Björgólfur Thor segir Róbert Wessman hafa komið auð sínum undan og noti hann til að klekkja á sér

Björgólfur Thor
Auglýsing

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son segir Róbert Wessman og Árna Harð­ar­son ekki hika við að leggja í tug­millj­óna króna kostnað til að reyna að klekkja á sér. „Róbert hefur í digra sjóði að sækja, enda gætti hann þess vand­lega að koma auð sínum und­an­ ­kröfu­höf­um, í stað þess að gera upp millj­arða skuldir sínar við íslensku ­bank­ana eftir hrun. Auð­vitað gera þeir sér engar vonir um bætur úr minni hend­i, enda eina mark­miðið að sverta mann­orð mitt.“ Þetta kemur fram í nýrri ­færslu á blogg­síðu Björg­ólfs Thors, www.bt­b.is,

Kjarn­inn greindi frá því á mið­viku­dag að félag í eigu Árna Harð­ar­son­ar, stjórn­ar­manns og lög­manns lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Al­vogen, ætti um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem eru að baki hóp­mál­sókn sem nú er rekin gegn Björgólfi. Árni á hluta­bréf­in, sem hann hefur keypt af islenskum líf­eyr­is­sjóðum nýver­ið, í gegnum félag sem heitir Urriða­hæð ehf. Sam­tals hef­ur Árni greitt á milli 25 til 30 millj­ónir króna fyrir hluta­bréf­in, sem eru verð­laus nema að til tak­ist að fá við­ur­kennt fyrir dóm­stólum að Björgólfur Thor eigi að greiða fyrrum hlut­höfum Lands­bank­ans skaða­bæt­ur. Til við­bótar þarf ­Ur­rið­hæð að greiða sinn hluta máls­kostn­að­ar. Hann gæti hlaupið á tugum millj­óna króna.

Árni er nánast­i ­sam­starfs­maður Róberts Wessm­ans. Þeir störf­uðu áður báðir hjá Act­a­vis, á með­an að Björgólfur Thor var aðal­eig­andi þess fyr­ir­tæk­is. Síðan að Árni og Róbert hættu störfum hjá Act­a­vis árið 2008 hefur andað veru­lega köldu milli þeirra og ­Björg­ólfs Thors. Hann hefur meðal ann­ars stefnt þeim til greiðslu skaða­bóta ­fyrir mein­tan fjár­drátt auk þess sem báðir aðilar hafa ítrekað atyrt hinn á op­in­berum vett­vangi á und­an­förnum árum. 

Auglýsing

Ein­stakt mál 

Björgólfur Thor fer hörðum orðum um Árna og Róbert í færsl­unni sem hann setti inn á blogg­síðu sína í dag. Þar segir hann meðal ann­ars að fingraför þeirra hafi verið á mál­inu frá­ ­upp­hafi. Hann gagn­rýnir svo lög­menn­ina sem að mál­inu hafa kom­ið, þing­mann­inn Vil­hjálm Bjarna­son, RÚV og líf­eyr­is­sjóði lands­ins fyrir þeirra aðkomu að því.

Hóp­mál­sókn­in ­gegn Björgólfi Thor var þing­fest í vik­unni. Máls­höfð­un­in er sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi er lýtur að dóms­málum sem tengjast ­banka­hrun­inu. Aldrei áður hafa fyrrum hlut­hafar í íslenskum banka tekið sig ­saman og stefnt fyrrum aðal­eig­anda hans fyrir að hafa blekkt sig með sak­næm­um hætti til að eiga í bank­an­um. Og krefj­ast skaða­bóta fyr­ir. Björgólfur Thor hefur ávallt neitað sök og sagt máls­höfð­un­ina vera gróðra­brall lög­manna sem að henni starfa. 

Kjarn­inn hefur stefn­una í mál­inu, sem er 50 blað­síður að lengd, undir hönd­um. Hana má ­lesa hér.

Alls ­taka 235 aðilar þátt í mál­sókn­inni. Þeir eiga sam­tals 5,67 pró­sent af heild­ar­hlutafé í Lands­bank­ans, sem féll haustið 2008.

Krefj­ast að skaða­bóta­skylda verði við­ur­kennd

Mál­sókn­ar­fé­lagið krefst þess að skaða­bóta­skylda ­Björg­ólfs Thors á því tjóni sem aðilar að félag­inu urðu fyrir þegar hluta­bréf í Lands­bank­anum urðu verð­laus við fall hans 7. októ­ber 2008. Í stefn­unni kem­ur fram að félags­menn byggi mál­sókn­ina á því „að þeir hefðu ekki verið hlut­hafar í Lands­banka Íslands hf. og þar með ekki orðið fyrir tjóni, ef ekki hafði kom­ið til hinnar sak­næmu og ólög­mætu hátt­semi stefnda [Björg­ólfs Thor­s]“.

Það sem mál­sókn­ar­fé­lagið telur að Björgólfur Thor hafi gert, og hafi ollið þeim skaða, er þrennt. Í fyrsta lagi hafi ekki verið veitt­ar ­upp­lýs­ingar um lán­veit­ingar Lands­banka Íslands til Björg­ólfs Thors og tengdra að­ila í árs­reikn­ingum bank­ans fyrir rekstr­ar­árið 2005 og í öllum upp­gjöru­m eftir það fram að hrun­i. 

Í öðru lagi hafi ­Björgólfur Thor van­rækt á tíma­bil­inu 30. júní 2006 til 7. októ­ber 2008, að „­upp­lýsa opin­ber­lega um að Sam­son eign­ar­halds­fé­lag ehf. [Í aðal­eigu Björg­ólfs T­hors og föður hans] færi með yfir­ráð yfir Lands­banka Íslands hf., og teld­ist því móð­ur­fé­lag bank­ans“. 

Í þriðja lagi telur félagið að Björgólfur Thor hafi van­rækt að „­sjá til þess að Sam­son eign­ar­halds­fé­lag ehf. gerði öðrum hlut­höfum Lands­banka Ís­lands hf. yfir­tökutil­boð hinn 30. júní 2006, eða síð­ar, í sam­ræmi við ákvæð­i laga um verð­bréfa­við­skipt­i“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None