Björgólfur Thor aftur kominn á lista Forbes yfir ríkasta fólk í heimi

15897053591-072636ce90-z.jpg
Auglýsing

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er kom­inn aftur á lista For­bes yfir þá sem eiga meira en einn millj­arð dali, yfir 133 millj­arða króna, í eign­um. Fimm ár eru síðan að Björgólfur Thor komst síð­ast á list­ann. Í frétt á vef For­bes um málið er ekki til­greint í hvaða sæti Björgólfur Thor er á lista tíma­rits­ins. Það þarf varla að taka það fram að Björgólfur Thor er eini Íslend­ing­ur­inn á list­an­um, og reyndar eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur nokkru sinni kom­ist á hann. Eignir Björg­ólfs Thors eru metnar á um 1,3 millj­arða dala, um 173 millj­arða króna. Hann situr í 1.415 sæti á list­an­um.

Bill Gates, stofn­andi Microsoft, er enn og aftur rík­asti maður heims. Þetta er í 16 sinn á síð­ustu 21 árum sem hann vermir topp­sæt­ið. Heild­ar­eignir hans eru metnar á 79,2 millj­arða dala, eða um 10.500 millj­arða króna. Car­los Slim Helu, fjar­skipta­kóng­ur­inn frá Mexíkó, er í öðru sæti og fjár­festa­goð­sögnin War­ren Buf­fett, véfréttin frá Oma­ha, er í þriðja sæt­inu.

Alls eru 1.826 millj­arða­mær­ingar á list­an­um. Þeir hafa aldrei verið fleiri. 138 manns detta af list­anum á milli ára. Á meðal þeirra eru Petro Poros­hen­ko, for­seti Úkra­ínu og Aliko Dan­gote frá Níger­iu, en hann er „tap­ari árs­ins 2014“. Auður hans fór úr 25 millj­örðum dala niður í 14,7 millj­arði dala, eða tæp­lega tvö þús­und millj­arða króna. Dan­gote er því ekki að fara að líða neinn skort þrátt fyrir að vera hand­hafi þessa vafa­sama heið­urs.

Auglýsing

Bill Gates er, enn og aftur, ríkasti maður heims. Bill Gates er, enn og aft­ur, rík­asti maður heims.

Var einu sinni í 249. sæti



Í águst 2014 var til­kynnt að skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröfu­höfum sín­um, að mestu stórum alþjóð­legum bönk­um, sam­tals um 1.200 millj­arða króna. Þessi upp­gjör tryggði honum ævin­týra­legan auð þar sem hann fékk að halda góðum eign­ar­hluta í Act­a­vis að því loknu. Sá eign­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor ævin­týra­lega ríkan á ný.

Árið 2007 var Björgólfur Thor Björg­ólfs­son í 249. sæti yfir rík­ustu menn ver­aldar á lista tíma­rits­ins For­bes. Ári síð­ar, eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, stóð hann frammi fyrir tveimur kost­um. Annað hvort að verða per­sónu­lega gjald­þrota og láta það verk­efni í hendur kröfu­hafa sinna að vinna sem mest verð­mæti úr eignum hans. Eða að vinna með þeim, leggja allar eignir sínar á borð­ið, bæði per­sónu­legar eignir og eignir félaga í hans eigu, og reyna að ná sam­komu­lagi sem kæmi í veg fyrir hans per­sónu­lega gjald­þrot. Eftir hrunið lá fyrir að Björgólfur Thor var í per­sónu­legum ábyrgðum vegna skulda sem námu minnst 40 millj­örðum króna.

Skömmu eftir hrun hófust við­ræður milli Björg­ólfs Thors og trún­að­ar­manna hans, og síðar full­trúa lán­ar­drottna sem áttu kröfu á Björgólf Thor og félög hans.

Á end­anum var lagt upp með að reyna að sam­eina Act­a­vis öðru stóru sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki og svo gengið frá und­ir­rit­uðu sam­komu­lagi milli Björg­ólfs Thors og Novators og allra lán­ar­drottna og þeirra sem áttu kröfu á hann.

Björgólfur Thor var einu sinni í 249. sæti listans. Nú er hann töluvert neðar. Björgólfur Thor var einu sinni í 249. sæti list­ans. Nú er hann tölu­vert neð­ar­.

Til­kynnt um skulda­upp­gjör



Um þetta til­kynnti Björgólfur Thor með frétta­til­kynn­ingu 21. júlí 2010. Í henni sagði meðal ann­ars: „Sam­kvæmt sam­komu­lag­inu [við kröfu­hafa] munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eft­ir. Allar eignir Björg­ólfs Thors og Novators liggja til grund­vallar upp­gjör­inu, en á þeim var gerð ítar­leg úttekt og mat af hálfu alþjóð­legs ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is. Björgólfur Thor verður áfram hlut­hafi í félögum á borð við Act­a­vis, Play, CCP og Verne Hold­ing. Arð­ur­inn af þessum eign­ar­hlutum og verð­mæti, komi til sölu þeirra, mun ganga til upp­gjörs skuld­anna, ásamt ýmsum per­sónu­legum eigum hans. Þar á meðal eru hús­eign í Reykja­vík og sum­ar­hús við Þing­velli. Sam­hliða þessu skulda­upp­gjöri hefur náðst sam­komu­lag um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Act­a­v­is. Við gerð sam­komu­lags­ins nutu Björgólfur Thor og Novator lið­sinnis tveggja alþjóð­legra fyr­ir­tækja, hinnar virtu lög­manns­stofu Linkla­ters og ráð­gjafarfyr­ir­tæk­is­ins Alix­Partners, sem er eitt þekktasta fyr­ir­tæki heims á sviði fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ing­ar“.

