165.020 íslyklar verið gefnir út fyrir einstaklinga og fyrirtæki

snjallsimi.jpg
Auglýsing

Nú hafa verið gefnir út 165.020 íslyklar til ein­stak­linga og 3.805 til fyr­ir­tækja.

Inn­skrán­ing­ar­þjón­usta Ísland.is býður upp á inn­skrán­ingu inn á vefi um 150 þjón­ustu­veit­enda og um fimm til fimmtán þús­und manns nýta sér þjón­ust­una dag­lega. Þetta kemur fram á vef Þjóð­skrár Íslands.

Íslyk­ill er hluti af inn­skrán­ing­ar­þjón­ustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota raf­ræn skil­ríki í síma og á kort­um. Hlut­falls­leg notkun inn­skrán­ing­ar­leiða síð­ast­liðna sex­tíu daga er íslyk­ill 86,71%, raf­ræn skil­ríki á korti 1,42%, raf­ræn skil­ríki í far­síma 11,37%, styrktur Íslyk­ill 0,29% og OPT auð­kenn­ing 0,20%.

islyklar Mynd: Þjóð­skrá Íslands­.

Auglýsing

 

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, skrif­aði harð­orða grein í Morg­un­blaðið í morg­un, þar sem raf­ræn skil­ríki eru til umfjöll­un­ar. Í grein­inni segir Ólafur að skulda­leið­rétt­ingin svo­kall­aða hafi verið notuð til að smala neyt­endum í við­skipti við einka­fyr­ir­tækið Auð­kenni sem hefur ein­ok­un­ar­stöðu í útgáfu raf­rænna skil­ríkja. Auk þess var fyr­ir­tækjum þröngvað í við­skipti við fyr­ir­tæk­ið, inn­leið­ing­ar­ferli raf­rænna skil­ríkja illa und­ir­búið og það hafði nei­kvæð áhrif á frjálsa sam­keppni. Í ljósi þeirrar yfir­burð­ar­stöðu sem hin öfl­uga smölun við­skipta­vina, með dyggri aðstoð rík­is­valds­ins, hefur skilað Auð­kenni getur fyr­ir­tækið rukkað mun hærra verð fyrir þjón­ustu sína en aðrir sem bjóða upp á raf­ræn skil­ríki.

Auð­kenni er fyr­ir­tæki sem er í eigu Sím­ans, Ter­is, Arion banka, Íslands­banka og Lands­banka. Þeir neyt­endur sem nýttu sér skulda­leið­rétt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar þurftu að verða sér úti um raf­ræn skil­ríki til að geta sam­þykkt hana. Til að byrja með voru skil­rík­in, sem fólk getur notað í far­símum sín­um, ókeypis en Auð­kenni hefur síðan gefið út að fyr­ir­tækið ætli að rukka fyrir þau. Neyt­endur verða ekki rukk­að­ir  beint heldur verður lagt gjald á þau fyr­ir­tæki sem þurfa að bjóða við­skipta­vinum sín­um, meðal ann­ars fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem eru í sam­keppni við einn eig­anda Auð­kennis, Sím­ann.

Ólafur segir enn fremur að neyt­endur sjálfir muni sitja uppi með kostn­að­inn af þess­ari ein­ok­un­ar­stöðu sem uppi er, vegna lélegs und­ir­bún­ingar og slæmrar fram­kvæmdar þessa ann­ars mik­il­væga máls.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None