Ferðaþjónustuaðilar telja hana fara illa saman með orkuvinnslu

Margir ferðaþjónustuaðilar telja rekstur hennar bera skaða af orkuvinnslu, samkvæmt nýrri grein í Tímariti um viðskipti og efnahagsmál.

Auglýsing
Ferðamenn við Skógafoss.
Ferðamenn við Skógafoss.

Margir aðilar í ferða­þjón­ustu telja rekstur hennar bera skaða af orku­vinnslu og virkj­ana­fram­kvæmdum víða um land­ið. Þetta er nið­ur­staða greinar Önnu Dóru Sæþórs­dóttur og Þor­kels Stef­áns­sonar í nýjasta tölu­blaði Tíma­rits um við­skipti og efna­hags­mál. 

Grein­ar­höf­undar tóku við­tal við 65 ferða­þjón­ustu­að­ila á sex svæðum á land­in­u. 

Að mati þeirra er ferða­þjón­ustan sú atvinnu­grein sem býður upp á mesta mögu­leika til fram­tíðar til að efla atvinnu­líf í dreif­býli, en flestir þeirra hefðu séð þess glögg merki und­an­farin ár. 

Spurt var um byggð­ar­á­hrif grein­anna tveggja, en auð­lindir ferða­þjón­ust­unnar orku­vinnslu dreifast víða og hafa á und­an­förnum ára­tugum nýst til að efla byggðir lands­ins, sam­kvæmt grein­ar­höf­und­um. 

Nátt­úru­vernd orðin arð­bær

Virkj­unum og stór­iðju hafi lengi verið hampað af stjórn­völdum sem einni mik­il­væg­ustu leið til að efla byggð í land­inu og oft á tíðum einu leið­inni.  Á síð­ustu árum hafi umfang ferða­þjón­ustu í hag­kerf­inu hins vegar marg­fald­ast og er greinin orðin stærsta gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­grein lands­ins. Í ljósi þess að nátt­úran er aðal­á­stæða þess að ferða­menn koma hingað til lands hafi hún fengið aukið verð­gildi, en þannig fengju nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið nú meiri þunga í umræð­unni en áður. 

Auglýsing

Margar fyr­ir­hug­aðar virkj­anir eru nálægt nátt­úru­skoð­un­ar­stöð­um, en margir við­mæl­endur grein­ar­höf­unda töldu að frek­ari virkj­ana­fram­kvæmdir myndu rýra mögu­leika ferða­þjón­ust­unnar að efla byggð í land­inu.  Að sögn þeirra skera orku­mann­virki sig úr lítt snort­inni nátt­úru og hafa því nei­kvæð áhrif á aðdrátt­ar­afl stað­anna. Þannig töldu flestir svæðin verða minna áhuga­verð til nátt­úru­skoð­unar ef þar yrðu reistar virkj­an­ir. 

Reynsifjara er vinsæll viðkomustaður ferðamanna.Margir töldu jafn­framt að ímynd Íslands sem villtr­ar, óspilltrar og fram­andi nátt­úru væri stefnt í hættu, en ímynd er einn af áhrifa­þáttum á val áfanga­stað­ar. Það sé í góðu sam­ræmi við nið­ur­stöður fræði­manna á þessu sviði, en margir þeirra benda á að víð­erni og lítt snortin svæði fari minnk­andi í heim­in­um. Sam­hliða því má búast við að verð­mæti óbyggða sem auð­lindar fyrir ferða­þjón­ust­una eigi eftir að aukast með hverju ári.

Tak­mörkuð byggð­ar­á­hrif

Margir við­mæl­enda bentu einnig á að tekjur af báðum atvinnu­grein­unum mættu skila sér betur til svæð­anna þar sem þær verða til. 

Grunn­for­senda þess að íbúar séu sam­þykkir virkjun sé gjarnan sú að hún skapi lang­tíma­störf í sveit­ar­fé­lag­inu. Hins vegar renni þau flest til aðkomu­fólks frekar en íbúa á svæð­inu. Eins geti komið fyrir að sveit­ar­fé­lög sem verða fyrir umhverf­is­rasks vegna orku­vinnslu fái ekki neinar bæt­ur. 

Vanda­mál af svip­uðum toga þekkj­ast einnig í ferða­þjón­ustu en henni sé víða haldið uppi með aðfluttu vinnu­afli. Enn fremur skila tekj­urnar af starf­sem­inni sér sjaldan til svæð­is­ins þar sem auð­lind­ina er að finna, starf­semi fyr­ir­tækja sem selja ferðir um landið sé venju­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þannig mættu byggð­ar­á­hrif beggja greina vera meiri. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnJónas Atli Gunnarsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar