Yfirlýsing frá starfsfólki RÚV: Óskar eftir vinnufriði og umræðu sem byggir á staðreyndum

rúv
Auglýsing

Starfs­manna­sam­tök RÚV segja að þeir sem vilji hag fyr­ir­tæk­is­ins sem minnstan tali "tala hátt og finna starf­sem­inni og starfi okkar flest til­ ­for­áttu í þeim aug­ljósa til­gangi að stuðla að því að Alþingi skeri enn eina ­ferð­ina niður fjár­veit­ingar til RÚV". Sama atburð­ar­rásin fari af stað á hverju hausti þegar vinna við fjár­laga­frum­varp hefst. Sam­tökin segja and­stæð­inga RÚV hag­ræða sann­leik­anum varð­andi rekstur fyr­ir­tæk­is­ins og að alger við­snún­ingur hafi orðið í rekstri RÚV ohf. á síð­ustu miss­er­um. Þau óska eftir því að "stjórn­mála­menn og aðrir sýni þá ­sjálf­sögðu kurt­eisi að byggja mál sitt á stað­reynd­um. Starfs­fólk RÚV er lang­þreytt á ófag­legri umræð­u". 

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem stjórn Starfs­manna­sam­taka Rík­is­út­varps­ins sendi frá sér í dag. Undir yfir­lýs­ing­una skrifa Gunnar Magn­ús­son for­maður og Ragna Foss­berg gjald­keri.

Mál­efni RÚV hafa verið mikið í umræð­unni und­an­farna daga eftir útkomu skýrslu nefnd­ar, sem Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skip­aði til að greina þróun á starf­semi RÚV. Í skýrsl­unni er farið ófögrum orðum um rekstur fyr­ir­tæk­is­ins. Þar sagði meðal ann­ars að rekstur RÚV hafi verið ósjálf­bær frá því að fyr­ir­tækið var gert að opin­beru hluta­fé­lagi árið 2007. Alls nemur tap umfram hagnað 813 millj­ónum króna á því tíma­bili, og er þar gert ráð fyrir þeim tekjum sem RÚV hefur af útvarps­gjaldi sem lands­mönnum er skylt að greiða. Samt sem áður gera áætl­anir RÚV, sem fyr­ir­tækið vinnur eft­ir, ráð fyrir því að það fái hærra útvarps­gjald en gert er ráð fyrir í fjár­laga­frum­varpi árs­ins, að 3,2 millj­arða króna lán vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga hverfi úr efna­hag RÚV og að sala á bygg­inga­rétti á lóð fyr­ir­tæk­is­ins gangi eft­ir. Gangi allar þessar for­sendur ekki eftir er rekstur RÚV eins og fyr­ir­tækið er rekið í dag ósjálf­bær.

Auglýsing

For­svars­menn RÚV hafa hafnað mörgu sem fram kemur í skýrsl­unni og hafa gagn­rýnt hana harð­lega

Yfir­lýs­ing starfs­manna­sam­taka Rík­is­út­varps­ins í heild sinn­i: 



Skýrslu­höf­undar skauta fram­hjá raun­veru­legri hag­ræð­ingu og já­kvæðum við­snún­ingi í rekstri RÚV ohf.

Á hverju hausti þegar vinna við fjár­laga­frum­varp stend­ur ­yfir hefst sama atburð­ar­rásin þar sem þyrlað er upp mold­viðri í kring­um ­starf­semi RÚV ohf. Þeir sem vilja hag fyr­ir­tæk­is­ins sem minnstan tala hátt og f­inna starf­sem­inni og starfi okkar flest til for­áttu í þeim aug­ljósa til­gang­i að stuðla að því að Alþingi skeri enn eina ferð­ina niður fjár­veit­ingar til RÚV.

Mikil fækk­un ­starfs­fólks

RÚV hefur hag­rætt mikið á und­an­förnum árum og veitir nú lands­mönnum meiri þjón­ustu með mun færra ­starfs­fólki og fyrir minna fjár­magn en áður. Frá 2007 hefur verið hag­rætt mjög ­mikið í rekstri RÚV og starfs­mönnum meðal ann­ars fækkað um tæp­lega eitt hund­rað tals­ins.

And­stæð­ingar RÚV hag­ræða stað­reynd­um.

Fyrir rúmu ári síðan gall í and­stæð­ingum RÚV að fyr­ir­tækið þyrfti að hag­ræða og ná tökum á rekstr­in­um. Þá var líka kallað eftir því að RÚV lækk­aði skuld­ir. Nú, ári síð­ar, hefur RÚV ný­lega kynnt upp­gjör sem sýnir algeran við­snún­ing og halla­lausan rekst­ur. Starfs­fólk hefur rýmt stóran hluta af nýt­an­legu rými í Útvarps­hús­inu og RÚV leigt frá sér­ til Reykja­vík­ur­borgar sem skilar miklum ávinn­ingi. Nýfrá­gengin sala á bygg­ing­ar­rétti á lóð­inni við Efsta­leiti mun svo leiða til mestu skulda­lækk­un­ar í sögu RÚV. Það er því óhætt að segja að mark­verður árangur hafi náðst. En nýtur félagið góðs af þessum góða árangri í umræðu and­stæð­inga RÚV? Nei þvert á móti er eins og þeir verði bara enn ákveðn­ari í að fela þennan góða rekstr­ar­ár­ang­ur ­sem náðst hefur á und­an­förnu árum.

Við­snún­ingur í rekstri RÚV

Stað­reyndin er sú að RÚV ohf hefur verið yfir­skuld­sett frá stofnun og allar stjórnir þess hafa frá upp­hafi bent á það.  Frá stofnun RÚV ohf. hef­ur ­ríkið haldið eftir hátt í þremur millj­örðum af útvarps­gjaldi sem almenn­ing­ur taldi sig vera að greiða til RÚV. Fram­lög til RÚV eru marg­falt lægri en allra ­syst­ur­stofn­ana á Norð­ur­löndum og jafn­vel þó borin séu saman fram­lög á hvern ein­stak­ling (per capita), þá fær RÚV minna en þær flestar, þrátt fyrir fámenn­i ­þjóð­ar­inn­ar.  Alger við­snún­ingur hef­ur orðið í rekstri RÚV ohf síð­ustu miss­erin eins og árs­reikn­ingar félags­ins ­stað­festa.  

Við óskum  eftir vinnu­friði

Við starfs­fólkið óskum eftir því að stjórn­mála­menn og aðrir sýni þá sjálf­sögðu kurt­eisi að byggja mál sitt á stað­reynd­um. Starfs­fólk RÚV er lang­þreytt á ófag­legri umræðu.

Fyrir hönd stjórnar Starfs­manna­sam­taka Rík­is­út­varps­ins,

Gunnar Magn­ús­son, for­mað­ur,

Ragna Foss­berg, gjald­keri.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None