Tíu flugvellir í göngufjarlægð frá miðborginni

Þegar ferðast er milli flugvalla og miðborgar er ekki gert ráð fyrir að hægt sé að ganga. Slíkt mundi taka of langan tíma fyrir lúna ferðalanga. Í Reykjavík er gangan hins vegar innan við hálftími.

Reykjavíkurflugvöllur er miðstöðu innanlandsflugs á Íslandi. Þar lenda einnig margar einkaþotur erlendra einstaklinga og fyrirtækja.
Reykjavíkurflugvöllur er miðstöðu innanlandsflugs á Íslandi. Þar lenda einnig margar einkaþotur erlendra einstaklinga og fyrirtækja.
Auglýsing

Fram­tíð­ar­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir ekki ráð fyrir flug­velli í göngu­fjar­lægð frá mið­borg­inni. Þar sem flug­völl­ur­inn stendur nú í Vatns­mýr­inni á að rísa blönduð byggð íbúða, þjón­ustu og skrif­stofu­bygg­inga.

­Fyrsta skrefið í brott­hvarfi Reykja­vík­ur­flug­vallar hefur þegar verið tekið með lokun norð­aust­ur-suð­vestur flug­braut­ar­innar – sem í umræð­unni um flug­völl­inn hefur fengið nafnið neyð­ar­braut­in. Tvær flug­brautir standa eft­ir, eins og íbúar og gestir mið­borg­ar­inn­ar, eru oft minntir á enda er aðflug að norð­ur­-­suður flug­braut­inni yfir mið­bænum í norðri.

Þegar far­þegar hafa gengið frá borði má jafnan gera ráð fyrir að far­þeg­arnir panti sér leigu­bíl eða velji sér vél­knú­inn ferða­máta til þess að kom­ast á leið­ar­enda. Það er hins vegar ekki nauð­syn­legt í Reykja­vík enda er Lækj­ar­torg aðeins í um tveggja kíló­metra fjar­lægð frá flug­stöð­inni í Vatns­mýri. Slíka göngu setja fáar hraustar mann­eskjur fyrir sig.

Und­an­farna daga hafa verið fluttar fréttir af því að breska flug­fé­lagið Brit­ish Airways hygg­ist hefja beint flug milli Kefla­víkur og London City-flug­vall­ar­ins austan við London.

Auglýsing

Jafn­vel þó London City sé stað­settur innan borg­ar­marka London er hann fjarri því að vera nærri mið­borg­inni. Það eru tæpir 14 kíló­metrar þar á milli. Þar er jafn­framt aðeins ein flug­braut, en ekki tvær eins og í Reykja­vík, auk þess að ríkar kröfur eru gerðar um aðflug að vell­inum svo tak­marka megi hljóð­mengun frá flug­vélum í aðflugi.

Tíu flug­vellir í göngu­fjar­lægð

Hér að neðan eru 10 flug­vellir innan borg­ar­marka og áætluð göngu­fjar­lægð frá þeim í miðbæ borg­anna. List­inn er að miklu leyti byggður á sam­an­tekt breska dag­blaðs­ins The Tel­egraph. Við byrjum á Reykja­vík.

Reykja­vík­ur­flug­völlur



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 2,1 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 26 mín.

London City



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 13,9 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 2 klst. og 54 mín.

Rio de Jan­eiro Santos Dumont



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 2,0 km.
  • Áætl­aður göngu­tími 27 mín.

Alþjóða­flug­völl­ur­inn í Gíbraltar



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 2,1 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 27 mín.

Alþjóða­flug­völl­ur­inn í Pisa



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 4,3 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 54 mín.

Boston Logan



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 5,0 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 55 mín. (með ferju­sigl­ingu)

Belfast George Best



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 4,6 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 56 mín.

Tall­inn



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 6,1 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 1 klst. og 18 mín.

Lis­bon Por­tela



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 7,9 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 1 klst. og 37 mín.

Nice Cote d'Azur



  • Fjar­lægð frá mið­borg: 6,9 km.
  • Áætl­aður göngu­tími: 1 klst. og 24 mín.

*Göngu­tími er áætl­aður miðað við nið­ur­stöður úr Google Maps.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar