Risinn Costco hristir upp í markaðnum

Allt bendir til þess að bandaríski smásölurisinn Costco muni hrista verulega upp í íslenska smásölumarkaðnum. Fyrirtækið er um áttfalt verðmætara en allur íslenski hlutabréfamarkaðurinn.

Costco
Auglýsing

Inn­koma Costco á íslenskan versl­un­ar- og heild­sölu­markað eru mikil tíð­indi og er greini­legt að mik­ils skjálfta gætir hjá sam­keppn­is­að­il­um. Form­leg opnun er á morgun í Kaup­túni klukkan 09:00.

En hvaða fyr­ir­tæki er þetta og hvers vegna gæti inn­koma Costco haft mikil áhrif á íslenska mark­aðn­um?

1. Costco, í þeirri mynd sem nú þekkist, var stofnað árið 1983 í Seattle í Banda­ríkj­un­um, en höf­uð­stöðv­arnar eru þar á svæð­inu, nánar til­tekið í Issaqu­ah. Fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt og býður þeim sem eru með áskrift hjá Costco, betri verð á fjöl­breyti­legum vörum sem fyr­ir­tækið selur í stórum versl­unum sín­um. Verð­mið­inn á fyr­ir­tæk­inu er nú 76 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur upp­hæð sem er tæp­lega átta sinnum verð­meiri en allur íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn, eða um átta þús­und millj­örðum króna.

Auglýsing

2. Hjartað í starf­sem­inni er í Banda­ríkj­unum þar sem yfir 500 vöru­hús á vegum fyr­ir­tæk­is­ins eru en 94 vöru­hús eru í Kanada. Í Evr­ópu eru 28 vöru­hús í Bret­landi en sam­tals eru þau nú 730 tals­ins, og stefnir félagið að miklum vexti á næstu árum. 

3. Sam­tals eru 85 millj­ónir manna með Costco aðild­ar­á­skrift, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra, en til sam­an­burðar þá eru Amazon Prime með­limir - sem greiða mán­að­ar­lega til Amazon - um 70 millj­ón­ir. Þessi tvö af stærstu og mest hratt vax­andi smá­sölu­fyr­ir­tækjum heims eru bæði með höf­uð­stöðvar á Seattle svæð­inu. Costco er þriðja verð­mætasta smá­sölu­fyr­ir­tæki heims á eftir Wal­mart og Amazon, sem er lang­sam­lega verð­mætasta félag­ið, með mark­aðsvirði upp á 460 millj­arða Banda­ríkja­dala.

4. Í krafti þess­arar miklu stærðar hefur félagið geta stundað hag­kvæm inn­kaup. Ekki síst það atriði gæti haft mikið að segja á Íslandi, þar sem félagið er nýtt á mark­aði á Íslandi og gæti nýtt sér það með því að bjóða mun lægra verð en aðrir - bæði heildsalar og versl­anir - þegar það er að koma sér fyrir á mark­aði. Sam­kvæmt frétt Stöðvar 2 frá því á laug­ar­dag þá hafa nú þeg­ar, áður en versl­unin opnar form­lega, 35 þús­und keypt Costco aðild. Það þykir ein­stakt í sögu fyr­ir­tæk­is­ins, sé horft til hlut­falls af heild­ar­stærð mark­að­ar­ins.

5. Fyrstu vís­bend­ingar um verð­lagn­ingu benda til þess að inn­koma Costco gæti stuðlað að mik­illi lækkun á verðum á ýmsum vörum, þar á meðal á elds­neyti. Upp­hafsverðið er 169,9 krónur á bens­ín­lítr­ann en við­mið­un­ar­verðið í maí, hjá íslensku olíu­fé­lög­un­um, hefur verið 195,5 krón­ur, sam­kvæmt bens­ín­vakt Kjarn­ans (les­endur eru hvattir til að fylgj­ast með henn­i). Í versl­unum Costco fást alls konar vör­ur. Bíldekk, sjón­vörp, mat­vara, lyf, áfengi í heild­sölu, leik­föng, hús­gögn, og raunar margt, margt fleira. Í krafti þessa fjöl­breyti­leika reynir Costco að bjóða sem mesta versl­un­ar­upp­lifun fyrir þá sem hafa Costco aðild. 

6. Þrátt fyrir að Costco sé risa­vaxið á alla mæli­kvarða, í sam­an­burði við íslenska hag­kerf­ið, þá á eftir að koma í ljósi hversu mikil áhrifin af inn­komu fyr­ir­tæk­is­ins verða á Íslandi. Stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins, Hag­ar, var með árlegar tekjur upp rúm­lega 80 millj­arða í fyrra, en það rekur versl­anir á eftir þrjá­tíu stöðum um land allt. Costco er hins vegar aðeins með þessa einu veru versl­un, og tak­markast áhrifin því þó nokkuð vegna þessa. En það er ekki síst á sviði heild­versl­unar fyrir fyr­ir­tæki þar sem áhrifin gætu orðið mik­il. Aukin sam­keppni um verð, neyt­endum til heill­ar, er hins vafa­lítið það sem mun skipta mestu máli fyrir heim­il­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar