Sinfóníuhljómsveitin er orðin betri í Hörpu

Harpa hefur gefið Sinfóníuhljómsveit Íslands tækifæri til að þróast og vaxa, að mati listræns ráðgjafa hljómsveitarinnar. Fjallað er um Sinfó í Þukli í Hlaðvarpi Kjarnans í dag.

Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti Leníngrad-sinfóníuna eftir Dmitri Sjostakovitsj fimmtudaginn 11. febrúar. Hljómsveitin hefur aldrei selt jafn marga miða á sinfóníutónleika og því var sett aðsóknarmet í Eldborg.
Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti Leníngrad-sinfóníuna eftir Dmitri Sjostakovitsj fimmtudaginn 11. febrúar. Hljómsveitin hefur aldrei selt jafn marga miða á sinfóníutónleika og því var sett aðsóknarmet í Eldborg.
Auglýsing

Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands hefur þró­ast mikið á und­an­förnum árum eftir að hljóm­sveitin fékk nýtt heim­ili í tón­list­ar­hús­inu Hörpu árið 2011. Sinfó hafði áður verið til húsa og spilað í Háskóla­bíó síðan það var opnað árið 1961. Fjallað er um Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ina í þætt­inum Þukl í Hlað­varpi Kjarn­ans í dag.

„Sin­fón­íu­hljóm­sveit gengur rosa­lega mikið út á hljóm og hvernig hljóm­sveitin hljóm­ar,“ segir Árni Heimir Ing­ólfs­son, list­rænn ráð­gjafi Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, í sam­tali í þætt­in­um. „85 manns þurfa að stilla sig sam­an. Við erum alltaf að tala um ein­hverjar míkró­sek­úndur sem skilja á milli þess að vera sam­taka og ekki sam­taka í tón­list.“

„Há­skóla­bíó hafði svo tak­mark­aða þró­un­ar­mögu­leika, við komumst bara ákveðið langt þar. Hljóm­burð­ur­inn var ekki nægi­lega góður og aðstaðan ekki nógu góð. Við það að kom­ast í hús þar sem þú getur gert það sem þú átt að vera að gera þá um leið tekst þér að kom­ast ennþá lengra,“ segir Árni Heim­ir.

Auglýsing

Árni segir að sin­fón­íu­hljóm­sveitin sé mjög ánægð í Hörpu og að þar hafi hljóm­sveitin þró­ast mikið á síð­ustu fimm árum. „Hljóm­sveitin hérna þurfti að læra á hús­ið. Þau spila öðru­vísi og beita sér öðru­vísi hér af því að hljóm­burð­ur­inn er góð­ur, af því að húsið tekur við, heldur en í Háskóla­bíó­i.“ 

Gald­ur­inn við góðan hljóm í sölum Hörpu er að þar eru rýmin hönnuð sér­stak­lega með hljóm­burð í huga. Handan veggja Eld­borg­ar­sal­ar­ins eru til dæmis gríð­ar­stór ómrými sem hægt er að opna á óraf­mögn­uðum tón­leikum og magna hljóðið alla leið upp á efstu bekki sal­ar­ins.

Sin­fón­íu­hljóm­sveitin spilar hins vegar ekki aðeins í Eld­borg heldur fer hlið­ar­dag­skrá hljóm­sveit­ar­innar nær öll fram í hlið­ar­sölum tón­list­ar­húss­ins og á göngum þess. Arna Kristín Ein­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Hörpu, segir Sinfó velja sér vett­vang eftir því hvað hentar hverju sinni. „Það eru [til dæm­is] barna­stund­ir; alveg fyrir yngstu áhorf­end­urn­ar. Það er dásam­legt. Börnin eru ekki farin að ganga en dilla sér alveg í takt við tón­list­ina. Þá förum við út úr Eld­borg því það getur verið erfitt að sitja kjurr þegar maður er lít­ill,“ segir Arna Krist­ín. 

Á föstu­dag­inn hefst ný hlið­ar­tón­leika­röð sem kölluð er Föstu­dags­röðin og verður í stjórn Dan­í­els Bjarna­sonar tón­skálds. Sú tón­leika­röð verður í Norð­ur­ljósum þar sem nálægðin við flytj­endur verður mun meiri. Arna Kristín segir þetta geta verið geggj­aða upp­lifun fyrir fólk. Sjálf spil­aði hún á flautu í Sin­fón­íu­hljóm­sveit­inni og sat þess vegna á miðju svið­inu umkringd hljóm­sveit­inni. „Það er svo mikið kikk að vera inni í þessum hljómi,“ segir hún.

Í aðdrag­anda tón­leik­ana hefur Sinfó birt mynd­skeið af spjalli Dan­í­els Bjarna­son­ar, Egils Ólafs­son­ar, leik­ara og hand­rits­höf­und­ar, og Ernu Ómars­dótt­ur, dans­ara og dans­höf­und­ar, um lag­línur og birt­ing­ar­mynd þeirra í ólíkum list­form­um. Mynd­skeiðið má horfa á hér að neð­an.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiHlaðvarp
None