Ríkið fær 65% af hverjum bensínlítra sem Costco selur

Hlutdeild ríkisins í bensínverði er nú tæp 60% og hefur aldrei verið meiri. Meðal olíufélaganna er hlutdeild ríkisins hæst í bensíni hjá Costco, en þar er hún 65%.

Verð á bensínlítra hefur lækkað um rúmar 9 krónur síðustu fjórar vikur
Verð á bensínlítra hefur lækkað um rúmar 9 krónur síðustu fjórar vikur
Auglýsing

Hlut­deild rík­is­ins í hverjum seldum lítra af olíu hefur aldrei verið meiri, en á síð­ustu fjórum vikum hafa um það bil 60% olíu­tekna runnið til hins opin­bera. Hlut­fallið er hæst í Costco, en þar er hlut­deild rík­is­ins í hverjum bens­ín­lítra 65%. Þetta sést í bens­ín­vakt Kjarn­ans þar sem skoða má sund­ur­liðað bens­ín­verð og þá kostn­að­ar­liði sem mynda bens­ín­verð hér á landi.

Bens­ín­verð á hvern lítra stendur nú í 186,4 krónum og hefur það lækkað um 9,5 kr. frá því í síð­asta mán­uði. Þar sem flest opin­ber gjöld á bens­íni eru fastar krónu­tölur á hvern lítra hefur hlut­deild rík­is­ins auk­ist sam­hliða verð­lækkun á bens­íni.

Á síð­ustu tíu árum hefur sam­an­lagður hlutur rík­is­ins á tíma­bil­inu breyst mik­ið, en lægst var hann  43,78%  í júlí 2008. Hins vegar mælist hann nú 59,89% og hefur aldrei verið hærri en nú. Mest er hlut­deild rík­is­ins í bens­íni frá Costco, en þar er hún 65% af hverjum seldum lítra. 

Auglýsing

Senni­legt er að verð­lækk­unin megi að miklu leyti rekja til opn­un Costco. Áætl­aður hlutur olíu­fé­laga, sem inni­heldur álagn­ingu þeirra auk trygg­inga- og ­flutn­ings­kostn­að­ar­ hefur snar­lækkað á síð­ustu mán­uðum og stendur nú í rúmum 33 krónum á lítra. Ekki liggja fyrir tölur um álagn­ingu olíu­fé­lag­anna, en gera má ráð fyrir því að hún hafi lækkað hjá þeim í kjöl­far auk­innar sam­keppni frá Costco

Bens­ín­verð á Íslandi skipt­ist í þrjá meg­in­liði:  Al­geng­t inn­kaups­verð, opin­ber gjöld sem ríkið leggur á elds­neyt­is­verð og hlutur olíu­fé­laga. Opin­beru gjöldin breyt­ast lítið á milli mán­aða; það er raunar aðeins inn­koma virð­is­auka­skatts­ins sem getur breyst. Virð­is­auka­skatt­ur­inn er hlut­falls­legur skattur á elds­neyt­is­verð en önnur opin­ber gjöld sem leggj­ast á lítra­verðið eru föst krónu­tala sem ákvörðuð er í fjár­lög­um. Krónu­gjöldin á bens­ín­verð skipt­ast svo í almenn vöru­gjöld, sér­stök vöru­gjöld og kolefn­is­gjald.

Heims­mark­aðs­verð á olíu lækk­aði um 9% á síð­ustu fjórum vik­um, en búist er við því að það muni hækka lít­il­lega á næstu vik­um. Hins vegar er mögu­legt að virk sam­keppni með Costco á mark­aðnum muni halda áfram að minnka álagn­ingu íslensku olíu­fé­lag­anna og draga þannig bens­ín­verðið nið­ur. 

Lesa má nánar um sund­ur­liðun bens­ín­verðs­ins á vef bens­ín­vakt­ar­innar. Þar eru verð­upp­lýs­ingar um bens­ín­verð teknar saman á 15. dag hvers mán­aðar og hægt að sækja und­ir­liggj­andi gögn og reikni­módel á Excel-snið­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnJónas Atli Gunnarsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar