Hagstofan: Útflutningur til Rússlands ekki vanmetinn

Rannsókn Hagstofunnar sýndi ekki að útflutningur til Rússlands hafi verið vanmetinn, eins og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi héldu fram.

kjarninn_makrill.jpg
Auglýsing

Ekk­ert bendir til að útflutn­ingur afurða frá Íslandi til Rúss­lands hafi verið van­met­inn í tölum Hag­stof­unn­ar. Er það nið­ur­staða sér­stakrar rann­sóknar Hag­stof­unnar á hlut­deild Hollands í vöru­út­flutn­ingi, en hún hefur auk­ist mjög á und­an­förnum árum. 

Sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar fyrir árið 2014 fór nærri 30 pró­sent af öllum útflutn­ingi Íslands til Hollands, þar sem stærsta skipa­höfn Evr­ópu er stað­sett í Rott­er­dam. Í ágúst síð­ast­liðnum til­kynnti Hag­stofan að hún myndi rann­saka áreið­an­leika taln­anna. Málið kom upp í kjöl­far inn­flutn­ings­banns Rússa á vörur frá Íslandi í ágúst síð­ast­liðn­um. Kol­beinn Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, hafði þá sagt að tölur Hag­stof­unnar gefi ekki rétt mynd af útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands þar sem stór hluti sjáv­ar­af­urða séu toll­skráð í Hollandi en flutt áfram til Rúss­lands. SFS sagði að um 40 pró­sent af verð­mætum sjávafa­f­urða til Hollands fari áfram til Rúss­lands og um 80 pró­sent af verð­mætum til Lit­há­ens endi í Rúss­landi.

Í frétt Hag­stof­unnar um rann­sókn á útflutn­ingi til Hollands (Nið­ur­lands) segir að erfitt hafi verið að finna end­an­legt ákvörð­un­ar­land fyrir meiri­hluta útflutn­ings til Hollands, þar sem mik­il­vægir útflutn­ings­að­ilar á iðn­að­ar­vöru, aðal­lega áli og álaf­urð­um, búi ekki yfir upp­lýs­ing­un­um. Því sé ljóst að flutn­ingur um Rott­er­dam hafi mikil áhrif á nið­ur­stöðu um landa­skipt­ingu útflutn­ings. En í til­viki útflutn­ings á sjáv­ar­af­urðum hafi hins vegar í flestum til­vikum verið hægt að fá upp­lýs­ingar um end­an­legt ákvörð­un­ar­lands. Nið­ur­staða Hag­stof­unnar er að heild­ar­út­flutn­ing­ur, sem áður var met­inn um 30 pró­sent árið 2014, lækkar um 6 pró­sent eða 39 millj­arða króna. Ekk­ert bendir hins vegar til að útflutn­ingur til Rúss­lands hafi verið van­met­inn.

Auglýsing

Rúss­land var árið 2014 sjötta stærsta við­skipta­land Íslands og helsti kaup­andi mak­ríls og loðnu.

„Í fram­haldi af við­skipta­banni Rúss­lands á íslenskar afurðir kom fram umræða um hvort að útflutn­ings­tölur sýndu rétta mynd af við­skiptum við Rúss­land, þ.e. hvort ­út­flutn­ingur til Rúss­lands sem fer í gegnum Rott­er­dam sé skráður sem útflutn­ing­ur til Nið­ur­lands. 

Eftir við­ræður við helstu útflutn­ings­að­ila og skoðun talna fyr­ir­tækj­anna sjálfra hefur komið í ljós að engin meiri­háttar frá­vik eru á þeim tölum sem Hag­stof­an hefur áður gefið út um útflutn­ing til Rúss­lands og þeim tölum sem fyr­ir­tækin hafa ­yfir að búa. Í flestum til­vikum hefur raunin verið sú að útflytj­endur hafa flutt ­sjáv­ar­af­urðir beint frá Íslandi til Rúss­lands því rúss­neskir inn­flytj­endur hafa gert þá ­kröfu að með íslenskum sjáv­ar­af­urðum fylgi heil­brigð­is­vott­orð frá við­ur­kennd­um ­stjórn­völd­um. Sé fiskur sendur í geymslu í Rott­er­dam þá er ekki hægt að full­yrða að annar fisk­ur, með aðra eða enga vott­un, lendi ekki með í send­ingu frá Rott­er­dam til Rúss­lands og það vilja rúss­neskir inn­flytj­endur forð­ast. Rétt er að taka fram að ­kröfur rúss­neskra inn­flytj­enda til vott­orða geta verið mis­mun­andi og mögu­legt er að íslenskar sjáv­ar­af­urðir endi í Rúss­landi með öðrum leiðum en beinni send­ing­u, en sé tekið mið af sölu­tölum fyr­ir­tækja þá er sú upp­hæð óveru­leg,“ segir í skýrslu Hag­stof­unnar sem lesa má hér. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None