Fá merki um kólnun en framboð að aukast

Fasteignamarkaðurinn hefur gengið í gegnum ótrúlegt tímabil undanfarna tólf mánuði. Íbúðir hafa hækkað hratt og mikið.

airbnb
Auglýsing

Fátt bendir til þess að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka á næstu mán­uð­um, en nokkur merki eru þó komin fram um að mark­að­ur­inn sé að „kólna“ frá því sem verið hefur á und­an­förnu ári

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans 3. júlí, þá hefur með­­al­­fjöldi aug­lýstra íbúða á vef mbl.is auk­ist nokkuð á síð­­­ustu mán­uðum eftir að hafa minnkað nær stöðugt í þrjú ár. Sam­hliða því hefur með­­al­­tími íbúð­­ar­hús­næðis á sölu lengst lít­il­­lega í apríl og maí síð­­ast­liðn­­­um.

Aug­lýs­ingum fjölgar

Í nýbirt­um hag­vísum Seðla­­banka Íslands er mán­að­­ar­­legt með­­al­­tal aug­lýs­inga á fast­­eigna­vef mbl.is tekið sam­­an. Sam­­kvæmt þeim tölum hefur fjöldi fast­­eigna á sölu lækkað nær jafnt og þétt í takti við aukna spennu á hús­næð­is­­mark­aði auk þess sem með­­al­­sölu­­tími íbúð­­ar­hús­næðis hefur lækkað veru­­lega frá 2010.

Auglýsing

Tölur sem Þjóð­skrá tekur sam­an, og vinnur upp úr þing­lýstum kaup­samn­ing­um, sýna að fast­eigna­verð er enn að hækka hratt. Sam­kvæmt nýj­ustu töl­um, frá því í júní, hækk­aði verð um 1,8 pró­sent frá fyrra mán­uði.

Þar af hækk­aði fjöl­býli um 2,1% og sér­býli um 0,8%. Sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár hefur fjöl­býli hækkað um 24,4% á und­an­förnu ári, sér­býli um 20,6% og er heild­ar­hækk­unin 23,5%. Hækk­anir síð­ustu 12 mán­aða eru enn miklar og þarf að fara allt aftur til upp­hafs árs­ins 2006 til að sjá álíka töl­ur.

Fasteignaverð hefur hækkað hratt, eins og sést á þessari mynd, úr hagsjá Landsbankans.

Margar íbúðir að koma á markað

Fram­boð hús­næðis til sölu er tekið að aukast, eins og áður seg­ir, og útlit fyrir að þús­undir nýrra íbúða muni koma út á markað á næstu tveimur árum. Þörfin á mark­aðnum á næstu þremur árum hefur verið skil­greind í kringum níu þús­und, en að mati flestra grein­enda á fast­eigna­mark­aði, er of lítið fram­boð, á tímum þar sem eft­ir­spurn hefur verið mik­il, mik­il­væg ástæða þess að verðið hefur hækkað jafn skarp­lega og raun ber vitni.

Til marks um hvað hækk­unin á fast­eigna­verði hefur verið hröð, þá má taka mið af dæmi­gerðum kaupum ungs fólks. Íbúð sem keypt var á 30 millj­ónir fyrir 18 mán­uðum kostar nú 40,5 millj­ónir og hefur því hækkað um 10 millj­ón­ir, eða sem nemur um 550 þús­und krónur á mán­uði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar