Hundrað milljarða hækkun á nokkrum vikum

Hlutabréf halda áfram að hækka og krónan að styrkjast. Síðustu vikur hafa verið líflegar á verðbréfamörkuðum.

peningar
Auglýsing

Mark­aðsvirði hluta­bréfa sem skráð eru í kaup­höll Íslands hefur hækkað um tæp­lega hund­rað millj­arða, sé horft yfir síð­ustu sjö mán­uði, en megnið af hækk­un­inni hefur komið fram á síð­ustu fjórum vik­um. 

Miklu munar þar um hækkun á virði Mar­els en félagið er nú 256 millj­arða virði, eða sem nemur tæp­lega fjórð­ungi af öllu mark­aðsvirði skráðra félaga á Ísland­i. 

Á sama tíma og virði bréfa í Icelandair hefur farið lækk­andi, sé horft til síð­ustu sjö mán­aða, þá hafa önnur félög, mörg hver, hækkað umtals­vert. 

Auglýsing

Miðað við stöðu mála eins og hún var í við lokun mark­aða á föstu­dag þá er sam­an­lagt mark­aðsvirði félaga í kaup­höll Íslands 1047 millj­arðar króna. Um miðjan októ­ber í fyrra var virði þeirra 949,5 millj­arðar og nemur hækk­unin á þessu tíma­bili því 97,5 millj­örðum króna. Sveiflan á síð­ustu vikum hefur hins vegar verið mikil upp á við, eftir lækkun þar á und­an.

Miklar hækk­anir erlendis

Þessi hækkun er í takti við mikla hækkun sem hefur verið á alþjóð­legum mörk­uðum allt þetta ár, en félög í upp­lýs­inga­tækni hafa hækkað mest allra. S&P 500 vísi­talan hækk­aði um hefur hækkað um tæp­lega 8 pró­sent á árinu en hún skipt­ist í 11 und­ir­vísi­tölur eftir atvinnu­geir­um. Vísi­tala félaga í upp­lýs­inga­tækni hefur á þessu tíma­bili hækkað um 16,5 pró­sent, og munar þar ekki síst um gríaðr­legar hækk­anir á mark­aðsvirði helstu risa í geir­an­um, Amazon, Alp­habet, Microsoft og Apple þar á með­al. Mark­aðsvirði Apple er nú 811 millj­arðar Banda­ríkja­dala, og hefur þetta verð­mætasta skráða félag í heim­in­um, hækkað mikið á und­an­förnum vik­um.

Í nýlegri grein­ingu Lands­bank­ans um þróun á erlendum mörk­uðum þá segir að grein­endur Stand­ard & Poor telji að þessar hækk­anir geti haldið áfram næstu mán­uði og miss­eri.

Mikil hækkun á þremur vikum

Á und­an­förnum rúmum þremur veikum hafa verið tölu­verðar hækk­anir á hluta­bréf á Íslandi og hefur vísi­talan farið úr 1.751 18. apríl síð­ast­lið­inn í 1.910 við lokun mark­aða síð­ast­lið­inn föstu­dag. Sem þýðir að vísi­talan er nú á svip­uðum stað og hún var í apríl í fyrr, áður en mark­að­ur­inn fór að ein­kenn­ast af miklum lækk­un­um, ekki síst hjá Icelanda­ir. 

Krónan styrk­ist og styrk­ist

Eins og sést á þessari mynd frá Keldunni, þá styrktist gengi krónunnar töluvert síðastliðinn föstudag. Pundið kostar nú 134 krónur en fyrir Brexit kosninguna í júní í fyrra, kostaði það 206.Gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum hefur haldið áfram að styrkj­ast und­an­farin miss­eri. Banda­ríkja­dalur kostar nú 103 krónur og evran 113 krón­ur. Norska krónan kostar nú 12,2 krónur og danskan 15,2. Fyrir einu og hálfu ári var allt annað uppi á ten­ingn­um, þegar gengið er ann­ars veg­ar, en þá kost­aði Banda­ríkja­dalur tæp­lega 140 krónur og evran 150 krón­ur.

Flestir við­mæl­enda Kjarn­ans, sem skoðað hafa fjár­flæði til og frá land­inu, gera ráð fyrir að gjald­eyr­is­inn­streymi verði mikið á næstu mán­uð­um, sam­hliða helsta anna­tíma í ferða­þjón­ust­unni á Íslandi. Reikna má með því að krónan haldi áfram að styrkjast, nema að Seðla­banki Íslands beiti sér enn meira en hann hefur nú þegar gert, til að veikja gengi krón­unn­ar.

Tölu­verð spenna er nú fyrir næsta ákvörð­un­ar­degi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem er á næsta mið­viku­degi. Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur kallað eftir því að vextir verði lækk­aðir og segir fullt svig­rúm til þess. 

Meg­in­vextir bank­ans eru nú 5 pró­sent en verð­bólga mælist 1,9 pró­sent, og hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði í meira en þrjú ár. Grein­endur spá því ýmist að vextir muni lækka um 0,25 pró­sentu­stig eða standa í stað.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar