkur frá­vik koma fram varð­andi máls­hraða miðað við þá tíma­fresti sem Seðla­bank­inn hefur sjálfur sett sér þar sem langur máls­með­ferð­ar­tími, allt að rúm þrjú ár er óút­skýrð­ur, en í miklum meiri­hluta úrtaks­mála eru skýr­ingar á lengri afgreiðslu­tíma. [...]Ekki koma fram frá­vik að því er varðar jafn­ræði og sam­ræmi í úrlausn­um.“

Gera ekki athuga­semdir við með­ferð Seðla­bank­ans á máli Sam­herja

Í nið­ur­stöðu­hluta skýrslu Laga­stofn­unar segir að hún hafi skoðað gögn sem teng­ist máli útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Sam­herja. Strikað hefur verið yfir nafn þess en aug­ljóst er á sam­hengi text­ans að um Sam­herja er að ræða. Þar kemur m.a. fram að mál­inu hafi verið lokið með stjórn­valds­sekt í sept­em­ber 2016, en þá var Sam­herja gert að greiða 15 millj­ónir króna fyrir brot á gjald­eyr­is­lög­um.

Nið­ur­staða Laga­stofn­unar er sú að svo lengi sem dóm­stólar hafa ekki skorið úr um álita­efni sem komið hafa upp við máls­með­ferð­ina „verði ekki gerðar athuga­semdir við með­ferð Seðla­bank­ans á mál­inu, sem byggð­ist á skýrri afstöðu bank­ans og stjórn­valda á túlkun þess­ara heim­ilda.“

Þá taldi Laga­stofnun það ekki falla undir verk­lýs­ingu úttekt­ar­innar að láta í ljós álit á ábyrgð banka­ráðs Seðla­bank­ans í mál­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None