135 þúsund Danir fá ekki að kjósa í komandi þingkosningum

h_51969034-1.jpg
Auglýsing

Þing­kosn­ingar fara fram í Dan­mörku í næstu viku, fimmtu­dag­inn 18. júní. Sam­kvæmt könn­unum er afar mjótt á munum milli rauðu blokk­ar­innar svo­nefndu (stjórn­ar­innar og stuðn­ings­flokka henn­ar) og bláu blokk­ar­innar (stjórn­ar­and­stöð­unn­ar).

Fram­bjóð­endur leggja nótt við dag í kosn­inga­bar­átt­unni enda munar um hvert atkvæði, ekki síst þegar úrslitin virð­ast jafn tví­sýn og nú er raun­in. Þess vegna kom það mörgum á óvart þegar eitt dönsku blað­anna sagði frá því nýverið að 135 þús­und Danir fái ekki að kjósa til þings í næstu viku.

100 ára gömul lög



Þegar dönsku stjórn­ar­skránni (Grund­loven) var breytt fyrir réttum eitt hund­rað árum, og konur fengu kosn­inga­rétt, var það jafn­framt tekið fram að til að mega kjósa skuli við­kom­andi vera búsettur í Dan­mörku, á Græn­landi eða í Fær­eyj­u­m. Þetta ákvæði er enn í stjórn­ar­skránni og Dan­mörk hefur að þessu leyti sér­stöðu meðal Norð­ur­landa.

Sví­ar, Finnar og Norð­menn halda sínum kosn­inga­rétti út ævina (ef þeir halda rík­is­borg­ara­rétt­in­um), Íslend­ingar halda kosn­inga­rétt­inum í átta ár en þurfa síðan að óska eftir að fá að kjósa, en það fyr­ir­komu­lag er í reynd forms­at­riði. Það er þetta hund­rað ára gamla laga­á­kvæði sem nú hefur vakið hefur umræður hér í Dan­mörku.

Auglýsing

Borgar skatt en fær ekki að kjósa



Danska Sjón­varp­ið, DR, birti fyrir nokkrum dögum við­tal við danskan mann sem býr í Hels­ingja­borg, handan Eyr­ar­sunds. Hann fer dag­lega til vinnu í Kaup­manna­höfn, er danskur rík­is­borg­ari, og borgar skatt til danska rík­is­ins. Hann hefur lögum sam­kvæmt engan rétt til að taka þátt í þing­kosn­ingum hér í landi.

Þessi maður er hátt­settur innan danska hers­ins og þykir súrt í broti að mega ekki greiða atkvæði og leggja sitt af mörk­um. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann fær ekki að kjósa en sagði í við­tal­inu að það bætti ekki úr skák.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem DR hefur aflað sér eru sam­tals 135 þús­und Danir í sömu stöðu og áður­nefndur for­ingi í hern­um. Stærstur hluti þess hóps vinnur ekki í Dan­mörku og borgar ekki skatt til danska rík­is­ins en stjórn­ar­skráin gerir engan grein­ar­mun þar á.

Evr­ópu­sam­bandið hefur margoft gert athuga­semdir



Á und­an­förnum árum hefur fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins margoft gert athuga­semdir við þetta danska laga­á­kvæði. Þetta er algjör­lega á skjön við hug­myndir og lög um frjálst flæði vinnu­afls og flutn­ing fólks á milli landa innan sam­bands­ins. Málið hefur líka margoft verið tekið upp í danska þing­inu og árið 2004 voru sam­þykkt nokkur und­an­tekn­ing­ar­á­kvæði, til dæmis varð­andi starfs­fólk Utan­rík­is­ráðu­neyt­is, alþjóða­stofn­ana og náms­menn.

Í kosn­ingum 2011 kusu tæp­lega sex þús­und Danir sem eru búsettir utan Dan­merkur og falla undir þetta ákvæði. Margir úr hópi núver­andi þing­manna hafa lýst vilja til að breyta stjórn­ar­skránni en það er ekki ein­falt mál.

Stjórn­ar­skránni hefur aðeins fjórum sinnum verið breytt



Danska stjórn­ar­skráin er frá árinu 1849. Síðan þá hefur henni verið breytt fjórum sinn­um, sein­ast árið 1953. Til að breyta þarf þingið að sam­þykkja breyt­ing­una tvisvar, með þing­kosn­ingum í milli­tíð­inni. Ef þingið sam­þykkir breyt­ing­una þarf að bera hana undir þjóð­ar­at­kvæði.

Í slíkum kosn­ingum þurfa 40 pró­sent þeirra sem atkvæð­is­rétt hafa að greiða breyt­ing­unni atkvæði sitt. Þetta ákvæði gerir það að verkum að mjög erfitt er að gera breyt­ingar á stjórn­ar­skránni, "erf­ið­ara en að breyta fjalli" sagði danskur þing­maður þegar þetta var til umræðu í sjón­varp­inu fyrir skömmu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None