Ekki búist við endalokum reiðufjár

Hugmyndir fjármálaráðuneytisins um minnkun seðla í umferð og rafvæðingu gjaldeyris hafa áður komið fram á Indlandi og í Svíþjóð. Ekki er hins vegar búist við því að endalok reiðufjár muni líta dagsins ljós á Íslandi á næstunni.

Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands
Auglýsing

Sam­hliða til­kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um að taka 10.000 og 5.000 króna seðla úr umferð (sem síðan var dregin til baka) voru einnig viðr­aðar þær hug­myndir að raf­væða meiri­hluta reiðu­fjár með því að gefa íbúum inni­stæðu­reikn­ing hjá Seðla­bank­an­um. Aðrar þjóðir hafa einnig talað um breyt­ingar á reiðu­fjár­kerfi sínu, til að mynda Ind­land og Sví­þjóð. Sam­kvæmt nýlegum ummælum Seðla­bank­ans er hins vegar ólík­legt að umræddar aðgerðir fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins muni leiða til enda­loka reiðu­fjár, ef af þeim verð­ur.

Reiðu­fjár­bann á Ind­landi

Lengst allra hefur Ind­land gengið í tak­mörkun á notkun reiðu­fjár, en þann 8. Nóv­em­ber síð­ast­lið­inn lýsti Nar­endra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Ind­lands, óvænt yfir banni á 500 og 1.000 rúpíu seðl­um. Með banni á umræddum seðl­um, sem jafn­gildir 800 og 1600 krón­um, var 86% alls reiðu­fjár tekið úr umferð.

­Mark­mið banns­ins var að lág­marka umsvif „svarta hag­kerf­is­ins“ ann­ars vegar og koma í veg fyrir spill­ingu emb­ætt­is­manna og fjár­mögnun hryðju­verka­sam­taka hins veg­ar. 

Sam­kvæmt umfjöllun New York Times um málið lenti bannið sem harð­ast á tekju­lágum sem gera upp flest sín við­skipti með seðl­um. Hins vegar virð­ist sem hag­kerfi lands­ins hafi ekki beðið mik­inn hnekki á inn­setn­ingu banns­ins til langs tíma, áhrif þess hafi byrjað að fjara út á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs.

Auglýsing

E-krona í Sví­þjóð

Í kjöl­far seðla­banns­ins á Ind­landi og stöðv­unar á fram­leiðslu á 500 Evru seðlum af Seðla­banka Evr­ópu hóf Seðla­banki Sví­þjóð­ar, Riks­bank, athugun á mögu­leika þess að raf­væða sænsku krón­una í seinni hluta nóv­em­ber 2016. Vægi reiðufjár­notk­unar í Sví­þjóð hef­ur, eins og á Íslandi, minnkað mjög á síð­ustu árum. Til að mynda hafði magn seðla í umferð fallið niður í 1,5% árið 2016 úr 10% árið 1950.

Ekki er búist við endalokum sænsks reiðufjár í umferð. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyr­ir­komu­lag sænsku krón­unnar á raf­rænu formi, hinn­ar svoköll­uðu e-krona, en búist er við því að hún liggi fyrir innan tveggja ára

Aðgerð­irnar virð­ast þó ekki munu verða jafn­rót­tækar og þær sem voru keyrðar í gegn á Ind­landi. Í verk­lýs­ingu sem birt­ist í mars á þessu ári gaf Riks­bank út þá yfir­lýs­ingu að mark­mið inn­leið­ing­ar e-krona væri ekki að banna seðlum og mynt í umferð, hún yrði ein­ungis reiðu­fénu til stuðn­ings.

Starfs­hópur settur á fót hjá Seðla­bank­anum

Orða­lagið í skýrslu Riks­bank svipar mikið til kafla Seðla­banka Íslands um mögu­leika þess að veita almenn­ingi aðgang að seðla­bankaraf­eyri í síð­asta tölu­blaði Fjár­mála­inn­viða. Einnig kemur þar fram að stofn­aður hafi verið starfs­hópur til þess að kanna mögu­leik­ana á útgáfu seðla­bankaraf­eyr­is, rétt eins og í Sví­þjóð.  Kjarn­inn fjall­aði um kafl­ann fyrir stuttu, en í honum seg­ir: „Hver sem nið­ur­staðan verður mun hefð­bundið reiðufé (seðlar og mynt) lifa góðu lífi enn um sinn, eitt og sér eða í návist raf­eyris út­gef­ins af seðla­banka.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnJónas Atli Gunnarsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar