makkrilll.jpg
Auglýsing

Á dög­unum var til­kynnt um kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Gull­bergi ehf. á Seyð­is­firð­i.  Jafn­framt keypti Síld­ar­vinnslan, sem er með höf­uð­stöðvar og rætur í Nes­kaups­stað, hús­næði og búnað fisk­vinnsl­unnar Brim­bergs sem var í eigu sömu aðila. Með þessum kaupum er Sílda­vinnslan búin að festa sig í sessi sem risi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Adolf Guð­munds­son, for­maður Lands­sam­bands íslenskra útgerð­ar­manna (LÍÚ) hefur verið fram­kvæmda­stjóri Gull­bergs árum saman og meðal eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Fram kemur í til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar að áfram verði gert út frá Seyð­is­firði og lögð áhersla á að tryggja áfram­hald­andi fram­leiðslu­störf  tengd sjáv­ar­út­vegi á Seyð­is­firði. Fyrir rekur Síld­ar­vinnslan fiski­mjöls­verk­smiðju á staðn­um.

Hinir stóru stækka



adolfgudMeð kaup­unum heldur sam­þjöpp­unin áfram í íslenskum sjáv­ar­út­veg­i.  Hinir stóru verða stærri og öfl­ugri.  Það eru ekki síst stóru sam­settu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin sem eiga kvóta í upp­sjáv­ar- og botn­fisk­teg­undum sem hafa stækkað á meðan litlum og með­al­stórum útgerðum hefur fækk­að.

Afla­heim­ildir hafa safn­ast saman á nokkrum stöðum þar sem öfl­ug­ustu fyr­ir­tækin eru (dæmi nefnd í svig).  Nú eru stærstu útgerð­ar­stað­irnar Vest­manna­eyjar (Ís­fé­lag Vest­manna­eyja og Vinnslu­stöð­in), Nes­kaup­staður (Síld­ar­vinnslan) , Akur­eyri (Sam­herj­i), Sauð­ár­krókur (FISK Seafood), Horna­fjörður (Skinn­ey-­Þinga­nes), Grinda­vík (Þor­björn og Vís­ir) og Reykja­vík (Brim og HB Grand­i). Starf­semi fyr­ir­tækja á þessum stöðum teygir sig hins vegar víða um land­ið.

Auglýsing

Góð afkoma



Af­koma Síld­ar­vinnsl­unnar hefur verið góð und­an­farin ár, svo ekki sé meira sag­t.  Þar vega þungt hag­stæðar aðstæður í upp­sjáv­ar­veiðum og vinnslu. Það er ekki síst til­koma mak­ríls í lög­sög­unni sem hefur haft veru­lega jákvæð áhrif á afkomu fyr­ir­tæk­is­ins. Hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra nam 5,6 millj­örðum króna og sjö millj­örðum króna árið 2012. Heild­ar­starfs­manna­fjöldi fyr­ir­tæk­is­ins var þá 230 manns en þeim hefur nú fjölgað með útvíkkun á starf­sem­inni, meðal ann­ars með kaupum á Gull­bergi.

Síld­ar­vinnslan hefur einnig styrkt sig í bol­fiski með kaupum á kvóta á síð­ustu árum.  Þar ber hæst kaup á Berg­i-Hug­inn í Vest­manna­eyj­um, sembjoggijohanns enn er reyndar deilt um fyrir dóm­stól­um. Þá keypti Síld­ar­vinnslan hluta af kvóta Stál­skips í Hafn­ar­firð­i.  Auk þess er félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, SVN eigna­fé­lag ehf. stór hlut­hafi í trygg­ing­ar­fé­lag­inu Sjóvá og hefur sú fjár­fest­ing skilað góðri ávöxtun nú þeg­ar.

Með kaup­unum á Gull­bergi er Síld­ar­vinnslan orðin risi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi með umtals­verðan kvóta í flestum helstu fiski­teg­undum við Ísland.  Helstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji (45% hlut­ur), Gjögur (34%) og SÚN í Nes­kaup­stað (11%). Þess má geta að stór hlut­hafi í Gjögur er Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group og for­maður stjórnar Sam­taka atvinnu­lífs­ins.

Stækkar stöðugt



samherjaVef

Sam­herji og Gjögur hafa einnig bætt við sig afla­heim­ildum á síð­ustu árum, t.a.m. með kaup­unum á Stál­skip í upp­hafi árs­ins.  Sam­an­lögð kvóta­eign þess­ara þriggja félaga sem tengj­ast Síld­ar­vinnsl­unni, þ.e. Sam­herja, Síld­ar­vinnsl­unnar og Gjög­urs, er orðin meiri en kvóta­eign stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis lands­ins, HB Granda. Fiski­stofa gerði sam­þjöppun afla­heim­ilda að umtals­efni nýlega í sam­an­tekt.

Í til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar kemur ekki fram hvert kaup­verðið var á Gull­berg­i.  Sam­kvæmt Fiski­stofu átti Gull­berg tæp 2.900 þorskígildi í upp­hafi fisk­veiði­árs­ins.  Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er algengt verð á þorskígildistonni í ein­stökum við­skiptum nú um 2.200-2.400 kr/k­g.  Virði kvót­ans gæti því hafa verið um 6,6 millj­arð­ar. Það gefur vís­bend­ingu um hversu umfangs­mikil þessi við­skipti voru.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None