Eftir að sam­komu­lagi hafði verið náð þar sem allir sem áttu hags­muna að gæta komu að borð­inu var vinnu haldið áfram. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að Deutsche Bank, stærsti kröfu­hafi Björg­ólfs Thors, réði ferð­inni þegar kom að Act­a­vis en skuld­batt sig til að vinna úr stöðu mála með Björgólfi Thor og Novator. Með sam­komu­lag­inu varð form­lega ljóst að Björgólfur Thor yrði ekki gerður per­sónu­lega gjald­þrota.

Björgólfur verður ævin­týra­lega rík­ur…aftur



Í apríl 2012 dró til tíð­inda. Þá var til­kynnt um yfir­töku lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Watson á Act­a­v­is. Sam­tals voru greiddar um 700 millj­arðar króna fyrir félagið en til við­bótar áttu að koma greiðslur sem tóku mið af því hvernig rekstur Act­a­vis var árið 2012 sam­kvæmt upp­gjöri. Hagur Björg­ólfs Thors og Novator vænk­að­ist við þetta en í þeirra hlut komu fimm millj­ónir hluta í hinu nýja félagi á grund­velli samn­ings við Deutsche Bank sem gerður var sam­hliða kaupum Watson. Eftir að til­kynnt var um kaup Watson á Act­a­vis, og þar með sam­ein­ingu þess­ara félaga, hefur mark­aðsvirði þess hækkað hratt. Það er skráð á markað undir nafni Act­a­vis og hækk­aði gengi bréfa á hlut úr tæp­lega 60 dölum frá því til­kynnt var um kaupin í 127,2 dali þann 22. maí 2013, ríf­lega ári síð­ar. Þetta þýddi að hlutur Björg­ólfs í Act­a­vis í gegnum Novator var á milli 70 og 80 millj­arða króna virði á þeim tíma.

Það er skráð á markað undir nafni Act­a­vis og hækk­aði gengi bréfa á hlut úr tæp­lega 60 dölum frá því til­kynnt var um kaupin í 127,2 dali þann 22. maí 2013, ríf­lega ári síð­ar. Þetta þýddi að hlutur Björg­ólfs í Act­a­vis í gegnum Novator var á milli 70 og 80 millj­arða króna virði á þeim tíma.

Um miðjan maí 2013 var síðan til­kynnt um enn meiri stækkun á efna­hags­reikn­ingi Act­a­vis þegar greint var frá kaupum félags­ins á írska lyfja­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Warner Chilcott. Sam­kvæmt fyrstu fréttum AFP-frétta­veit­unnar var kaup­verðið áætlað um 8,5 millj­arða dala, sem jafn­gilti um 1.100 millj­örðum króna, miðað við gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal dag­inn sem til­kynnt var um við­skipt­in.

Í dag er gengi bréfa í Act­a­vis 291,36 dal­ir, eða fimm sinnum hætta en það var við kaup Watson á Act­a­v­is.

Allt var und­ir, líka einka­þotan og snekkjan



Allt eigna­safn Björg­ólfs Thors og félaga sem hann tengd­ist var sett að veði fyrir því að honum tæk­ist að greiða skuldir sínar til baka. Stein­grá einka­þota hans af Chal­len­ger-­gerð, sem merkt var Novator, var þar á með­al. Hún var oft í kast­ljósi fjöl­miðla þegar allt var í blóma í íslensku við­skipta­lífi. Fyrr­ver­andi leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, Mik­hail Gor­bat­sjov, fékk meðal ann­ars far með henni þegar hann kom hingað til lands 11. októ­ber 2006 til að halda fyr­ir­lestur í Háskóla­bíói. Hún var að lokum seld. Það sama átti við um snekkj­una Elem­ent sem var bátur af dýr­ari gerð­inni, svo ekki sé fastar að orði kveð­ið.

Upp­haf­lega var gert ráð fyrir því að nið­ur­staðan úr upp­gjöri Björg­ólfs Thor­s og Novator við kröfu­hafa myndi ekki liggja fyrir fyrr en fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Pól­landi yrði selt. Það er á meðal stærstu far­síma­fyr­ir­tækja Pól­lands en við­skipta­vinir þess voru á vor­mán­uðum 2013 ríf­lega 9,1 milljón tals­ins. Í til­kynn­ingu Björg­ólfs Thors frá því í sumar segir um Play: „Á upp­gjörs­tím­anum hefur fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Pól­landi vaxið hröðum skrefum og sá vöxtur á sinn þátt í að upp­gjöri lauk á aðeins fjórum árum. Trú fjár­festa  á fyr­ir­tæk­inu var stað­fest í febr­úar sl. þegar eft­ir­spurn eftir skulda­bréfum fyr­ir­tæk­is­ins fór fram úr björt­ustu von­um“.

Björgólfur Thor gaf í fyrra út bók um fall sitt og end­ur­komu. Kjarn­inn birti umfjöllun um bók­ina skömmu eftir að hún kom út.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None